Læknaneminn - 01.09.1981, Side 8

Læknaneminn - 01.09.1981, Side 8
ar eð'a aukin, bendir það til að' þau séu bundin við' kviðvegginn. Lýst hefur verið eymslum sem bundin eru við brún rectusvöðvanna, þar sem taugaendar geta orðið fyrir þrýstingi (abdominal cutaneous nerve entrapment syndrome). Þessu ástandi fylgja verkir, sem erfitt getur verið að greina frá einkennum við sjúkdóma í meltingarfærum, þvagfærum og eggjastokkum. Frumskilyrðið fyrir þessari greiningu á orsök fyrir eymslum í kviðvegg er, að hægt sé að staðsetja þau nánast með einum fingri við fyrrgreint svæði. Til að fá slökun við djúpa þreifingu, hefur mér reynst gagnlegt að fá sjúklinginn til að anda djúpt inn, um leið og þrýst er létt á kviðvegginn. Þegar sjúklingurinn andar frá sér, er hann beðinn um að slaka á og um leið er þrýst þéttar á það svæði, sem verið er að skoða. Góð regla er að byrja djúpa þreifingu sem lengst frá þvi svæði, sem reynst hefur aumt þegar þreifað var létt. Sleppieymsl Athugað er fyrir sleppieymslum, hafi við þreif- ingu fundist fyrir eymslum í kvið. Er þá þreifað létt eða jafnvel nokkuð þétt, en alltaf varlega og hendinni síðan lyft skyndilega af kviðveggnum. Aukist þá sársaukinn, gæti það verið til marks um ertingu á lífhimnu. Sjúklingurinn getur fundið fyrir verknum í þeim hluta kviðarhols, sem þreifaður er en einnig annars staðar í kvið. Sleppieymsl eru ekki öruggt merki um ertingu á lífhimnu, einkum ekki þegar þau eru á því svæði sem þreifað er. Spenna í kviðvegg Kviðvöðvar geta verið spenntir vegna ertingar í þeim hluta lífhimnu, sem þar liggur undir, stækkunar á líffæri eða vegna slyss. Sé kviður brettharður er nær alltaf lífhimnubólga til staðar. Til frekari stuðn- ings þeirri sjúkdómsgreiningu, er lélegt almennt ástand sjúklingsins, garnahljóð minnkuð eða horfin og hreyfingar kviðveggj arins minnkaðar við öndun. Gott dæmi um brettharðan kvið er efri hluti kviðar- hols skömmu eftir að magasár hefur perforerað. Minni spennu í kviðvegg er að vænta við sjúkdóm eins og virus-gastroenteritis og salpingitis. Athugun á herniuopum er nauðsynleg, enda er þar að finna algenga orsök fyrir garnastíflu. 6 Æxli Þegar æxli finnst við þreifingu, þarf að gera sér grein fyrir staðsetningu þess, áferð, þéttleika, stærð og hreyfanleika, t. d. með tilliti til öndunar. SkoSun á ýmsum líffœrum í kviðarholi Iiistill. Oft má finna fyrir sigmoid hluta ristils í vinstri fossa iliaca (mynd 1). Stundum eru þar eymsl til staðar, einkum hjá fólki með colon irritablie. Fyr- irferð ristilsins fer að sj álfsögðu eftir magni hægða, Rectus vöðvar / Mynd 1. Líffœri í kviðarholi em stundum þannig staðsett eða svo áberandi, að hcett er við röngum niðurstöðum af skoðun. sem hann inniheldur, og má finna fyrir hörðum hægðakögglum. Ef botnlangi er bólginn, veldur þrýstingur á colon descendens stundum verk í botn- langastað, e. t. v. vegna tilíærslu á lofti í ristlinum eða vegna aukins þrýstings í kviðarholi. Venjulega finnst ekki fyrir colon transversum, nema helst ef um er að ræða magurt fólk og er ristillinn þá vel þreif- anlegur. Erfiðara er að finna fyrir coecum og colon ascendens. Algengt er, að æxli í þessum hluta ristils séu orðin mjög stór, áður en sjúklingurinn verður þeirra var og því talsverðar líkur á að hægt sé að finna fyrir þeim við fyrslu skoðun. Hjá sjúklingum með Crohn’s sjúkdóm í ileocoecal svæði má finna fyrir pylsulaga fyrirferðaraukningu í hægri fossa iliaca. Nýru. Þegar þreifað er eftir nýrum, eru notaðar báðar hendur (mynd 2). Onnur höndin er sett undir mjóbakið en hin undir rifjaboga. Eftir að fengist hef- LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.