Læknaneminn - 01.09.1981, Page 20
meS beinni verkun eSa í gegnum ofnæmi fyrir lyf-
inu. Dæmi um beina hitahækkandi verkun eru bleo-
mycin, atropin, amphotericin B og LSD.
Hiti getur verið eina einkennið samfara lyfjaof-
næmi. Dæmi um slík lyf eru salicylöt, thiouracil,
joðíð, isoniazid, metyldopa, Nitrofurantoin, Dilan-
tin, penisillin o. fl. Langoftast eru önnur einkenni
ofnæmis til staðar, t. d. húðútbrot, liöabólgur eða
prótein í þvagi. Sýklalyf geta gefið hita ofan í sótt-
hita og gelið Jtví mjög ruglingslega mynd. Það er Jjví
mikilvægt að spyrja sjúklinga með HOU um lyfja-
notkun.
VI. ANNAÐ
Fjöldamargir sjúkdómar aðrir en þeir sem þegar
hafa verið nefndir geta lýst sér upphaflega með hita,
en hér verður einungis nefnt lauslega það helsta:
Embolia pulm — thrombosis í fótaæðum eða grind-
arholsæöum eftir fæðingar geta valdið hita, annað
hvort vegna thrombophlebitis eða margra lítilla em-
bolia í lungum. Þetta þarf ekki að gefa blóðugan
uppgang eða takverk en oftast eru til staöar hósti og
andþyngsli ásamt hitanum.
Aneurisrna dissecans. - Hiti er hér algengur en
sjaldan eina einkennið. Skýring hitans er talin sú að
innri hitakveikjur losni úr hvítum blóðkornum sem
festast í hematomanu.
Efnaskiptasjúlidómar - hafa sjaldan hita í för með
sér en Jdví hefur nokkrum sinnum verið lýst, Jjá í
tengslum við HOU. Dæmi eru um thyrotoxicosis,
primer hyperparalhyroidismus, Addison’s sjúkdóm,
pheochromocytoma o. fl.
Thyroiditis - hefur gjarnan háan og langvarandi
hita í för með sér, oftast eru eymsli yfir skjaldkirtli
til staöar.
Sarcoidosis. — Venjulega ekki hiti en getur verið
megineinkenni sérstaklega ef arthralgia, hilar lym-
phadenopalhia, húðlesionir og eitlastækkanir eru
fyrir hendi.
Regional enteritis - um þriöjungur hefur hita og
í fáum tilfellum getur Jtað verið eina einkennið. Af
öllum meltingarfærasjúkdómum er þetta sá líklegasti
til að valda HOU. Hitinn getur staðið í mánuði eða
jafnvel ár án nokkurra einkenna bendandi til melt-
ingarfæra. Það getur Jjví verið mikilvægt að gera
mjógirnismyndatöku á sjúklingum með HOU.
Sjúkdómar í miðtaugakerfi — blæðingar, infarct-
ar, embolíur, æxli, hrörnunarsjúkdómar, æðagallar,
slys, o. fl. getur allt valdið truflunum á stjórn líkams-
hitans, oft ásamt með efnaskiptatruflunum. Skemmd-
ír við eða í undirstúku valda miklu oftar lágum hita
(hypothermiu) en háum. Hitinn sveiflast með um-
hverfishitanum og hinar daglegu sveiflur hverfa.
Hiti eftir skurðaðgerðir. - Stundum fylgir hiti
hjartaaðgerðum og getur jafnvel staðið í nokkrar
vikur. Venjulega finnst engin sýking, en þetta er tal-
ið orsakast af hólgusvari við blóði í gollurhúsi.
Heilaaðgerðir geta líka haft jietta í för með sér og
J>á talið vera vegna blóðs í þriðja heilahólfi. Hiti
getur líka komið vegna halotan svæfingar, oftast
stendur hann Jjó slutt (halothane sensitizadon).
Stœkkuð sólarhringssveifla. - Margir eru taldir
hafa stærri hitasveiflu en gengur og gerist án undir-
liggjandi sjúkdóms. Þelta fólk getur samt lent í
óþarflega miklum og dýrum rannsóknum vegna þess
að það er svo upptekið af þessari hitahækkun að
það gengur á milli lækna. Yfirleitl uppgötvar fólk
þetta ef það fær einhverja umgangspest og fer að
mæla hitann sinn. Það tekur eftir því að hitinn held-
ur áfram að vera hækkaöur og heldur að það sé með
einhvern sjúkdóm, eftir að „pestin“ hefur liðið hjá.
Oítast eru þetta ungar konur eða börn. Kvöldhitinn
getur verið frá 37,3° til 38° C án undirliggjandi
sjúkdóms.
Ættgengir sjúkdómar — familial mediterranean
ísver, Fabry’s sjd, hyperlriglyceridemia o. fl.
Granulomatous hepatitis.
Wegeners granulomatosis.
Cirrosis hepatis.
Wliipple’s sjúkdómur.
Kannsóhnir
Orsakir HOU eru Jtað margar að erfitt er að fara
eftir ákveðnu kerfi rannsókna heldur er hverju til-
íelli um sig fylgt eftir með viðeigandi rannsóknum.
Þegar fengist er við vandamál af þessu tagi hafa
helstu rannsóknit' þegar verið gerðar svo sem rann-
sókn á blóðhag, almenn þvagrannsókn og ræktun,
18
LÆKNANEMINN