Læknaneminn - 01.09.1981, Page 44
Mynd 5. Konsolidasion í lobus sup. dext. Hár hiti í 3 daga.
Innlögn vegna gruns um heilahimnubólgu.
skarpt fram á við fram undir sternum og fylgja þá lá-
réttu glufunni. Þegar um v. efri lobus er að ræða nær
skugginn yfir stærra svæði; stóra glufan myndar aft-
urrönd hans og hann teygir sig frá henni fram undir
bringubein á hliðarmyndinni að sjá og endar niður
við þind um 2-3 fingurbreiddir frá bringubeininu,
en ef lingula er ekki sýkt eða þétt jafnframt, eru
neðri mörk skuggans illa afmörkuð í hæð við neðri
enda barkans. Þétting í miðlobus hefur á framan-
mynd skarpa efri rönd, er fylgir láréttu glufunni og
þaðan gengur skugginn niður yfir lungun og tekur
mest alll lungnafeltið, en hann fer dvínandi eða
þynnist eftir því sem neðar dregur; hjartaröndin er
útmáð nema mediala segmentið sé ekki allt sýkt, þá
getur hún haldist hrein. A hliðarmynd er skugginn
þríhliða, toppurinn snýr að ltilus eða neðri enda
barkans og grunnhliðin fram að bringubeini, lárétta
glufan myndar skarpa efri rönd hans og liggur frá
neðri enda barkans beint fram undir bringubein, en
stóra glufan myndar skarpa neðri og aftari rönd
hans, liggur á ská yfir hjartað og endar um 2—3 fing-
urbreiddum fyrir aftan bringbeinið niður við þind.
Þéttingu í mediala segmentinu einu sér getur verið
erfitt að greina á framanmynd, kannski aðeins smá
skuggi inn við hæ. hjartarönd sem fellur saman við
hana, en á hliðarmyndinni kemur hún skýrt fram
sem skástætt band eða belti yfir hjartaskuggann
framan við stóru glufuna, er myndar þar skörp skil;
sé hins vegar hluti af hjartaröndinni máður, þ. e. a.
s. ef við greinum það vel á framanmyndinni, er það
öruggt merki um þéttingu í mediala segmentinu (sbr.
þó bls. 39 atelektasis í miðlobus), þétting í laterala
segmenitnu kemur vanalega fram á framanmynd sem
nokkuð þéttur skuggi ysl lil hliðar og neðst í hæ.
lungnafelti með skarpri efri brún, er fylgir láréttu
glufunni og hann teygir sig í áttina ofan að sinus
phrenico-costalis; á hliðarmyndinni er skugginn
daufari og liggur á ská yfir hj artaskuggann fram og
niður á við frá hilus.
Þar sem lingula er talin samsvara lob. med. er rétt
að fara nokkrum orðum um hana, en konsolidasjón
er talin öllu algengari þar en ætla mætti, því að
skugginn er oft svo þunnur og óverulegur á framan-
myndinni, að hæglega sést yfir hann; hann getur líka
alveg horfið fyrir þéttum brjóstvöðvum eða þéttu
brjósti; hann sést oft sem örþunn hula inn við
hjartaröndina eða við brodd; skugginn getur þó ver-
ið stærri og þéttari og orsakað randhvarf, en lungað
helst hreint yst til hliðar neðst; á hliðarmyndinni
liggur skugginn á ská yfir hjartanu framan við neðri
hluta stóru glufunnar, sem myndar skarpa afturrönd
Mynd 6. Konsolidasion í nœr öllum lob. inf. dxt. anlero- bas-
ála segmentið frítt.
42
LÆKNANEMINN