Læknaneminn - 01.09.1981, Side 58
kongenit lobert emfysem að ræða vegna vansköpunar
á bronchi og þ. a. I. þrengsla í aðalbronkus, sjaldan
vegna aberrerandi æðar eða slímhúðarfellingar.
Focal emfysem sjáum við við fibrosis cystica,
svæsna bronkita og í sambandi við blettalungna-
bólgur (sjá auk þess þykkveggjaðar holur, bls. 53).
1 sambandi við emfysem eru orðin bulla, loftbóla og
pneumatocele oft notuð; loflbóla (bleb) táknar lítið
loftfyllt rúm innan við pleura viceralis, pneumatocele
loftfyllt rúm eða cystu eftir bólgu í lungum og búlla
eða emfysem-blaðra skarpt afmarkað emfysematöst
holrúm í lungunum. Það er avasculert, loftfyllt rými
í lungunum meira eða minna hringlaga og með hár-
fínum veggjum. Þau geta verið stök (sjá mynd 19)
eða mörg og áþekk cystisk holrúm geta sést við
gamla berkla, mykosur, steinsýki og jafnvel án þess
að nokkur önnur merki sjáist um lungnasjúkdóma.
Röntgengreining almennt við lungnaþan eða krón-
iskt obstrúktíft emfysem getur verið bæði erfið og
óviss, þótt margt megi tína til og fer það ekki allt
eftir einkennum sjúklings hversu mjög þau koma
fram eða ákveðið og lungun geta litið tiltölulega
eðlilega út, þótt sjúklingur sé allmikið lasinn og öf-
ugt. Röntgeneinkennin eru hins vegar vel kunn og
eru í aðalatriðum þessi:
1. Aukið gagnsæi eða transparens, sem að vissu
leyti markast af hinu aukna rúmtaki lungnanna og
eyðingu á millivefnum, minnkaðri æðateikningu
perifert, sérlega ofantil auk yfirþansins.
2. Búllur myndast.
3. Flöt þind og brjósthol verður tunnulaga, A-P
diameterinn eykst og um leið stækkar retrosternala
rúmið, bringubeinið verður framkúptara, rifin flat-
ari og brjóstkyfosan vex; það sem er e. t. v. mest
áberandi er að þindin verður lágstæð og flöt og fest-
ur hennar við rifin koma fram eins og takkar eða
tennur (serrationir - og hver serrasjón bendir á rif);
þindarhreyfingar eru takmarkaðar.
4. Hjartað er lítið miðað við brjóstvíddina, mið-
stætt og rendur þess skarpar vegna hins aukna trans-
parens, höfuðgreinar art. pulmonalis eru áberandi,
en æðarnar fara mjókkandi perifert, gliðna og ýtast
í sundur og geta horfið á pörtum vegna emfysem-
breytinganna og veggskemmdanna. Er þá talað um
„arterial deficiens pattern“, þótt æðaobliterasjónin
á skemmdu svæðunum verði á hinn bóginn til þess
að auka blóðsóknina á þeim svæðum sem heil eru,
æðarnar þar verða meira áberandi. Hefur þetta verið
kallað æðamark og getur það hjálpað til þess að
greina emfysematös lungu frá of þöndum lungum af
öðrum ástæðum eins og við asthma.
Unilateral emfysem, svokallað McLeod’s syndrom,
er vel þekkt og talið stafa af infektion og bron-
chiolitis í bernsku, en áður vorum við búin að minn-
ast á kongenit lobært emfysem. Heitið emfysem er
notað við fleiri ólík tækifæri, þar sem um eiginlegt
lungnaþan er ekki að ræða; þannig höfum við
vikarierandi eða kompensatoriskt emfysem, valvular
obstrúktíft emfysem, sem er ventilstenosa með ex-
piratoriskri hyperinflasjón og loks er að nefna inter-
stitiel emfysem, þar sem loft hefur komist inn í inter-
lober septin og bandvefinn umhverfis berkjur og æð-
ar í lungum og er erfitt að greina, en loftið smýgur
gjarnan eða berst með æðaslíðrunum inn í miðmæti
og orsakar þar mediastinal emfysema eða pneumo-
mediastinum. Það getur á hinn bóginn valdið
pneumothorax. Ennfremur má minna á subcutan em-
fysema, sem truflar fyrir okkur lungnamyndina með
svörtum loftrákum þvers og krus, mest áberandi í
síðu, axillu fossa supra-clavicularis og á hálsi.
MIÐMÆTI, ÞIND OG BRjÓSTVEGGIR
Miðmœti
Flestar breytingar sem verða á miðmæti valda út-
bungunum eða breikkun á miðmætisskugganum á
framanmynd og getur sú breikkun sagt nokkuð, en
staðsetningin á hliðarmyndum er þó oft meira af-
gerandi, sérstaklega m. t. t. fyrirferðaraukninga.
Hver gerð á sér sinn uppáhaldsstað, ef svo mætti
segja. Þannig má í mediastinum superior fyrir fram-
an barkann retrosternalt sjá struma eða skjaldkirtil-
æxli (sjá mynd 16), stækkaðan thymus eða æxli í
thymus og teratoid túmora (dermoid cystur), en
fyrir aftan barkann bronchogen cystur, cystur frá
vélinda, frá hálsi cystisk hygróm og abscessa. I medi-
astinum anterior má sjá pericardial cystur, hernier-
að lunga og hernia Morgani. I mediastinum pos-
terior má sjá neurogena túmora, sem oftast eru vaxn-
ir frá intercostaltaugunum rétt við hrygginn, aðra
paravertebrala massa, dilateraðan ösofagus, aorta
aneurysma og diafragma herniur.
56
LÆKNANEMINN