Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 67

Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 67
Námsnefnd 2. árs Nefndin lagði ekki til neinar breytingar á skipu- lagi ársins, miðað við óbreytt ástand á öðrum árum. Helsti afrakstur af starfi nefndarinnar er að í ljós kom (það sem lengi hefur verið vitað) að nær eng- in samvinna hefur verið milli prófessora og kennara í hinum einstöku kennslugreinum og var ákveðið að gera bragarbót þar á fyrir næsta kennsluár, svo námsefni komi í eðlilegri röð. Einnig var nokkuð rætt um mismunandi gæði kennslu í líffærafræði, en allar breytingar þar á virðast stranda é miklum kennaraskorti í greininni. Námsnefndinni virtist sem helsta lausnin væri að einhverjum stöðum við ákveðnar deildir á kennslu- sjúkrarúsum fylgdi kennsluskylda í líffærafræði. ekki að neinum byltingarkenndum niðurstöðum. gætu leitt margt gott af sér, þó ekki væri annað en að kennarar og nemendur á hverju ári töluðu sam- an. Sigga Dóra. Námsnefnd 3. árs I nefndinni sátu sex menn, einn fulltrúi hverrar greinar sem kennd er á árinu og þrír stúdentar. Námið á 3. ári er í fremur föstum skorðum, eins og þeir vita sem til þekkja, þannig að nefndin komst ekki að neinum byltingarkenndum niðurstöðum. Engu að síður voru rædd mörg atriði sem mættu betur fara. Almennt má segja að kennsluaðstaða á árinu er heldur bágborin, samgangur milli forstöðumanna greinanna og tengsl við greinar hinna áranna eru ekki nægileg og þess vegna myndast göt sums staðar í námsefni, en annað er tví- og jafnvel þríkennt. Sem dæmi um endurtekningu má nefna kennslu í vítamínum og hormónum. Prófessorar 3. árs kvarta mikið undan því að þeir séu einangraðir frá síðasta hluta námsins, það vanti algerlega tengsl grunn- greina og kliniskra greina í deildinni. Prófessorinn í lyfjafræði kvaðst tilbúinn til að athuga möguleika á að flytja laugardagskennsluna yfir á einhvern virkan dag. Eina leiðin til að koma við hina óvinsælu janúarkennslu í lyfjafræði virðist vera að flytja lyfjafræði MTK upp á 5. ár. Áhugi er fyrir að auka vægi almennrar meina- fræði á kostnað sérhæfðrar. Virðist þar sama uppi á teningnum og verið hefur í lyfjafræðinni síðustu ár- in. Kennsla í meinafræði smitsjúkdóma og blóðsjúk- dóma hefur einhverra hluta vegna farið forgörðum hin síðari ár og þarf að taka hana upp aftur. Það þarf úrbætur í verklegri kennslu í meinafræði. Það þarf að endurskoða vægi einstakra þátta meina- fræðikennslu til prófs, en það kom í Ijós að kennar- ar greinarinnar skipta prófinu jafnt á milli sín án tillits til fyrirlestrafjölda hvers og eins en það verð- ur að teljast vægast sagt óeðlilegt. Prófessorinn í veiru-, sýkla- og ónæmisfræði er óhress með hvað vægi greinarinnar er lítið, en hún vegur aðeins % einkunn til kandidatsprófs. Telur hún þetta ekki í samræmi við stærð og mikilvægi greinarinnar. Auka þarf kennslu um sníkjudýr, sveppi og sveppatoxin. Það þarf að tengja verklega kennslu í sýklafræði betur fyrirlestrunum. Það vant- ar tengsl milli kliniska hluta námsins og rannsókna- stofnana VSÓ. Sú hugmynd kom upp í nefndinni að flytja ónæm- isfræði niður á 2. ár, þar sem hún væri í samhengi við skyldar greinar svo sem frumufræði ónæmiskerf- isins og lífefnafræði, og auka þannig svigrúm sýkla- og veirufræði á 3. ári. Þ. Á. Námsnefnd 4. árs 1 nefndinni eiga sæti Bjarni Þjóðleifsson, Sigur- geir Kjartansson, Margrét Oddsdóttir (5. ár) og Már Kristjánsson (4. ár). Allir fundir nefndarinnar hafa farið fram í fjarveru Sigurgeirs. Fyrstu fundir voru haldnir um miðjan nóv. og hafa þeir orðið 5—10 alls. Fyrst í stað beindust störf nefndarinnar að smáu greinum 4. árs, þ. e. röntgen, svæfingu, faraldsfræði, HNE, augnsjúkdómafræði og húð- og kynsjúkdóma- fræði. Stúdentar lögðu fram skýrslu um framkvæmd þessara kúrsa, bentu á vankanta og það sem betur fór. Bjarni sendi forsvarsmönnum þessara greina bréf og bað um þeirra álit á kúrsunum. Eina bréfið sem við stúdentar sáum kom frá Ólafi Jónssyni (svæfingu) og var þar m. a. að finna marklýsingu er kennarar starfa eftir. Mörg atriði í marklýsingu voru þau sem stúdentar töldu vanta í framkvæmd, sérlega á Landspítalanum. Aðalatvinna nefndarinnar var úttekt á stóru grein- unum (med. og kir.). Stúdentar í nefndinni héldu LÆKNANEMINN 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.