Úrval - 01.09.1963, Síða 171
SVEINBARN EÐA MEYBARN
183
unni, sem er fyrir hendi þá
stundina. Litningafjöldi beggja
frumanna myndar í sameiningu
kjarna hins frjóvgaöa eggs, en
af því mun sérhver fi’uma í
líkama barnsins þróast. Eggið
frjóvgast af X-frjói eða Y-frjói.
Kyn barnsins ákvarðast af þeirri
tegund frjós, sem nær fyrst til
eggsins. Kyn barnsins ákvarð-
ast i eitt skipti fyrir öll á þvi
augnabliki.
Af því, hvernig litningunum
44+X+Y er skipt í tvo hópa,
getum við séð, að það ættu að
myndast eins mörg X-frjó og Y-
frjó. Liklega er þvi þannig far-
ið. Ef ekki væri um nein önn-
ur áhrif að ræða, ættu egg því
að l'rjóvgast eins oft af Xfrjóum
og Yfrjóum. En svo er þó ekki,
og eina skýringin á þvi fyrir-
brigði hlýtur að vera sú, að um
einhver önnur áhrif sé að ræða.
í rauninni eru að minnsta
kosti getnir 12 drengir fyrir
hverjar 10 stúlkur og ef til vill
fleiri. Þetta getur aðeins merkt
það, að Y-frjóunum gangi held-
ur betur en X-frjóunum að ná
til eggsins og sameinast þvi. Á
því eru nokkrar mögulegar skýr-
ingar, svo sem sú, að Y-frjóin
syndi örlitið hraðar, vegna þess
að Y-litningurinn sé minni og
léttari. Eða kannske lifa Y-frjó-
in lengur eða halda frjóvgunar-
mætti sínum betur. Það er stað-
reynd, að við vitum ekki enn
um ástæðurnar fyrir þessu. Yið
vitum ekki heldur með vissu,
hvers vegna 44+2X er kvenkyns
og 44+X+Y er karlkyns.
Ný uppgötvun er fólg'in í því,
að það kunni að vera dálitill
munur á X-frjói og Y-frjói. Það
er freistandi að álíta, að þessi
mismunandi lögun svari til mis-
munarins á Xrfrjóum og Y-frjó-
um. En við gætum aðeins vitað
slíkt með vissu, ef frjó annarr-
ar hvorrar tegundar sæjust raun-
verulega frjóvga egg, sem siðan
þróaðist þannig, að af þvi mynd-
aðist drengur eða stúlka. Það er
ekki líklegt, að við fáum nokkru
sinni greint slikt, hvað mannleg-
ar verur snertir. En væri hægt
að greina slíkt í dýrum, kynni
hið sama að gilda um okkur
mennina.
Halda mætti, fyrst að 12 eða
fleiri drengir eru getnir fyrir
hverjar 10 stúlkur, hljóti slikt
fljótlega að leiða til þess, að
tala karlmanna yrði liærri en
kvenna. En svo er þó ekki. Allt
frá byrjun eru drengirnir veik-
byggðari. Oftar er um að ræða
fósturlát karlfóstra en kven-
fóstra, og þegar kemur að töl-
um yfir fædd börn, hafa hlut-
fallstölurnar lækkað og eru þá
orðnar 21 drengur fyrir hverjar
20 stúlkur. Drengir eru einnig
veikbyggðari i bernsku, og sama