Úrval - 01.02.1967, Blaðsíða 12
10
ÚRVAL
8017 var „svartamarkaðslest“, sem
var á ferðinni á þriðjudögum viku-
lega.
Þó að svartamarkaðsverzlun væri
bönnuð, þá höfðust hvorki hin
ítölsku yfirvöld né hernaðaryfir-
völdin neitt að í málinu.
Ef þessir svartamarkaðsverzlun-
armenn fengju ekki að nota lest
8017 til að flytja hinn ólöglega
varning sinn til borgarinnar, væri
engin leið fyrir borgara þeirrar
ágætu borgar Neapels að búa mat-
borð sín sómasamlegum vistum.
Þegar lest 8017 hélt ifrá Neapel
að kvöldi hins 2. marz, voru farþeg-
ar hennar, 521 að tölu, eins og
venjulega að langmestu leyti
svartamarkaðsmenn með tómar
töskur sínar á leið til fanga og síð-
an voru 6 starfsmenn lestarinnar.
Lest 8017 saman stóð af 2 eimvögn-
um, 42 flutningavögnum, sem allir
voru tómir, 4 farþegavögnum og
síðan vagni fyrir starfsmennina.
Hinir tveir eimvagnar höfðu
alltaf reynzt nægjanlega öflugir til
að draga lestina, enda hafði þungi
hennar aldrei farið fram úr há-
markinu 500 tonnum. En í þessari
örlagaríku ferð voru nú fleiri en
venjulega, því að auk svartamark-
aðslýðsins, sem var oftast einu
farþegarnir, var nú hópur af stú-
dentum, sem fóru þessa leið í fyrsta
skipti. Það voru læknastúdentar
frá háskólanum í, Bari, sem voru
þarna á ferð ásamt prófessornum
Vincenzo Iura. Þeir voru á kynnis-
ferð til sjúkrahúsa á Campanisvæð-
inu.
Farþegarnir og starfsliðið, 527
alls, vógu samtals 32 tonn og lest-
in sjálf 479 tonn og þannig var
heildarvigtin 511 tonn eða 11 tonn-
um yfir hámarki.
Sjálfsagt hefði þessi yfirvigt ekki
komið að sök, ef það hefði ekki ver-
ið hálka sumstaðar á leiðinni. Ef
lestin næði ekki nægum hraða var
mjög líklegt, að hún kæmist ekki
áfram yfir bröttustu brekkurnar.
Þetta var einnig orsökin til þeirra
örlaga, sem lest 8017 hlaut.
Þegar 8017 hafði haldið út af
stöðinni í Balvano, bauð Maglio
brautarvörður starfsmönnum sínum
góða nótt. Þar sem ekki átti eftir
að koma þessa nótt nema ein lest,
fengu þeir sér einnig blund, Capro-
negro og Viondi en aðstoðarbrautar-
vörðurinn, Giuseppe Salonia varð
einn eftir á verði.
Salonia hreiðraði vel um sig og
tók til að lesa blöðin. Þannig leið
um það bil klukkutími og hann fór
að eiga von á þessari einu lest, sem
eftir var að koma um nóttina, lest
8025. Honum kom í hug, þegar hann
lagði frá sér blöðin, að honum hefði
ekki borizt nein tilkynning frá
Bella-Muro um þangaðkomu lest-
arinnar 8017 og þá um leið upplýs-
ingar um hvort hið eina brautar-
spor, sem var á þessari leið væri í
lagi og' fært næstu lest.
Það var ekki í lagi.
Salonia hlustaði með athygli þeg-
ar morsetækið tók að klifa. Bella-
Muro brautarstöðin var að tilkynna
að lest 8017 væri orðin tveim tím-
um á eftir áætlun, og það sæist ekk-
ert til hennar. Salonia svaraði, að
hann myndi stöðva lest 8025 og
halda sjálfur af stað að rannsaka,
hvað væri í veginum.