Úrval - 01.02.1967, Blaðsíða 73
FRÆÐSLA UM KYNSJÚKDÓMA
71
„Þessi fáfræði er býsna dýr-
keypt“, sagði dr. William Brown,
yfirmaður þeirrar deildar Heil-
brigðismálastofnunarinnar banda-
rísku, sem fjallar um samræðis-
sjúkdóma. „Um tíma var haldið, að
penicillinið eitt gæti eytt samræðis-
sjúkdómum. Nú er það ljóst, ag
upplýsing almenningis verður hér
einnig að koma til.“
„BÖRN AÐ ALDRI.“
Hversu mikil er hættan á sam-
ræðissjúkdómum? Þegar árið 1961
var hún orðin svo alvarleg, að
nokkrir sérfræðingar voru ráðnir til
þess að rannsaka þennan faraldur
og fylgjast með honum. En síðan
hefur fjöldi smitaðra þrefaldazt, og
í sumum borgum áttfaldast. Það er
búizt við 1.700.000 smitunartilfell-
um á ári næst.
1963 skoraði Kennedy á þing og
þjóð að leitast við að stöðva þennan
faraldur. Ráðunautar heilbrigðis-
málastofnunarinnar við heilsu-
gæzlustöðvar um þver og endilöng
Bandarikin fengu fyrirmæli um að
reyna að finna aðferðir til að koma
fræðslu um þetta til almennings. Dr.
Brown segir að nú sé svo komið, að
vitneskja sé fengin um hvernig eigi
að fara að þessu, og að það sé að
mestu leyti að þakka þessum mönn-
um og öðrum þegnhollum borgur-
um, enda verði nú að hefjast handa.
Ein aðferðin til þessa var sú, sem
fundin var í Los Angeles. Robert
Lugar, heilbrigðismálaráðunautur,
og Frank Stafford, fræðslufulltrúi
kölluðu saman til funda lækna,
menn frá skólunum og fulltrúa
borgaryfirvaldanna. Niðurstaðan á
þessum fundum var sú að byrjun-
ina yrði að gera í skólunum.
Haustið 1963 var búið að skipu-
leggja sex stunda námskeið handa
unglinga- og menntaskólum, og
fóru nú Lugar og Stafford til nokk-
urra skólastjóra til að fá þessu kom-
ið á. í fyrstunni tóku skólastjórarn-
ir þessu fálega eða neituðu. „Þetta
eru börn að aldri“ sagði skólastjóri
við góðan skóla í góðu hverfi. „For-
eldrarnir myndu bregðast æfir við,
og þetta gæti haft skaðleg áhrif á
unglingana.“
Lugar fór þá með gætni að út-
skýra fyrir honum, hversvegna þeir
hefðu tekið fyrir þennan skóla.
Sagði hann að heilbrigðiseftirlitið
væri nú að fylgjast með sárasóttar-
faraldri sem þá gengi yfir, og hefðu
þeir fundið 32 dæmi um smitun hjá
nemendum þessa skóla, sem væru
á aldrinum 13-18 ára. Það sló þögn
á skólastjóra, en síðan spurði hann
„Hvenær er hægt að byrja.“
Til þess að þetta kæmi foreldr-
unum ekki á óvart, töluðu þeir Lug-
ar og Stafford á foreldrafundum í
þeim skólum sem valdir höfðu verið.
Sögðu þeir frá því, að af þúsundum
unglinga sem spurðir höfðu verið,
hefðu ekki fyllilega þrír af hundr-
aði fengið fræðslu um þessi efni
heima hjá sér. Síðan minntu þeir á
hina ískyggilegu aukningu sjúk-
dóma þessara meðal unglinga.
„Unglingarnir verða að vita hversu
stórhættulegir þessir sjúkdómar
eru“, sögðu þeir, og að smitunin
verður af náinni snertingu. Unga
fólkið þarf að þekkja sjúkdómsein-
kennin og vita hve nauðsynlegt er,
að læknarnir geti rakið feril smit-