Úrval - 01.02.1967, Blaðsíða 94
92
ÚRVAL
Floridafylki, þar sem fjöldi Bemex-
vespa hafði byggt sér bú, álitu þær
það ekki vera fyrir neðan virðingu
sína að stela hrossaflugum hver frá
annarri til þess að losna við erfiði
veiðanna. Þarna er vissulega um
að ræða eiginleika, sem er sameig-
inlegur sumum öðrum dýrum, sem
standa ofar í þróunarstiganum, þar
á meðal mönnunum.
'i' 'j'
Tjv Tjr vk vfv vfc vfc
Við hjónin vorum i móttökuveizlu hjá mjög háttsettum yfirmanni í
hernum. Var veizla þessi haldin í garðinum við heimili hans, sem sagt
garðveizla í fínasta stíl. Ég var að dást að hinni fögru velklipptu gras-
flöt, hinum velsnyrtu runnum og þráðbeinu blómabeðum ásamt nokkr-
um vinkonum mínum, þegar ég gerði mér allt i einu grein fyrir því,
að þar var hvergi nokkurn öskubakka að sjá. Ég vildi helzt ekki óhreinka
hina fullkomnu grasflöt með ösku eða stubbum og spurði því þá, sem
næstir mér stóðu, hvort Þeir vissu, hvar maður ætti að drepa í vindl-
ingum. Ofursti einn, sem stóð þar nálægt, svaraði þá: „Ég veit ekki,
hvað þér ætlið að gera við yðar stubb, en í síðasta skipti sem ég var
hérna, þá át ég 'minn stubb.“
Elizabeth Dutton.
Eftirfylgjandi saga er sögð í Budapest: Frægur ungverskur hag-
fræðingur var nýkominn heim til Ungverjalands úr ferðalagi til Banda-
ríkjanna. Skömmu eftir heimkomuna hitti hann vin sinn í kaffihúsi.
„Hvað varstu að kynna þér í Bandarikjunum?" spurði vihur hans. „Ég
fór þangað til þess að kynna mér dauða kapítalismans," svaraði hag-
fræðingurinn. Þá spurði vinur hans: „Og svernig leizt þér nú á hann?“
Þá svaraði hagfræðingurinn og stundi við: ,-,En hve það hlýtur að verr.
indælt að fá svona góðan dauðdaga!“
U.S. News & World Report.
1 siðari heimsstyrjöldinni fór maðurinn minn eitt sinn í heimsókn
til ömmu sinnar. Hann útskýrði það fyrir gömlu konunni, að hann
væri i falihlífaliðinu, sem léti menn oft svífa til jarðar að baki víg-
línu óvinanna.
„Jæja,“ sagði gamla konan og virtist verða mjög fegin. „Þá þarf
ég ekki að vera áhyggjufull lengur. Ég var hrædd um, að þú værir
að vinna að einhverju hættulegu, en ef þú svífur til jarðar á bak við
óvinina, þá ættirðu ekki að vera í neinni hættu. Byssunum þeirra er
auövitað öllum miðað í hina áttina."
Frú Ralph D. Thomas.
Læknirinn við sjúkling sinn: „Ég vil, að þér sleppið sumarfríinu
alveg þetta árið og hvílið yður þess i stað vel.“