Úrval - 01.02.1967, Qupperneq 20
18
ÚRVAL
og þýðir blómabúð, sem er villandi,
þar eð geymsla þessi er ekki tengd
þlómum á neinn hátt. Hún líkist
íremur risastóru, troðfullu
geymslulofti.
Sólargeislarnir skína skáhallt inn
um háa glugga á geysilegt sam-
isafn af stðlum, legubekkjum,
borðum, rúmum, styttum, páfugla-
fjöðrum og upptroðnum dýrum.
Eitt sinn voru þessi húsgögn notuð
af lifandi páfum, sem átu og drukku,
báðust fyrir, grétu, hlógu, sváfu
..... og dóu að lokum. Uppi við
vegg þarna stendur bronsrúm Píus-
ar páfa X., sem var tekinn í helgra
manna tölu 32 árum eftir dauða
sinn. í fyrstu geðjaðist honum ekki
að þessu rúmi, því að það gerði
hann dapran í bragði líkt og kosn-
ing hans til páfatignar.
Þegar hinir kardínálarnir kusu
hann, tók hann fréttum þessum með
þolinmæði. En hann brast í grát,
þegar hann var orðinn einn. Annar
páfi, Gregoríus mikli, hegðaði sér
á sama hátt. Þegar hann heyrði,
að hann hefði verið kosinn páfi,
hljóp hann upp í hæðirnar og faldi
sig þar í þrjá daga, áður en hann
snéri aftur til þess að lýsa því yfir,
að hann væri fús til þess að taka
á sig þessá byrði.
Dúfa ein hafði komið sér fyrir
fyrir ofan dyrnar að herbergi Píus-
ar, daginn áður en hann var kosinn
páfi. Sumir segja, að sama dúfan
hafi reynt að setjast á höfuð Ram-
polla kardínála, en Rampolla, sem
margir álitu, að yrði kosinn páfi,
hafi rekið dúfuna burt.
Þegar Píus X. var orðinn páfi,
var ætlazt til þess af honum, að
hann yfirgæfi herbergi sitt á efstu
hæð og flytti inn í páfaíbúðina á
næstu hæð fyrir neðan. En Píus
kaus heldur að dvelja í herbergi því,
sem dúfan hafði staldrað við hjá.
Hann kunni mjög vel við útsýnið
yfir torgið og Rómaborg, en það
var mun betra af þeirri hæð. Því
sagði hann: „Ég held, að ég verði
bara kyrr hérna.“ Og þetta varð
til þess, að fimm síðustu páfarnir
hafa búið í íbúðinni á efstu hæð
Postulahallarinnar og sofið í horn-
svefnherberginu, sem snýr að St.
Péturstorginu. íbúð þessi var snyrt
og löguð til, og svo var farið að
svipast um eftir rúmi handa hinum
nýja páfa. Að lokum var valið
látúnsrúm, sem hafði verið rúm
Píusar VII. 80 árum áður. Það var
fægt af kappi, og síðan var því
komið fyrir í svefnherbergi páfans.
„Fallegt, er það ekki“, sögðu
mennirnir, sem lagað höfðu til
rúmið, og bentu á það, þarna sem
það stóð nýfægt og gljáandi.
„Fallegt“, svaraði Píus, „en ég
mun deyja í þessu rúmi.“
Og hann hafði rétt að mæla. Og
rúmið, sem dýrlingurinn dó í, stend-
ur nú sundurtekið uppi við vegg
,í geymslu Páfaríkisins, umkringt
húsgögnum úr kirsuberjatrjáviði,
en Píus XII. og Jóhannes páfi höfðu
.einnig notað þau húsgögn. Við hlið
þeirra stendur altari Jóhann-
esar páfa uppi við annan vegg. Það
hefur verið tekið í sundur, og er
þar aðeins um að ræða nokkrar
einfaldar fjalir, sem ábreiða hefur
verið breidd yfir. Við altari þetta
var Jóhannes vanur að krjúpa á
hverjum morgni og biðja fyrir öll-