Úrval - 01.02.1967, Side 21
FLORERIA — GEYMSLAN í PÁFAGARÐI
19
um góðviljuðum mönnum um víða
veröld, hver svo sem trúarbrögð
þeirra kynnu að vera.
En furðulegustu hlutir í þessari
geymslu eru þó 18 hvítar brjóst-
myndir af fyrri páfum. Þær eru úr
marmara. Eitt sinn stóðu þessar
brjóstmyndir meðfram veggjunum
í forsölum Postulahallarinnar, en
um þá gengu sendiherrar og ríkis-
leiðtogar á fund páfa. Páll páfi VI.
skipaði svo fyrir, að brjóstmynd-
irnar skyldu fluttar þaðan. Og því
standa þær nú inni í Florenciu,
geymslu Páfaríkis, hver á sínum
stalli. Við þær eru festir bréfmið-
ar, og á þeim stendur „7—7—65“,
þ.e. dagsetning sú, er útlegð þeirra
hófst. Þessir burtreknu páfar horfa
þarna með mismunandi svipbrigð-
um yfir hauga af rúmum, stólum
og skrifborðum.
Leó XIII., sem var meinilla við
að vera innilokaður nokkurs stað-
ar, virðist stara furðu lostinn á
ringulreiðina, sem þarna ríkir. Píus
páfi X., niðursokkinn í hugsanir
sínar, virðist vera að hlusta á
syndajátningar hræðilegs syndara.
Það er kímniglampi í lífmiklum
augum Píusar IV., líkt og hann
væri að skemmta sér yfir snjallri
gamansögu. Leó XII., siðavandur
lærifaðir, sem vildi útrýma hvers
kyns spillingu og lét loka vínbúðum
Rómar og bannaði fólki að dansa
vals á kjötkveðjuhátíðum, virðist
óánægður á svipinn, líkt og hann
hefði heyrt í syngjandi dansendum
á götunum.
Hár Píusar VIII. er liðað aftan á
hálsinum í stórri glæsilegri bylgju
líkt og á frönskum hirðmanni, en
ástæðan var sú, að það átti að hylja
stórt kýli, sem hann hafði á háls-
inum og olli honum talsverðra
þjáninga. En samt virðist hann
vera að því kominn að skella upp
úr. Gregoríus VI. er á hinn bóginn
augsýnilega mjög áhyggjufullur.
Líklega er það vegna nýrrar frjáls-
lyndishreyfingar, sem miðar að því
að sameina Ítalíu Páfaríkjunum.
Píus XI. er þarna líka og veitir
svefnherbergissettinu hans Píusar
postullega blessun sína, einnig
stórum, rauðum hægindastól, sem
Jóhannes páfi hélt mikið upp á, en
í honum sat hann oft við lestur eða
horfði þar á sjónvarp.
Páll páfi sendi þessa fyrrverandi
páfa í útlegð þessa til þess að koma
,nýjum svip á Vatíkanið. Hann fyr-
irskipaði róttæjkar breytingar í
Páfahöllinni, lét rífa gamla damask-
ið og rauða brókaðið af veggjunum
og lét hvarvetna leggja áherzlu á
einfaldleika nútímastefnunnar í
húsbúnaði og híbýlaprýði. Jafnvel
einkakapella páfans var einnig
tekin fyrir af listamönnum, sem
fylgjandi eru nútímalistastefnum,
og var þeim leyft að breyta henni
í samræmi við eigin smekk.
Slíkar gerbreytingar hafa ekki
verið framkvæmdar í Vatíkaninu
síðan á dögum Píusar XI. Nýtt
safn var byggt við hlið málverka-
og höggmyndasafnhúsanna.
Sprengjuheld geymsluherbergi
voru grafin undir grasflötunum í
görðum Páfahallarinnar til geymslu
á dýrgripum Vatíkansins. Tveir
stórir salir voru útbúnir fyrir fundi
hinnar nýju sýnódu eða biskupa-
þingsins. Gerð var áætlun um risa-