Úrval - 01.02.1967, Page 35
í norSurhluta Sýrlands
fyrir vestan Homs og
norðvestur af Aleppo
eru yfir þúsund e'yddar
borgir.Svo lítur út sem
þær hafi verið byggðar af kristnum
mönnum frá fjórðu til sjöundu ald-
ar. Þetta voru ríkar borgir og frið-
sæld ríkti þarna á þessu tímabili, en
akuryrkja var aðalatvinnuvegurinn.
En svo fór þessum borgum að
hnigna, líklega vegna styrjalda.
Sóttir geisuðu og þá flýði fólkið.
Og þegar flestir voru flúnir úr
borgunum, hnignaði þeim, vegirn-
ir til borganna urðu ófærir vegna
viðhaldsleysis, og þær gleymdust
og týndust.
f einni af þessum eyddu borgum,
Qal’at Sem’an, er kirkja sem heitir
eftir miðaldadýrlingi sem kallaður
hefur verið Símon stílíta. Símon
þessi var sonur fátæks bónda. Hann
fæddist í nágrenni Oal’at Sem’an
milli 386 og 390. Fyrst var hann
sauðahirðir, en gekk í klaustur þar
á staðnum 16 ára gamall. í klaustr-
inu var hann í tíu ár, og var þá
skipað að fara. Munkunum þótti
hann vera orðinn svo sérvitur, að
klaustrinu væri síður en svo nokkur
sómi að hafa hann, enda fór hann
þaðan.
Eftir það varð hann einsetumaður
og kaus hann sér að samastað
þriggja metra háa súlu. Upp á þá
súlu fór hann, og bjó þar daga og
nætur. Fólkinu þarna á staðnum
þótti þá einstætt, að þetta væri
helgur maður, og fór að venja
komur sínar að súlunni. En Símon á
súlunni, Símon stílíta, kærði sig ekki
Chatholic Digest
33