Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 13
FJÖLBREYTT NOTAGILDI GLERS
11
mólikúlin þéttar saman og glerið
verður sterkara.
Bandaríski sjóherinn hefur unn-
ið að rannsóknurh á þessum eigin-
leika glersins, og til að rannsaka
þetta nánar, var glerkúlu, tíu
þumlungar í þvermál og hálfur á
þykkt, sökkt á 20.000 feta dýpi og
sprengja sprengd skammt frá
henni. Sprengingin hrærði skipin
uppi á yfirborðinu, en glerkúlan
var algjörlega ósködduð.
Við Kínavatn í Kaliforníu vinnur
nú sjóherinn að byggingu kúlulaga
neðansjávarfarartækis úr gleri.
Vonast er til, að farartækið komist
á fimm kílómetra dýpi. í því verður
mun meira útsýni en í venjulegum
kafbátum, og það er mjög traust, því
að gagnsæir veggir eru ekki „brot-
hættir sem gler“, heldur harðir sem
stál.
Ekkert er sérstaklega erfitt, ef maður skiptir því bara niður í mörg
minni háttar verk.
Henry Ford.
Kennslukona ein, sem býr á baðstað úti við ströndina, skýrir frá því,
aö ein 11 ára telpa hafi skrifað eftirfarandi, Þegar hún bað bekkinn
um að nefna dæmi úm „blandaðar tilfinningar“: „Þegar ég sé skóla-
stýruna hjóia eftir hamrabrún á nýja reiðhjólinu mínu finn ég til
„blandaðra tilfinninga“.“
Öruggasta aðferðin til þess að gera einhvern að manni er að álíta
hann vera það.
J. R. Lowell.
Þegar ég var ungur, varð ég gripinn hvöt til Þess að fást við ritstörf.
Ég þráði það heitt að skrifa bókmenntalegt meistaraverk.
En það var eitt vandamál, sem olli mér miklum áhyggjum: Yrði
fremur venjulegt nafn eins og ég bar heppilegt fyrir frægan rithöfund?
Bernard Shaw var þá átrúnaðargoð mitt, svo að ég skrifaði honum
bréf og spurði hann þessarar spurningar.
Ég varð alveg dolfallinn, þegar ég las svar Shaws. Það hljóðaði á
þessa leið: „Getið þér ekki tekið ákvörðun sjálfur um svo einfalt mál,
mun það ekki skipta neinu máli, hvað þér kallið yður.“
Þegar ég snæði einn, er mér innanbrjósts sem skólapilti, sem verið
er að refsa. Ég reyndi þetta í eina viku, og mér leið ekki vel. Svo
leitaði ég vandlega i heilagri ritningu að einhverjum fyrirmælum, sem
kvæðu svo á um, að ég skyldi snæða einn. Ég fann ekki neitt, er benti
til slíks, svo að ég hætti þeim sið að fullu, og nú líður mér miklu betur.
Jóhannes páfi XXIII.