Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 122
120
ÚRVAL
anna. Bradley gekk ekki á bak orða
sinna, heldur hvatti hann með ráð-
um og dáð, sagði honum hvað hann
ætti að lesa, og hvernig haga skyldi
lestrinum; lesa hratt, einbeita sér.
Og ekki var Hayward fyrr kominn
í undirbúningsdeild skólans, en við-
horf hans til bóka gerbreyttist, bæk-
ur, sem hann hafði alla ævi fráfælzt
og forðazt, urðu honum nú dýrmæt-
ari en allt sem dýrmætt var, því
honum þótti sem þær hlytu að vera
lykill að framgangi sínum ef nokk-
ur yrði.
Honum gekk vel að tileinka sér
það sem í þeim stóð. Þar lærði
hann bókstafareikning, flatarmáls.
fræði, sögu, eðlisfræði, lærði það
ekki með hægð og gát, heldur gleypti
það í sig. Þetta varð honum sem
opinberun. Og þegar undirbúnings-
árið var á enda, voru 19 menn vald-
ir úr þeim 100, sem þátt tóku í
keppninni, og meðal þeirra var Hay-
ward. 13. júlí 1926 var Heyward
tekinn í tölu nemendanna í sjóliðs-
foringjaskóla Bandaríkjanna.
Oft hefur sú saga verið sögð og
endursögð, hve fljótt og vel þessi
magri unglingur vann sér traust og
hylli samfélaga sinna. Meðal þess
sem honum var sagt að gera, var
að fleygja blautri ávaxtaköku fram-
an í einn af hinum eldri sjóliðsfor-
ingjaefnum í mötuneytinu, og þótti
honum nú úr vöndu að ráða, illt
að neita, því þá átti hann yfir höfði
sér óvild félaga sinna, enn verra að
hlýðnast og hitta. Heyward sýndi þá
hve eldfljótur hann gat verið að
átta sig, en einmitt það fékk því
valdið síðar að yfirmenn hans
treystu honum fyrir hinum vanda-
sömustu verkum, sem skjót ráð
þurfti við. Hann ákvað að kasta
kökunni en hæfa ekki.
Og svo kastaði hann.
Hvað kom fyrir? Einmitt í sama
bili var einn hinna allra óvinsæl-
ustu af yfirmönnunum að opna
dyrnar. Kakan lenti beint fram-
an í honum, og varð hann ókvæða
við.
Hayward þverneitaði að segja eft-
ir félögum sínum, hverju sem hót-
að var, og hvernig sem ásakanirnar
hljóðuðu: ótilhlýðileg meðferð á
matvælum, skemmdafýsn, sem kom
niður á opinberum eignum o. s. frv.
„Mér datt þetta í hug allt í einu,
herra,“ sagði hann við bálreiðan
iiðsforingjann. „Mig hefur alltaf
langað til að kasta ávaxtaköku, og
ég sá yður ekki, vissi ekki að þér
voruð að koma, það get ég svarið.“
Honum var refsað og aldrei kom
hann upp um neinn. En af þessu
hófst ekki annað verra en það, að
yfirmenn og iengra komnir nem-
endur virtu hann meira en áður.
Og samt vissu þeir ekki og fengu
aldrei að vita hvort það hefði ver-
ið ætlun hans að kasta kökunni
framan í liðsforingjann eða hvort
svona vildi til óvart.
Hayward lauk prófi árið 1930 og
varð 58. af 402. Hann lærði að
fljúga og tók próf sem herflugmað-
ur í Pensacola á Florida, giftist
stúlku þaðan, og varð svo aðstoðar-
verkfræðingur við sjóflugvélaverk-
smiðju í Fíladelfíu.
Ætla hefði mátt, að nú væri saga
Haywards öll, sú sem frásagnar-
verð væri, og hefði hann týnzt sem
einstaklingur í þeirri mergð, sem