Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 108
106
Mary var síðasta þriggja reyk-
háfa farþegaskipið. Það var 1019
fet og 6 þuml. á lengd, og 100 fet-
um lengri en stór íbúðasamstæða.
Þar sem skipið var 81.237 tonn þurfti
að byggja fyrir það nýja bryggju í
New York og þurrkví í Southamp-
ton.
Til að rata um skipið þurftu far-
þegar að nota leiðarvísi. Þar voru
38 setustofur, 13 barir, og einn mat-
salurinn var hálf ekra að stærð.
Um borð í Mary voru að jafnaði
á fjórða þúsund manns. Til að full-
nægja þörfum þeirra voru 600 sím-
ar, tvær útvarpsstöðvar, 378 bruna-
hanar og tvær sterkar rafstöðvar.
Meðan á sjóferðinni stendur eru
farþegarnir vaktir á morgnana af
þjóni eða þernu, sem færir þeim
rjúkandi te í rúmið. Hægt er að
velja um 30 tegundir morgunverð-
ar. Þá er gefið út dagblað um borð.
Nefnist það Ocean Times. Einnig
eru til sölu happdrættismiðar og
er hæsti vinningur rúmar 200.000
krónur. Enn fremur eru sundlaugar,
verzlanir og notalegar setustofur
handa farþegunum.
Farþegar geta iðkað íþróttir í
íþróttasölum skipsins eða horft á
ýmsar kvikmyndir. Klukkan 4.30 er
tedrykkja og kvöldverður kl. 7. Að
kvöldverði loknum geta yngri far-
þegar sótt næturklúbbinn meðan
hinir eldri spila bridge eða bingó,
þar til gengið er til náða.
Skipshöfnin er um 1300 manns.
Þar eru 12 loftskeytamenn, 20
hljómsveitarmenn, tveir skurðlækn-
ar, garðyrkjumaður, sem gætir
blómanna er skipta þúsundum, 204
veitingaþjónar, sex rakarar og
ÚRVAL
tyrkneskur baðþjónn. í vélarrúm-
inu einu vinna 254 menn.
Byrjað var að leggja drög að
smíði Queen Mary árið 1930 í John
Brown skipasmíðastöðinni í Glas-
gow, og dag einn í september 1934
var skipinu hleypt af stokkunum
að viðstöddum konunginum og
200.000 áhorfendum. 20 mánuðum
síðar var skipið tilbúið að leggja
upp í fyrstu áætlunarferðina yfir
Atlantshafið.
í fyrstu ferð skipsins ákvað skip-
stjórinn, Sir Edgar Britten að reyna
ekki að setja hraðamet í sigling-
unni yfir hafið. Þrátt fyrir það var
Mary aðeins 42 mínútum lengur
en gildandi hraðamet franska skips-
ins Normandie.
Mary lagðist að nýrri bryggju
við 50. stræti og var fagnað geysi-
lega. Skömmu áður höfðu þrjár
flugvélar flogið yfir skipið og látið
blómum rigna yfir það, og á
skemmtiskipi þar skammt frá léku
15 ungar konur, klæddar riddara-
búningum þjóðsöng Breta á trom-
peta. Á hafnargarðinum höfðu safn-
azt saman 10.000 manns til að fagna
skipinu.
Tveimur mánuðum síðar setti
Mary hraðamet, sigldi yfir hafið á
þremur sólarhringum, 23 klukku-
stundum og 57 mínútum. Ári síðar
setti svo Normandie nýtt hraðamet,
og þannig héldu skipin áfram að
bæta metin til skiptis um eina og
eina mínútu. Þegar styrjöldin hófst
3. september 1939 átti Mary metið.
Þrír sólarhringar 20 klukkustundir
og 42 mínútur.
Þennan vetur lá skipið við fest-
ar, undir ströngu eftirliti, í New