Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 64
62
URVAL
ekki lengur til í bakinu. í samtöl-
unum við lækninn kom í ljós, að
henni fannst að börnin þörfnuðust
sín ekki lengur, og að eiginmaður-
inn of önnum kafinn við starf sitt
til að geta sinnt henni nóg. Aðeins
faðir hennar hafði verið háður henni
eitthvað að ráði.
Þegar eiginmanni og börnum Jean
var skýrt frá, hvernig í öllu lá,
sýndu þau henni strax meiri um-
hyggju og hlýju, og brátt var lyfja-
gjöfinni hætt. Ef bakverkirnir hefðu
ekki lagazt eftir að Jean náði sér
af þunglyndinu, myndi læknirinn
eflaust hafa álitið sjúkdómsorsök-
ina líkamlega.
Læknar við Duke háskólann hafa
útbúið sérstakt kerfi, sem á að graf-
ast fyrir um orsakir óútskýran-
legrar þreytu, kyndeyfð, vonleysis-
eirðarleysis og fleiri kvilla. Allir
finna einhvern tíma fyrir þessum
tilfinningum. Duke-kerfinu er ætl-
að uppgötva, hvort fleiri en ein
orsök valdi kvillunum. Óregluleg-
ur svefn veldur mörgum kvillum
og bendir á vissar orsakir. Sá sem
á í tilfinningalegum erfiðleikum,
vaknar líklega snemma á morgn-
anna eða um nætur úrvinda af
þreytu.
Snöggar breytingar á lífsháttum
fólks er oft undanfari ýmissa sjúk-
dóma. Við rannsóknir sem gerðar
voru á sjúklingum, er þjáðust af
margskonar sjúkdómum, kom í ljós,
að þeir höfðu allir nýlega orðið
fyrir miklum missi, annað hvort
misst ástvini, atvinnu eða heimili.
Jafnvel þægilegar breytingar eins
og utanför orsaka stundum erfið-
leika. Ef ferðamenn kvarta erlend-
is undan mat og drykk, sem þeir
þola illa, er orsaka líklegast að
leita í geðlægri spennu, sem staf-
ar af dvöl ferðamannsins á erlendri
grund. Minni háttar geðlæg spenna
getur valdið vefkindum eins og
kvefi.
Eru læknar, aðrir en sálsýkissér-
fræðingar, færir um að fást við
geðlæg vandamál? Fjöldi dæma
sýnir, að þeir eru þess vel megn-
ugir, og margir læknaskólar hafa
núorðið stutt námskeið í sálsýkis-
fræði, sem læknanemarnir taka þátt
í. Flestir læknar geta ekki eytt
eins löngum tíma í viðtöl við sjúkl-
inga eins og sálsýkisfræðingar gera.
En reynslan sýnir, að sjúklingar
þjáðir af vanlíðan, sem á sér til-
finningaleg'ar orsakir, þurfa aðeins
að ræða stutta stund við lækninn,
svo að bati komi. Það þarf að full-
vissa þá um að sjúkdómurinn sé
ekki svo alvarlegur, að ekki megi
lækna hann.
Þótt fleiri og fleiri læknar sam-
ræmi nýjustu upplýsingar um til-
finningalega sjúkdóma störfum sín-
um, skiptir afstaða sjúklingsins allt-
af miklu máli. Hann ætti strax að
gera vissar varúðarráðstafanir þegar
hann finnur, að taugaspenna hefur
orðið slæm áhrif á sig, og mikla að-
stoð getur hann veitt lækninum,
með því að segja honum, hvort
hann hafi verið slæmur á taugum,
áður en sjúkdómseinkennin gerðu
vart við sig. Og hann verður að
vera heiðarlegur við lækninn og
segja honum frá allri niðurbældri
gremju, vonbrigðum, ótta og tjóni.
Það sjónarmið, að allt sé í bezta
lagi getur verið ágætt, er við ræð-