Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 31

Úrval - 01.03.1968, Blaðsíða 31
ÆVI KEPLERS 29 vænleg börn, en Hinrik sonur hans þótti eitthvað óstöðuglyndur í æsku, og er sagt að faðir hans hafi viljað festa ráð hans með því að koma honum í hjónaband. Gekk hann að eiga fátæka þjónustustúlku á veit- ingahúsi, Katharine Guldenmann, og voru þau gefin saman þann 15. maí 1571, og var fyrsta bam þeirra Jó- hannes Kepler, stjörnufræðingurinn mikli, sem fann lögmál himingeims- ins. Kepler er í bókum oft nefndur sjömánaðabarn og heilsuleyi hans og önnur eymd ef til vill sett í sam- band við það, og víst er um það að hann er fæddur rúmum 7 mán- uðum eftir giftingu foreldranna. Hef ég séð þess getið að nákvæmni Kepl- ers og sannsögli um þessar stað- reyndir hafi verkað allt að því ó- þægilega á suma sagnritara. En vera má að íslenzkir lesendur væru til með að botna þá sögu á annan hátt og þykja þó Jóhannes Kepler ekki verri maður að heldur. En hvað sem því líður, þá var Jóhannes litli ekki hraustur í æsku, og honum leið oft illa. Samljmdið var ekki heldur alltaf sem bezt á heimdilinu, því að foreldrarnir voru fyrirhyggj ulitlir og höfðu miður gott lag á því að koma fótum undir sig. Þegar Jóhannes var tæplega árs- gamall réði faðir hans sig á mála hjá hertoganum af Alba, sem ekki hefur fengið góð eftirmæli í mann- kynssögu en það er önnur saga. Hafði Hinrik konu sína með sér, en ungbörnin tvö urðu eftir hjá afa sínum og ömmu. Sex ára gam- all fór Jóhannes þó aftur til for- eldra sinna, sem þá höfðu setzt að í öðru þorpi ekki allfjarri og nú fór hann að ganga í skóla. En hann varð líka að hjálpa foreldrum sínum heima við, því að þau áttu sífellt í basli og fátækt. Einhverju sinni veiktist hann af bólusótt og skemmd- ust augun. Og þess vegna var það, að stjörnufræðingurinn Kepler, sem átti eftir að verða, átti aldrei eins gott með að skoða stjörnumar og aðrir menn, svo að hann varð að láta sér nægja að reikna út gang þeirra — en það gerði hann manna bezt. Enginn skyildi láta sér til hugar koma að það hafi verið ákveðið eða fyrirhugað af aðstandendum, að hinn efnilegi námsmaður skyldi verða stjörnufræðingur, því að slíkt var þá naumast til, og menn vissu yfirleitt ekkii hvað stjömurnar voru. En allur námsferill hans var með ágætum, þrátt fyrir hinar ömurleg- ustu ástæður heima fyrir, og þegar allan fjárstyrk þraut þaðan, eftir að einhver voði hafði dunið yfir, skutu borgarar í Weiil, sem minntust afa hins unga námsmanns, saman handa honum í styrk sem nægja skyldi honum til að ljúka námi. En af slíkum efnum átti hann vit- anlega þess engan kost að taka þátt í gaumi og gleði stúdentalífsins og urðu bækurnar þá athvarf hans. Lat- ínu og grísku nam hann kappsam- lega, en þó framar öllu guðfræði, því að hún var aðalnámsgrein í þá daga og nauðsynlegust talin. Náttúruvís- indi var naumast um að ræða í skólum þeirra tíma, en einhver stærðfræði fékk að fljóta með eins og aukageta, og stunduðu menn hana misjafnt. Lauk Kepler námi sínu með hinum mesta sóma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.