Úrval - 01.03.1968, Qupperneq 129
BÍTLARNIR ....
127
írúa því sem þeir á annað borð
kjósa og heyra.
Til þess að fá að njóta næðis er
þeim sá einn kostur búinn, að um-
girða bústaði sína háum múrum ó-
yfirstíganlegum, hafa varðlið um
sig og leyndan síma. Við og við fara
þeir að skemmta sér í London á
stöðum sem heita The Bag o‘ Nails
og Speakeasy, en hafa þá jafnan
vörð um sig og vísar undankomu-
leiðir ef þeim sýnist aðþyrping vera
í aðsigi. Annars hafa þeir hljótt
um sig og hægt heima, þó með
nægri viöhöfn sé, og ekki neitt fá-
tæklegt þar um að litast, nema síð-
ur sé, önnur eins auðæfi sem að
þeim hafa streymt: gróðinn af hljóm-
plötum, gjald fyrir að koma fram í
sjónvarpi, prentaðir söngvar, og allt
er þetta birt með einkarétti.
Það er varlega áætlað, að Harri-
son og Ringo Starr séu eigendur
að einni milljón sterlingspunda hvor,
en Lennon og McCartney hálfri ann-
arri (þeir hafa haft aukatekjur fyr-
ir sönglagatexta).
Þrír af þeim eru kvæntir og þekkj-
ast konurnar varla að, en allir eiga
þeir sér veglega bústaði í Weybridge,
í Surry. John, sem er 27 ára, Cynth-
ia kona hans og Julian sonur þeirra
eiga heima í „ævintýrahöll" í Tudor-
stíl, og fylgir húsinu sundlaug. Neð-
ar í ásnum er hús Ringos „Sólskins-
brekka, Sunny Heigths, það hús er
byggt úr tígulsteinum og gipskalki,
eru þar 15 stofur, og býr hann þar
einn með konu sinni Maureen og
sonum sínum Zak og Jason. George,
sem er 24 ára og Patti kona hans
eiga heima í hvítu timburhúsi ein-
lyftu, sem skreytt er litskrúðugum
Bítlarnir ásamt indverska yoganum
McSharsi.
teikningum, blómum og abstrakt-
listaverkum. Paul, sem er ógiftur og
25 ára gamall, á heima í húsi nokkru
með háum veggjum, sem er í grennd
við St. John‘s í London.
Bítlarnir hittast jafnan og eru
heimagangar hver hjá öðrum, eins
og væru þeir allir ein fjölskylda, ■—
eins og þeir raunar mega heita.
Vináttan er trú og traust með þeim
öllum. Því veldur ekki einungis
bræðralag þeirra sem bítla, heldur
er uppruni þeirra allra af líkri rót,
þeir eru af miðstéttarfólki í Liver-
pool.
Paul er sonur bómullarkaup-
manns og ólst hann upp hjá föður-
systur sinni, eftir að faðir hans
hafði hlaupizt að heiman og skilið
fjölskyldu sína eftir án forsjár, Paul
komst inn í flokkinn árið 1955. Ge-
orge, sem er sonur strætisvagnsbíl-
stjóra, komst það þremur árum
seinna. Tveimur árum síðar kom
Ringo (Richard Starkey), sem er
sonur skipasmiðs.