Úrval - 01.11.1970, Síða 3
FORSPIALX
FRÓÐLEGT ER AÐ bera saman
tvœr af viðamestu greinum þessa
heftis. Önnur segir frá hamingju-
samri fjölskyldu í Bandaríkjunum,
hjónum og stórum barnahópi þeirra
og hvernig þau með hugœrfari
glaðvœrðar og jefnlyndis gerðu
hversdagslífið skemmtilegt. Dag
nokkurn unnu börnin lifandi asna
í happdrœtti hjá demókrataflokkn-
um skömmu fyrir forsetakosning-
arnar 1960, þegar John F. Kennedy
var kosinn forseti. Þau skírðu asn-
ann í höfuðið á honum og bjuggu
um hann í bílskúrnum. Jack afsann-
aði þá kenningu rækilega, að asnar
beri nafn með réttu. Hann reyndist
vera hin skynugasta skepna, reynd-
ar svolítið duttlungafullur og sér-
vitur, en aldrei hlutust nein veru-
leg vandrœði af honum. Ef til vill
er merkilegust lýsingin á fyrstu jól-
um fjölskyldunnar, eftir að asninn
kom til sögunnar. Á jólanótt kom
nágrannakona þeirra í heimsókn.
Hún fullyrti, að allir góðir asnar
hefðu fyrir sið að krjúpa á kné á
stalli sínum á jólanótt til að votta
frelsaranum virðingu sína. Heimil-
isfólkið hafði litla trú á, að Jack
hefði þennan sið kynstofns síns í
heiðri. Þau bjuggust öll við að hann
lægi eins og venjulega endilangur á
gólfinu í bílskúrnum og hryti. En
hversu mikil varð ekki undrun fjöl-
skyldunnar, þegar út í bílskúrinn
kom og Jack var þar krjúpandi
andaktugur á svip! Mýmargar fleiri
skemmtilegar sögur er að finna í
frásögninni af asnanum Jack, sem
kom öllum í gott skap.
HIN GREININ er alger andstœða og
vœgast sagt óhugnanleg lesning.
Hún segir frá þeim aðbúnaði, sem
börn og unglingar mega búa við og
þeirri meðferð sem þau sœta í ýms-
um betrunar- og fangelsisstofnun-
um í Bandaríkjunum. Mörg þessara
innilokuðu barna og unglinga eru
annaðhvort algerlega saklaus eða
hafa aðeins orðið sek um slíkar
minniháttar yfirsjónir og lagabrot,
að innilokun þeirra og fangelsun er
himinhrópandi ranglœti. Þessi betr-
unarhœli gegna engu hlutverki öðru
en vera gróðrarstíur fyrir ofbeldi,
kvalalosta og kynvillu, þar sem
framtíðarferill margra afbrota-
manna er markaður. Meðferð hinna
/----------------------------------------------------------------------------A
Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Hilmir hf„
Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, sími 35320.
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Afgreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholti 33, sími 36720. Verð árgangs krónur
600,00. I lausasölu krónur 60,00 heftið. Prentun og bókband: Hilmir hf.
Myndamót: Rafgraf hf.
V ____________________________________________________________________________)