Úrval - 01.11.1970, Síða 12

Úrval - 01.11.1970, Síða 12
10 ÚRVAL vaxandi vandræðum með að tala við börnin sín um guð og trú- arbrögðin, — og er þetta hliðstætt vandræðum þeim, sem ömmur okk- ar og afar komust í, þegar talið vék að kynferðismálum. Það er vel skiljanlegt, að foreldri eigi erfitt með að svara spurning- um, sem hafa valdið guðfræðingum og heimspekingum heilabrotum öld- um saman. En sagan er ekki öll sögð með þessu. Þessi kynslóð er undarlega illa upplýst, hvað snert- ir undirstöðuatriði trúarbragðanna, og erfiðleikarnir liggja að miklu leyti í því, að þeir fullorðnu vita margir ekki, hverju þeir eiga að trúa. Vísindin hafa ruglað allar hugmyndir okkar um tilveruna; kirkjurnar hafa einbeitt sér meir að ýmsum félags- og mannúðar- störfum og látið trúfræðsluna sitja á hakanum; sálfræðin hefur rýrt virðingu okkar fyrir kirkjusiðum og helgihaldi. Flestir Bandaríkjamenn segja í orði kveðnu, að þeir trúi á guð, en þrír af hverjum fjórum viðurkenna, að þeir taki lítið sem ekkert tillit til guðshugmyndarinnar í lífi sínu. Afleiðingin er sú, að fjölmargir foreldrar hafa ekki minnstu hug- mynd um hvers virði trúin getur verið börnum þeirra. En þetta er einmitt mjög óheppi- legt, því börn hafa djúpa trúar- þörf. Auðvitað er ekki hægt að svara neinni mikilvægri trúarlegri spurningu á ofureinfaldan hátt og í eitt skipti fyrir öll. En sjálfsagt er það okkur til hjálpar til skiln- ings á viðfangsefninu að hugleiða sumt af því, sem börnum ætti ekki að vera sagt um guðdóminn. Flest- ir guðfræðingar og sálfræðingar eru sammála um þau atriði, sem ég ætla nú að drepa á. Segðu ekki litlu barni, að guð fylgist með því til að sjá, hvort það hagi sér ekki vel. Hve mörg eru ekki þau börn, sem sagt er við, að guð sjái til þeirra, hvað svo sem þau geri? Hve mörg börn heyra ekki athugasemdir eins og „Guð vill ekki eiga þig“ fyrir smámuni eins og krot á bók eða að vilja ekki koma inn, þegar mamma kallar? Barn ætti ekki að hugsa um guð sem persónu, sem leggur sig fram um að ná sér niðri á litlum dreng. Til þess er guð of stór og drengur- inn of lítill. Og trúin verður nei- kvæð, ef of mikið er gert úr refsi- mætti guðs. En þó má barnið ekki finna til ábyrgðarleysis. Guð getur ekki verið okkur mikilvægur nema við trúum því, að skaðvænlegt sé að brjóta gegn lögum hans. En kjarninn í þessu öllu á að vera til- finning um elsku og ást guðs. Ef foreldrarnir láta ástúðina yfir- skyggja allt annað varðandi börn- in sín, þá eiga þau miklu betra með .að skilja, að guð sé afar góður. Ekki segja barninu þínu, að guð sé eins konar töfrasproti, sem geti leyst allan vanda — eða velgerðar- maður, sem veiti okkur allt, sem við biðjum um. Barn getur átt til að segja: „Mamma, ef ég bið guð um fótbolta, ætli hann gefi mér hann þá?“ Barnið biður einlæglega um eitt og annað, smátt og stórt, en rekur sig á þá undarlegu staðreynd, að guð,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.