Úrval - 01.11.1970, Side 20

Úrval - 01.11.1970, Side 20
18 URVAL búin að missa hárið um miðjan ald- ur. Hún hafði verið ákaflega stolt og hreykin af rauðu lokkunum sínum, og eftir að hún missti þá, leit hún aldrei í spegil. Satt að segja voru speglar bannaðir við hirðina. Elísabet huggaði sig við meira en sjötíu hárkollur með ýmsum litum. Ein var úr fagurgrænu silki. Og hún fór að dæmi Loðvíks. Enginn fékk nokkurn tíma að sjá hana hárkollu- lausa, nema einkaþernan hennar. Á hverju kvöldi var bert höfuð- ið hulið íburðarmikilli nátthúfu. María Skotadrottning er einhver rómantískasta sögupersóna mann- kynssögunnar. Margir menn elsk- uðu þessa fögru, heillandi drottn-. ingu og hættu lífi sínu fyrir hana. Samt sem áður varð hún líka fyrir því að missa hárið. Þegar henni hafði verið haldið í fangelsi í Englandi í átján ár, skrif- aði Elísabet drottning undir dauða- dóm hennar. Hljóður hópur safn- aðist fyrir utan Fotheringay kast- ala, til að vera vitni að aftöku þessarar ólánsömu drottningar. Höfuðið fagra var lagt á högg- stokkinn og öxin féll. En þegar böðullinn lyfti sigri hrósandi upp höfðinu, fór hrollur um fólkið, því hárkollan datt af og sköllótt höfuð Maríu kom í ljós. Svipað atvik kom fyrir mörgum árum seinna. Önnur töfrandi kona, María Antoinette, missti hárið skömmu eftir að hún giftist Loðvík 16. Frakkakonungi. Því var haldið leyndu, og hún bar alltaf íburðarmiklar og stórar hárkollur. Þegar stjórnarbyltingin skall á, var hún tekin til fanga ásamt eiginmanni sínum og varp- að í fangelsi. Hárkollan var tekin af henni og verðirnir sem gættu hennar, ráku upp ruddalegan hlát- ur. Að lokum var henni leyft að bera einfalda hvíta nátthúfu. Þegar drottningin frétti að hún setti að aka gegnum götur Parísarborgar til aftökupallsins í opnum vagni, bað hún um slæðu til að hylja höfuð sitt. Því var neitað, en hún fékk að hafa húfuna á höfðinu. Rétt áður en hún lagði höfuðið á höggstokk- inn, tók hún af sér húfuna og mis- kunnarlaus hlátursköll glumdu við frá mannfjöldanum. ☆ Eiginmaðurinn segir við konuna, sem situr hágrátandi fyrir framan sjónvarpið: „1 guðanna bænum manneskja, þetta er bara auglýsing! Hann snýr aftur heim til hennar, þegar :hún burstar í sér tennurnár." Líffræðingur nokkur hefur komizt að því eftir að hafa rannsakað froska i lengri tíma, að þeir geti gert sig skiljanlega hvor við annan með kvaki sínu. Vísindamaðurinn fullyrti, að um margar mállýzkur væri að ræða.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.