Úrval - 01.11.1970, Side 106
104
aftur á móti aðeins 208. í starfs-
mannahópnum er mikið af áhuga-
sömu, ungu fólki, konum og körlum.
Fjórtán starfsmenn hafa meistar-
próf í félagsráðgjöf. Starfsmenn
vinna alltaf saman í smáhópum,
starfsliðum, nema þegar börnin sofa
eða eru í kennslustundum. Alltaf er
einn starfsmaður í starfi fyrir hvern
8 barna hóp. Meðal starfsmannanna
er læknir og tannlæknir, sem sinna
eingöngu börnunum.
Hópdvalarmiðstöðin í Highfields
í New Jerseyfylki er álitin fyrir-
mynd þeirra litlu betrunarstofn-
ana, sem beita hóplækningarað-
ferðum. Hún tekur aldrei fleiri en
20 unglingspilta í einu. Flestir þess-
ara pilta eiga langa sakasrká að
baki. Þeir búa í gamla steinhúsinu
hans Charles A. Lindbergh flug-
kappa, en það er langt inni í skógi.
A daginn vinna þeir á fylkissjúkra-
húsi.
I hálfa aðra klukkustund á hverju
kvöldi sitja þeir í hóp og tala um
siálfa sig og aðra. Nýr piltur er lát-
inn segja „ævisögu“ sína og ræða
afbrot sín ýtarlega. Svo tala hinir
piltarnir um hann sín á milli og
reyna að mynda sér skoðun um,
hvers vegna pilturinn hafi lent i
vandræðum. Þeir reyna að fá hann
til að skilia það, að jafnvel þótt
hann komi frá lélegu heimili og úr
lélegu hverfi, sé hann samt sjál-fur
ábyrgur fyrir sínum eigin gerðum.
Sú skoðun liggur til grundvallar
þessum hópfundum, að þeir hjálpi
unglingnum til þroska, er hann fer
að skilia hegðun sína og annarra og
ástæðurnar, sem þar liggja að baki.
Sífellt fleiri betrunarstofnanir taka
ÚRVAL
nú að nota þess háttar hóplækn-
ingaaðferðir,
Litlar betrunarstofnanir eru ekki
allar reknar af fylkisyfirvöldum.
Margar þeirra eru skipulagðar af
einstaklingum og einkasamtökum
og styrktar af þeim. Sölumanna-
klúbburinn í Dallas, sem í eru 450
menn úr viðskiptalífinu og ýmsir
læknar, lögfræðingar, kennarar og
aðrir opinberir starfsmenn. Allt frá
1920 hafa félagar þessa klúbbs haft
áhuga á unglingum, sem lent hafa
á glapstigum. Kjarni þessa hjálpar-
starfs eru alveg einstakar búðir í
norðausturhluta Texasfylkis. Þær
einkennast af einfaldleika og jafn-
vel skorti á þægindum. Drengirnir
lifa þar spartversku lífi, sofa utan
dyra bæði vetur sem sumar í skýl-
um, sem þeir hafa sjálfir gert sér úr
segldúk og trjágreinum. Piltunum
er skipt í fjóra flokka eftir aldri.
Eru tíu piltar í hverjum flokki. Hin-
ir yngstu þeirra eru 8—9 ára gaml-
ir. Sérhverjum flokki er stjórnað
af tveim ungum háskólastúdentum,
skilningsríkum en harðgerðum.
Dvalartími drengjanna er allt að
tvö ár. Þeir klífa í fjöll, sigla á húð-
keipum, veiða fisk, fara í göngur of,
iæra að bjarga sér upp á eigin spýt-
ur á löngum ferðum í óbyggðunum.
Mikil áherzla er lögð á það, að hver
drengur taki þátt í öllum störfum
og viðfangsefnum, sé í raun og
sannleika einn af hópnum. Þeir
verða þannig að vera reiðubúnir að
hætta í miðri máltíð eða að leggja
til hliðar viðfangsefni, sem þeir eru
að vinna að, og ræða í þess stað þau
vandamál, sem koma upp hverju
sinni, þangað til lausn hefur fund-