Úrval - 01.11.1975, Page 26

Úrval - 01.11.1975, Page 26
24 ÚRVAL menntaðir, næmgeðja og skilningsríkir menn, en múhameðstrúarmennirnir ólæsir og ómenntaðir ruddar. í ýmsum viðræðum heyrði gestur- inn trú sinni lýst sem trú „munaðar", „vellystinga“, „sællífis" og „nautna“. En hið versta var samt, að hvar- vetna sem hann fór, var hann kallað- ur „múhameðstrúarmaður“ og trú hans var kölluð „múhameðstrú“. Petta eru tvö hin óheppilegustu orð, sem hægt er að nota til þess að lýsa þess- ari öflugu trú. Við skulum gaumgæfa, hvers vegna hann álítur slíka framkomu vera mjög móðgandi fyrir þann, sem er Islams- trúar. Múhameð, hinn innblásni maður, sem gerðist spámaður Islams, fæddist um árið 570 e. Kr. í borginni Mekka í Arabíu. Hann missti móður sína við fæðingu og varð munaðarleysingi, enda lét hann sér alltaf annt um þá, sem bjuggu við skort og kúgun. Tvítugur að aldri var hann þegar orðinn dug- andi kaupmaður, og brátt gerðist hann stjórnandi úlfaldalesta fyrir auðuga ekkju, sem var 35 ára að aldri. Pegar hann var orðinn 25 ára, bað þessi vinnuveitandi hans. Ekkjan hafði kom- ið auga á kosti hans. Hann tók bón- orði hennar og reyndist hentii trúr og dyggur eiginmaður alla sína ævi. ORÐ AF HIMNUM OFAN. Pegar þessi maður. eyðimerkurinnar var orð- inn fertugur, átti hann ánægjulega daga: ástríka eiginkonu, góð börn og guðæfi. Múhameðstrúarmenn (múslim- ar) trúa því, að þá hafi honum tekið að opinberast boðskapur guðs fyrir milligöngu Gabríels erkiengils. Pví var eins farið með Múhameð og flesta meiri háttar spámenn, sem á undan honum fóru, að hann var ófús til þess að gerast boðberi boð- skapar frá guði, þar eð hann fann til vanmáttar síns til slíks. En engillinn skipaði svo fyrir: „Lestu.“ Að því best er vitað, kunni Múhameð þá hvorki að lesa né skrifa, en hann byrjaði að mæla fram og boða þau innblásnu orð, sem brátt áttu eftir að valda byltingu á stórum svæðum jarð- arinnar: „Pað er aðeins einn guð.“ Boðskapur Múhameðs olli gremju þeirra auðugu araba, sem játuðu trú á marga guði, og Múhameð og áhang- endur hans voru reknir úr heimaborg sinni, Mekka. Nú neyddist Múhameð til þess að berjast til varnar því frelsi samviskunnar, sem hann boðaði. Hann snerist oft til atlögu gegn fimmfalt mannfleira liði og vann nokkra stór- kostlega sigra. Síðar varð hann æðsti maður þjóð- félags múslima, áhangenda Islamstrú- ar. Og sú viska, sem hann sýndi þá, jaegar hann dæmdi í flóknum málum, varð grundvöllurinn að þeim trúar- lögmálum, sem eru kjarni Islamstrú- arinnar núna. í krafti síns geysisterka persónu- leika bylti Múhameð við öllu þjóð- lífi í Arabíu og gervöllum Miðaustur- löndum. Hann boðaði trú á einn guð. Hann leysti konur úr ánauð þeirri, sem siðvenjur eyðimerkurinnar höfðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.