Úrval - 01.11.1975, Qupperneq 36

Úrval - 01.11.1975, Qupperneq 36
34 til þess að skeyta saman risaeðlubein til sýningar, án sýnilegra víra eða spelka. Aðferðin var fólgin í því að bora holur í beinin, koma þar fyrir stálstyrktarstoðum og sjóða beinagrind- urnar síðan saman við liðamótin. Brig- ham Young háskólinn veitti honum síðan tækifæri til þess að endurskipu- leggja háskólasafnið árið 1961. 1 ferð til Suðurheimskautslandsins árið 1969 gerði Jensen þýðingarmestu uppgötvun á sviði steingervingafræð- innar, hvað jarðfræðilega sögu snertir. Fundur hans sannaði tilveru hins dul- arfulla risameginlands „Gondwana- lands“, sem vísindamenn höfðu álitið í hálfa aðra öld, að eitt sinn hefði verið til. Hann datt í lukkupottinn eftir að hafa unnið í tvær vikur við hinar erfiðu aðstæður á Suðurheim- skautslandinu. Hann hafði numið stað- ar við hamar úr sandsteini. Hann los- aði um nokkrar stórar flögur og klauf þær af handahófi með hamri og meitli. Skyndilega kom hann auga á einkenni- legt bein og tönn í einni flögunni. Petta voru leifar Lystrosaurusar, skrið- dýrs, sem líktist spendýri og hafði að- eins tvær tennur, en leifar þess höfðu fundist bæði í Indlandi og Afríku. Tilvist leifa þess á Suðurheimskauts- landinu er sannfærandi sönnun um, að fyrir um 200 milljón árum hafi öll þessi meginlönd verið samvaxin. Fyrir tveim árum stóð ég við hlið Jensens meðal einiberjarunnanna og pinongrenitrjánna á snævi þaktri Un- compahgrenhásléttunni og horfði yfir ÚRVAL grjóturðina og Escalanteána þarna langt fyrir neðan okkur. „Orðið „dinosaur“ (risaeðla) þýðir „hræðileg eðla“,“ sagði hann. „Pær voru uppi fyrir 140 milljón árum. Pað voru til miklu fleiri tegundir og miklu meira af þeim en okkur hefur nokkru sinni grunað. Sumar voru risavaxnar líkt og Supersaurus gamla, en aðrar voru minni en kjúklingur. Pær voru þaktar brynplötum, með horn eða með andarnef og leifar þeirra hafa fundist um gervallan heim. Fyrstu forneðlu- leifarnar fundust nálægt Cuckfield í Sussex í Englandi árið 1822. Par var um óvenjulegar tennur að ræða. Petta var í fyrsta skipti, að menn gerðu sér grein fyrir því, að fundist höfðu leif- ar af áður óþekktum forndýrategund- um.“ „Á mesozoicöld skriðdýranna var þetta svæði í Coloradofylki land fenja og risavaxinna skóga. Prumuveður geisuðu æ ofan í æ og regnið skall á trjánum. Parna voru vatnaliljur, skor- dýr og fyrstu ýviðartrén. Krókódílar voru á vakki við árbakkana og á þeim og lifðu á fornskjaldbökum og skrið- dýrum, sem líktust fuglum. Mikið var þarna af sniglum og frumstæðum eðl- um. Kjötætur lifðu þarna á jurtaæt- um. Og á milli risavaxinna fóta þeirra skutust lítil, loðin dýr. Pað voru fyrstu spendýrin. Og þau áttu eftir að lifa af, þegar umhverfið gerðist óhagstætt og fjandsamlegt, en það áttu stóru skriðdýrin aftur á móti ekki eftir að gera.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.