Úrval - 01.11.1975, Page 39

Úrval - 01.11.1975, Page 39
.37 KRISTUR, LJÓS HEIMSINS hörkuleg eða skeytingarlaus. Og kann- ski skynjum við þetta í mótsögnum okkar eigin eðlis, sem gefa okkur al- drei tækifæri til þess að vera þess háttar manneskjur, sem við viljum vera, en það er hið versta af öllu. Kristur færir okkur birtu inn í myrkur af þessu tagi. Hann fulivissar okkur um, að hvað annað sem kann að vera okkur andsnúið, jafnvel þótt við höfum snúist gegn sjálfum okkur, þá er guð, hið raunverulegasta fyrir- brigði allra raunverulegra fyrirbrigða, með okkur og fordæmir okkur ekki heldur tekur málstað okkar og veitir okkur styrk til þess að þrauka. Birt- an, sem stafar af Kristi, eyðir ekki að- eins myrkri okkar fjandsamlega heims, heldur einnig hinum svikulu skugg- um okkar eigin blekkinga. Pví að við þráum oft að flýja lífið á óraunsæjan hátt, hættur þess og þjáningar, tak- markanir þess og ráðgátur. í tilraun okkar til þess að fuilnægja þessari þrá gerum við okkur blekk- ingarkenndan guð, eins konar töfra- veru, sem líkist töframanninum Al- addin með hinn dásamlega töfralampa sinn í hugarheimi okkar. Á meðan við höfum hann góðan með því að vera góð og hæfilega trúrækin, mun hann vernda okkur og veita okkur hamingju og nægilega velgengni, að okkar áliti. Að vísu mun sumt fólk deyja í járn- brautarslvsum og annað mun deyja af völdum krabbameins eftir Iangvinnar þjáningar, en við og þeir, sem við elsk- um, verðum vernduð af okkar almátt- uga töfraguði. En síðan verða aðstæður á vegi okk- ar, er töfraguðinn okkar lætur undir höfuð leggjast að vernda okkur. Við nuddum Aladdinslampann, en samt birtist enginn hjálparandi. Við verð- um vonsvikin og reið. Hvaða gagn er að þeim guði, sem getur jafnvel ekki litið eftir hagsmunum síns eigin fólks? Við skulum svo sannarlega ná okkur niðri á honum með því að hætta að trúa á hann. En það, sem við hættum í rauninni að trúa á, er okkar eigin uppfinning, guð óskhyggju okkar, sá guð, sem á að uppfylla allar okkar óskir. Og reið- in, efinn og örvæntingin, sem slíkt hefur í för með sér, getur orðið það hráefni, sem nota má til þess að skapa úr sanna trú á raunverulegan guð. Það er tekið skýrt fram í Heilagri ritningu, að Jesús fann til aðdráttar- afls þessa töfraguðs, fann slíkt sem óhjákvæmilega freistingu, sem maður- inn yrði að kljást við. Par eð hann var hungraður, mundi guð þá eklci hjáipa honum til þess að breyta steinum í brauð? Og kastaði hann sér fram af hábrún musterisins, myndu þá ekki englar bera hann á örmum sér? En slíkum hugsunum var vísað á bug, um leið og þær birtust. Að láta þær stjórna brevtni sinni væri hið sama og að meðhöndla guð eins og gágnlegan töfra- mann — — og slíkt væri guðlast. Jesús bjóst aldrei við því, að iífið hampaði honum. Hann skynjaði, að menn, og þá einkum hann sjálfur, eru leiksoppar tilviljana og aðstæðna, og hann sætti sig við það. Hann skynj-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.