Úrval - 01.11.1975, Síða 52

Úrval - 01.11.1975, Síða 52
50 ÚRVAL hlið mína um kvöldið, þegar ég fór í smá leiðangursferð. Mikið var ég dásamlega þreytt á kvöldin, eftir röskar átta stundir á þjóðveginum. Og hvað ég fór fljótt að sofa og vaknaði snemma — og vel upplögð. Ég hreyfði mig með var- kárni á morgnana í tjaldinu mínu, því á hliðum þess höfðu safnast sam- an dropar, sem héngu þar gins og rúbínar og glömpuðu í sólaruppkom- unni. Og svo tók ég allt saman, það varð að þorna á ferðalagi dagsins. Ég var glöð yfir að tjaldið var rautt. Hver dagur hófst í rósrauðum bjarma! Stundum var ég fúl yfir að sjá hvaða merkingu ferðamenn leggja í orðið ,,útilega“. Á sumum tjaldstæðum var þetta eins og að búa í íbúðum — bara undir berum himni. Petta voru tölusett smásvæði með runnum í stað veggja. Sjónvarpi og útvarpi. Konur spígsporuðu í baðkápum með krullu- pinna í hárinu. Rafmagnsrakvélar. Ég flýti mér framhjá svona stöðum. Ég hef sítt hár, sem ég flétta í tvær fléttur. Stundum slást þær framan í mig vegna loftstraums frá vindhlíf- inni. En ég hef ekkert á móti því að vegfarendur sjái að þar sé kona á ferð og þess vegna treð ég þeim ekki und- ir hjálminn. Árangurinn er líka sá, að ég hef ekki orðið vör við neinn fjand- skap annarra vegfarenda, eins og svo margir mótorhjólaferðalangar kvarta yfir. En dag nokkurn hugsaði ég með mér. „Skítt með það, ég set hárið upp undir hjálminn, þá er það ekki fyrir.“ Skömmu síðar stansaði ég við bensín- tank til að spyrja til vegar. Eins og venjulega gekk ég innfyrir án þess að taka hjálminn af mér eða gleraugun og bensíntitturinn spurði kurteislega: „Hvað get ég gert fyrir þig, herra?“ Og þá tosaði ég fiétturnar niður aft- ur! Þegar ég sneri til Bandaríkjanna aftur, var ég spennt og æst, þegar ég átti að fara yfir landamærin, eins og væri ég njósnari. Vingjarnlegur toll- vörður talaði fram og aftur um mót- orhjól við mig — svona eins og til að róa mig — og svo spurði hann: „Hvaða farangur ertu með til baka, sem þú hafðir ekki, þegar þú fórst af stað?“ Ég hugsaði svo brakaði í heilanum, því ég vildi fyrir alla muni vera heið- arleg. „Við skulum nú sjá — jú, tvö epli, tvær ferskjur, dós af hænsna- kjötssúpu, og asbestbút.“ Hann glotti: „Þú hefur ekki gert mjög mikið fyrir kanadiskan þjóðarhag," og svo mátti ég halda áfram. I stuttu máli sagt var það dásam- leg upplifun að keyra út í víðáttuna á hverjum degi, að vera aleinn í friði með sjálfum sér, að hlaða lítinn bái- köst og laga einfalda máltíð, horfa á sólina setjast, vera heilsusamlega þreyttur eftir ferðalag dagsins og sofna öruggur á jörðinni undir rauðu þaki. Alltaf stóð stóra, hvíta mótorhjól- ið og beið þolinmótt eftir mér, alltaf startaði það í fyrstu tilraun, og suð- aði friðsamlega í átt til fjallanna, renndi sér glæsilega gegnum bæina og ávann okkur vini hvar sem við fór-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.