Úrval - 01.11.1975, Blaðsíða 89

Úrval - 01.11.1975, Blaðsíða 89
NIXON: TRÚNAÐARBROT 87 síðdegis og að kvöldi og spyrði spurn- inga um sjálfan sig, aftur og aftur, en gat ekki orðið ánægður. Hinn 1. apríl 1974 krafðist dóms- málanefnd fulltrúadeildarinnar upp- töku af 42 samræðum, sem nefndin taldi sig þurfa til að geta komist að niðurstöðu. Hinn 18. apríl gerði nýi saksóknarinn, Leon Jaworski, kröfur til upptöku af 64 samtölum. Hvíta húsið gat ekki hunsað dómstólana enn einu sinni. í stað þess tók Nixon karlmannlega ákvörðun. Hann kvaðst án mótþróa afhenda úrdrætti úr hin- um veigamiklu samtölum, sem kraf- ist var, og þá mundi bandaríska þjóð- in fá svörin. Pví var það kvöldið 29. apríl 1974, að forsetinn kom fram í sjónvarpi. Petta var ein áhrifamesta ræða hans á öllum ferli hans. Hann lét „setja á svið“ 38 innbundnar bækur við hlið sér, eina fyrir hvern mann í dóms- málanefndinni. Svo sagði hann: „I þeim eru allir þeir hlutar, sem skipta máli, úr samtölunum, sem kraf- ist hefur verið og voru tekin upp á band, það er að segja allir hlutar, sem koma við spurningunni, hvað ég vissi um Watergate eða yfirhylmingu, hvað ég gerði í því . . . Ég vil, að enginn verði í óvissu lengur um, að forsetinn hefur engu að leyna í þessu máli.“ En hann hafði misst sjónar af sann- leikanum um sjálfan sig, um stað- reyndir og um eðli glæpsins, sem hann var sakaður um. Hann var, hvort sem hann skildi það eða ekki, að Ijúga. Með opinberun þessari hrundi það í rúst, sem eftir hafði verið af stuðn- ingi almennings við Richard Nixon. Upptökurnar töluðu eigin máli. Pær lýstu ljótu orðbragði, óákveðni í radd- hreim og dónaskap, sem gerði það, sem fóllc ímyndaði sér um dónaskap Lyndons Johnsons, sem hjóm. Sið- gæðispostular, frjálslyndir og íhalds- samir menn, sem studdu „hefðina" í félags- og stjórnmálum, gátu nú keppt í leit að nógu sterkum lýsingarorð- um til að fordæma hegðun Nixons. Hugh Scott, leiðtogi repúblikana '< öldungadeildinni, byrjaði með ,,að harrna", „viðbjóðslegt“, „siðlaust“. Petta var verra en „eldurinn“ hafði verið í október. Dómsmálanefnd fulltrúadeildarinn- ar kom saman 24. júlí til að hefja yfirheyrslur, sem var sjónvarpað. Snjallar ræður voru fluttar og heima- spunninn sannleikur, brandarar og högg fyrir neðan beltisstað, en ekk- ert gat dregið athygli þeirra, sem flæktir voru í þetta, frá réttarhöldun- um. Ákvörðunin kom snemma laugar- dagskvöldið 27. júlí eftir langan dag þrætu í þinginu. Petta var allt rugl- ingslegt, klækirnir, kurteisin, atkvæða- greiðslur um breytingartillögur og breytingartillögur um breytingartillög- urnar. Sá, sem hlýddi á, skildi þó, að þessi gerilsneydda kurteisi, sem stund- um bar á, var í sjálfu sér hluti af fag- urfræði réttarhaldanna, vísdómi for- tíðarinnar, sem hafði gengið í erfðir. Pess var krafist, að forseti yrði fjar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.