Úrval - 01.11.1975, Side 104

Úrval - 01.11.1975, Side 104
102 ÚRVAL r----------------------------------n . . . Andersen varð ástfanginn að minnsta kosti þrisvar sinnum. Fyrst fékk hann hug á Riborg Voigt, sem hann hitti á skemmtiferð á Fjóni. Flún hafði áhuga á ritstörfum hans og þau hittust oft, eftir að hún flutti til Kaupmannahafnar. Pegar þau dvöldu saman, las Andersen fyrir hana það sem hann hafði síðast skrifað. Pegar hann heyrði orðsveip um, að hún væri heitin öðrum, skrifaði hann henni og óskaði skýringar. Ffún viðurkenndi, að kvitturinn væri sannur, játaði að henni þætti vænt um hann, en taldi sig bundna af heiti sínu. Sú næsta, sem vakti ástarhug hans, var dóttir Collins, velgjörða- manns hans. Hún var þrettán árum yngri en hann, var ekki hrifin af honum og tók hann ekki alvarlega. Og sú þriðja, sem kom róti á hug hans, var hinn frægi „sænski næturgali", Jenny Lind, hin heims- fræga sópransöngkona. Hún varð kveikjan að mörgum sögum hans, þar á meðal næturgalanum. En frá hennar hendi var aldrei meira á milli þeirra en góð vinátta. Andersen tókst aldrei að eignast eigið heimili. Hann var á eirðar- lausu flakki milli hótelherbergja, gestaherbergja annars fólks, og her- bergja sem leigð voru með húsgögnum. Petta var í samræmi við þörf hans til að ferðast oft og lengi. Raunar hlýtur hann að hafa verið einn víðförslasti maður síns samtíma. Hið fjarlæga hafði mikið að- dráttarafl á hann, eins og marga aðra rómantíska menn, það sem var bak við fjöllin blá gat svalað forvitni hans, fyllt huga hans og þurrk- að út einmanaleik hans. — Hann var einn hinna fyrstu ferðasögu- ritara. Ef til vill er fjálgasta ferðabók hans lýsing á níu mánaða ferð um Ítalíu, Grikkland, Rúmeníu og Tyrkland . . . . . . Vel mætti kalla Andersen fyrsta vísindaskáldsöguhöfundinn. í einni sögu hans segir: „Eftir þúsund ár héðan í frá munu menn- irnir fljúga á gufuvængjum gegnum loftið yfir höfin.“ Hann talar um „loftskip“ sem koma frá Ameríku til Evrópu, hlaðin af fólki, „rafsegulmagnaðan kapal undir höfunum“ sem þegar hefur flutt skeyti um fjölda farþeganna í loftskipunum. Hann lýsir ennfremur, hvernig farþegarnir, sem eru af „önnum kafinni kynslóð" heimsækja nær alla Evrópu á átta dögum og staldra aðeins stutt í hverju landi. Gæti Jules Verne hafa vitað um þessa sögu, þegar hann skrifaði „Umhverfis jörðina á áttatíu dögum“ tuttugu árum síðar? V____________________________________________________
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.