Goðasteinn - 01.09.1965, Side 10
Einar Bjarnason ríkisendurskoðandi:
Krossreið
MAGNÚS Á KROSSI, JÓNSSON
Síra Jón í Hrepphólum, Egilsson, segir frá Krossreið í annálum
sínum:
„Hans son (þ. e. Eiríks Loftssonar) hét Þorvarður. Hann var
fyrirmaður að Krossreið; sá hét Magnús þar var fyrir. Þeirri reið
var svo vart, að Magnús á Krossi anzaði því: „hvort meyjarnar
sæti heima í Dal?“ - Þorvarður tók sér það til hugmóðs og sat um
líf hans, þar til góðir menn sættu þá. Sú sætt var svo sterk, að þeir
vökuðu sér báðir blóð í eina skál og var svo hellt í bjór, og drukku
það báðir. En á þriðju nóttu þar eftir, gerði Þorvarður sig heiman
og reið út til Kross og braut upp bæinn, en húsfreyjan bar Magnús
undir kápu sinni og ætlaði að koma honum í kirkju, cn einn hratt
við henni og sagði hún væri „síðubreið“, og hún féll, en bóndinn
hljóp til kirkju í einni skyrtu, þeir eftir honum. Það er sumra sögn,
að þeir hafi höggvið af honum hendurnar í kirkjuhringnum, en
sumir segja þeir hafi dregið hann þaðan og út yfir kirkjugarðinn
og drepið hann þar. Eftir það voru þeir allir gerðir útlægir, dræpir
og deyðandi, hvar sem þeir væru. Ævilok þcirra svo, að Þorvarður
og tveir með honum urðu úti á sandinum fyrir utan Þykkvabæjar-
klaustur, en hinir aðrir dóu í sulti.1'1)
Síra Jón skráir annála sína um 130 árum eftir lát Magnúsar. Hann
er ónákvæmur heimildarmaður og mörg sögnin brjálast á skemmri
tíma en rúmri öld.
Samt sem áður má í hcnni eygja orsökina til Krossreiðar. Þor-
varður Eiríksson var sonur Eiríks á Grund í Eyjafirði, Loftssonar
1) Safn til sögu íslands I, bls. 115-116.
8
Goðasteinn