Goðasteinn - 01.09.1965, Qupperneq 22
síðan Magnús heitinn Magnússon bjó ekki sjálfur á Völlum, en
Guðmundi var dæmdur endurheimturéttur af erfingjum Magnús-
ar. 2) Af dómi þessum verður ráðið, svo sem Árni Magnússon segir
í athugascmd sinni við skjalið, að Helgi lögmaður á Stóru-Völlum
á Landi, Oddsson, hafi haft jarðaskipti við Magnús á Stóru-Völlum
og Krossi, og á Stóru-Völlum hefur Magnús síðast búið. Hann hefur
ekki orðið gamall maður, vart eldri en fimmtugur. Kona hans er
ókunn, en af börnum hans þekkja menn nú Jón b. í Moldartungu í
Holtum og Eyjólf lögréttumann í Rangárþingi.
f Sýslumannaævum, IV. b. bls. 223 er sú tilgáta borin fram, að
Magnús á Krossi hafi verið sonur Jóns Narfasonar Péturssonar
Þórðarsonar í Haga á Barðaströnd Gíslasonar, og er þar sagt, að
ekki sé þar rúm til að rökstyðja þá ættfærslu frekar.
Tilgáta þessi hefur ekki við nein rök að styðjast, svo ég viti.
Jón sá, Narfason, sem virðist vera hafður í huga sem faðir Magnús-
ar, er ekki að neinu leyti líklegur til að vera það. Engar heimildir
eru fyrir því, að hann hafi verið sonur Narfa Péturssonar og Pétur
Þórðarson var áreiðanlega ekki meðal barna Þórðar í Haga, Gísla-
sonar, svo sem sjá má af ritgerð minni í Nýjum Kvöldvökum um
Hagaætt (fslenzkir ættstuðlar). Hinsvegar er það rökrétt ályktun,
að Jón á Núpi hafi verið skilgetinn sonur Magnúsar.
í íslenzkum æviskrám, ÍIÍ. b. bls. 430, er Magnús talinn vera
sonur Jóns Narfasonar lögmanns, Sveinssonar. Sú fullyrðing er jafn-
órökstudd sem hin fyrri, og eru satt að segja engar líkur fyrir þeirri
ættfærslu, hvorki á Magnúsi né Jóni Narfasyni.
Það verður því enn að sætta sig við það, að Magnús verði óætt-
færður um sinn og að litlar líkur séu til þess, að fundin verði ætt
hans. Hitt er alveg víst, að hann hefur verið af stórbændaættum, og
sennil. hefur hann einhvern veginn verið návenzlaður Ólöfu Lofts-
dóttur og Þorleifi Björnssyni.
2) D. I. IX, 281-283.
20
Goðasteinn