Goðasteinn - 01.09.1965, Page 48
Ljósmóðurumdæmi Kristínar var A.-Landeyjasveit, vatnalaus er
hún að vísu en var votlend mjög, áður en framræsla kom til sög-
unnar, og var sú eina undantekning, er ísar lágu á mýrlendinu.
Kristín tók upp þann sið, sem fágætur var þá, að hún reið í hnakk,
sem karlar, og þótti hentugra í misjöfnum veðrum og færð en að
nota söðulinn, sem þá var algengt reiðver kvenna. - Kristín
var mjög elsk að hestum, og áttu þau Bakkahjón góða hesta og
höfðu yndi af þeim bæði.
Stundum var Kristín sótt til sængurkvenna á Hólmabæjum í
V.-Eyjafjallahreppi, og var þá yfir Ála að fara - ein af kvíslum
Markarfljóts - en hinsvegar Hólmabæja liggur Markarfljót sjálft og
var oftsinnis illvígur farartálmi, sem gat hindrað að sótt væri ljós-
móðirin undir Fjöllunum. En slarksamt gat líka verið yfir Álana
að fara og skal hér birt ein frásögn af því og bendir til þess hversu
Kristín, sem sjálf varð 8 barna móðir, gat átt örðugt um vik, er
til hennar var leitað, þótt eigi léti hún það aftra sér. Kristínar var
vitjað vegna konu á Hólmabæjum efri, og var það í nóv., nátt-
myrkur var og illt að greina botninn í Álunum. Lenti hestur Krist-
ínar í sandbleytu, og tók að brjótast um. Varð Kristínu tregt um að
losna fram af hnakknefinu, er hún þurfti að fara af baki. Hún átti
þá sjálf barn í vonum og var þungfær orðin. Gekk í þessu þófi um
stund. Kenndi Kristín þrauta í þeim barningi, og er hún komst frá
hestinum lagði hún sig á eyrina, meðan sársaukinn var að líða frá.
Hjálpaði fylgdarmaður hcnni svo á hest og hélt hún áfram fcrðinni
og gat liðsinnt sængurkonunni. En nál. tveimur mánuðum síðar ól
Kristín tviburana.
Á bæ einum { umdæmi Kristínar var verið að byggja baðstofu að
vorlagi, en það varð fyrr, að húsfreyja þurfti að ala barn, en bygg-
ingin væri komin undir þak, og var til ráðs tekið að búa um sængur-
konuna í heyhlöðu og hlúa að henni eftir föngum. Ljósmóðirin var
sjálf þunguð og varð henni fyrir að litast um, hvar hún gæti lcgið,
ef bráðan bæri að, því hún kenndi sárra þrauta er hún steig af
hestbaki. Ekki kom til þess að hún þyrfti sjálf að leggjast þarna,
en 14 dögum síðar, en hún sat yfir konu þessari, ól hún elztu dótt-
ur sína.
Þá er Kristín fæddi annað barn sitt, en það var á jólaföstu, varð
46
Goðasteimi