Goðasteinn - 01.09.1965, Síða 69
laus alda, scm kallast Ónýtafell. Vestan undir því er dálítið vatn,
nafnlaust; það hefur þó af sumum verið Ónýtavatn fremra. Suð-
austan Skálafells er slakki milli Snjóöldufjallgarðs og Snjóöldu, og
syðst í því er gríðarhár móbergsdrangur, sem heitir Nátttröll, stund-
um nefnt Tröllið (nefnt Göndull í Ferðabók Sveins Pálssonar).
Snjóöldufjallgarður nær inn að Svartakambi, eins og fyrr segir, en
austan í honum, röskan klukkustundar gang inn frá Tröllinu, er
gamall mannabústaður, á móts við suðurenda Grænavatns. Hann
fannst föstudaginn í 22. viku sumars 1936 af Ingvari Árnasyni á
Bjalla og Óskari Jónssyni í Holtsmúla. Skammt innar er hár berg-
standur, sem nefnist Sköflungur. Sunnan við Tröllið tekur við sjálf
Snjóalda, og er hún örnefnasnauð, nema Bólið og Bólbrekka syðst
í henni. Suðvesturendi Snjóöldu nefnist Snjóölduhorn. Þar suð-
vestur af eru Austur-Bjallar, og þar um slóðir er Austurkrókur.
Syðstur Austur-Bjalla er stakur hnúkur, sem kallast Hnaus. Norð-
vestur undan Snjóöldu etSnjóölduvatn (dýpst „23 m, á örlitlum
bletti suðvestur af tánni á langa nesinu“); liggur það meðfram
Snjóöldu um miðbik og við rætur hennar. Vatnið er stærst allra
Veiðivatna að undan skildum Litlasjó. Við norðausturenda þess er
allstórt grasver, sem heitir Snjóölduver, en austasti hluti vatnsins
kallast Botn. Við norðvesturenda Botnsins er allstór vík, og hcitir
þar Bátseyri. Tvö stór öldunef ganga suður í vatnið; heitir hið
nyrðra Hellisnef, en hið syðra Mosanef, en milli nefjanna er stór
pollur vestur úr vatninu, og rennur 20 faðma breið kvísl á milli,
sem heitir Mjóddin. Þar drukknaði 1. ágúst 1930 Þorsteinn Jónsson,
lyfjafræðingur úr Reykjavík. Mosanefið er mun stærra, og gengur
suður í vatnið, fyllilega í miðju þess. Suðurhluti vatnsins kallast
Suðurbotn; þar er smáhólmi nafnlaus. Vestasti hluti vatnsins kallast
Snjóölduvatnskjaftur; þar rennur úr vatninu kvísl, sem Snjóöldu-
vatnskvísl heitir. Rennur hún í Tungnaá, sem er litlu neðar. Kvíslin
og áin mætast á móts við Svartakrók, sem er framan ár. Litlu vestar
rennur Vatnakvíslin í Tungnaá. Fyrrum var lítið vatn suður með
Snjóölduvatnskvísl og hét Fremra- eða Litla-Snjóölduvatn, en hefur
fyllzt af framburði úr Tungnaá. Norðan við Bátseyrina á Snjóöldu
er allhá alda, nafnlaus, en norðan við hana stór pollur, umluktur
öldum, og heitir hann Arnarpollur (dýpstur „22 m, undir vestur-
Goðasteinn
67