Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 74
74
Sama sumarið, sem Gissur Þorvaldsson ljet í haf til
þess að þinga við Hákon konung, kom f’órður kakali
Sighvatsson aptur til íslands og tók land 6. septbr. norð-
ur í Eyjafirði. Þórður hafði farið utan 1237 og dvalið
liiun fyrsta vetur i F’rándlioimi, en sumarið 1238 fór
hann til Björgynjar á fund honungs. F’órði hefur eflaust
verið nokkuð kunnugt um viðskipti Sturlu bróður síns
og konungs. Fyrir því hefur liann sjerstaklega fýst að
heimsækja konung og vænt góðs af honum. En í Björgyn
komst Fórður kveld eitt í skytningi í handalögmál við
nokkra handgengna menn konungs; voru þeir allir ölvaðir,
en Þórður óspakur við öl. Hann var hraustur maður
og harðgjör, og fóru konungsmenn mjög vanhluta fyrir
honum. Daginn eptir sögðu þeir konungi frá þessu, og
lagði hann fæð á Þórð, en samdi þó um málið.
Um haustið spurði Þórður fall föður síns og bræðra
sinna; var þá fjárhagur F’órðar orðinn mjög óhægur, því
hann hafði haldið sig kappsamlega. Fjekk hann nú ekk-
ert fje að heiman og átti hann við mikla þröng að búa,
þangað til Aron Hjörleifsson bauð honum til sin. Nokkru
síðar gengu þeir á konungsfund og reyndi Aron að koma
Þórði í meiri kærleika við konung, en það tókst eigi.
Þó vildi konungur eigi leyfa Þórði að fara úr landi burt
nje leita til annara höfðingja. En um jólin (1238) bauð
konungur þeim Aroni til sín og ljet hann Þórð síðan
vera eptir með sjer. Var t'órður síðan með konungi
nokkra vetur, þangað til hann fór til íslands (1242).1
1) Sturl. II, 343—46 (Aronssaga). Þess er getið í Frísbók,
bls. 509—10, þá er Hákoni unga var gefið konungsnafn á þingi í
Björgyn 12. april 1240, að þar sóru eiða lendir menn, bændur
úr öllum Gulaþingslögum „ok af Orkneyjum, Hjaltlandi og
íslandi.“ íslandi er að líkindum skotið inn seinna, því það stend-
ur eigi í öðrum helztu handritum, sbr. Eírsp. 377; Flat. III,
144; en ef nokkuð satt væri í þessu, þá hafa að eins einstaka