Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 93
93
ur sem hann hefði setið kyv heima og hætt á, hveniig
fara mundi, en nú var eigi fvi að heilsa. Hann hafði
eigi heldur þann styrk andans og íáðvendni til þess að
gjöra slíkt, og fyrir því afrjeði hann, að hlýðnast Noiegs
konungi og fara á hans fund. En til þess að vinna hylli
hans, vann Þórður sitt versta verk. Hann fór suður á
Rangárvelli sumarið 1269, kom að Hvoli um nótt. Þar
hjó Philippus Sæmundsson frá Odda; neyddi Þórðurhann
fil að festa sjer utanferð sína þá um sumarið. Líkt fór
í'órður að við Harald Sæmundsson í Odda og neyddi
hann til að fava utan samsumais. í’eir bræður voru
þó mágar Steinvarar, systur Þói ðar. Þeir voi u friðsemd-
armenn og höfðu eigi tekið þátt í hinum rniklu deilum
meðal atmara höfðingja landsins, en þeir höfðu eigi held-
ur viljað þjóna I’órði nje öðrum höfðingjum.
Sumarið 1249 rak I’órður einnig utan Orm Bjarnar-
son frá Breiðabólsstað. Hann andaðist árið eptir í Nor-
egi.
Síðan tók Þórður að búast utan. Hann hafði vina
boð á Grund í Eyjafirði, og sóttu þangað Hrani Koðráns-
son, Eyjólfur Þorsteinsson, Hrafn Oddsson, Sturla I’órð-
arson, I’orleifur úr Görðum, Sæmundur Ormsson. Skipti
I’órður þá ríki með þeim; skyldi hver þeirra veita öðrum
ef nokkuð þyrfti við, og fyrir engum skyldu þeir laus
láta ríkin, nema brjef Pórðar kæmi tii eða hann sjálfur.
Fyrir Eyjafirði átti Hrani að vera, og taka við búi á
Grund, en Eyjólfur fyrir Skagafirði og Húriavatnsþingi og
búa í Geldingaholti. í’orleifur skyidi vera fyrir Borgar-
firði, og er auðsjeð af skiptingunni, að þetta voru þau
hjeruð, sem I’órður eignaði sjálfum sjer. Sturla og
Hrafn áttu ríki við Breiðafjörð og Vestfirði, og er þess
eigi getið við skiptinguna, að þeir tækju önnur ríki af
I’órði, en þeir samþykktu þessa skipun I’órðar, að minnsta
kosti með Borgarfjörð. Sæmundur Ormsson skyldi vera