Skírnir - 01.12.1917, Blaðsíða 3
Trúarhugtakið
eins og vér kynnumst því í ritum nýja testamentisins.
Synoduserindi flutt í dómkirkjunni i Reykjavik 27. júní 1917
af
Sigurði P. Sivertsen prófessor.
Ef spurningin: »Hvað er trú?, hvað felst i þvi
hugtaki?«, væri lögð fyrir þá, sem hér eru viðstaddir,
myndi flestum að líkindum finnast auðvelt að svara þeirri
spurningu. Flestir myndu koma með skýringu sína án
þess að hika mikið eða vera í miklum vafa um, að skýr-
ing þeirra væri rétt. En ef svörin ýmsu væru skrifuð
upp eða borin saman, myndi margan furða á, hve marg-
breytileg þau væru og að mörgu ólík.
Þetta stafar eðlilega af því, hve trúarhugtakið er
víðtækt og margþætt, og má þvi skoða frá mörgum
hliðum.
Þar kemur til athugar bæði t r ú a r þ e 1 i ð, trúar-
lundin, með hinum mismunandi og margbreytilega styrk-
leika og innileika trúarinnar, og svo á hinn bóginn einnig
trúarandlagið, hverju trúað er, trúarkenningin, trúar-
sannindin, trúarhugmyndirnar margbreytilegu.
Þegar um trúarhugtakið er að ræða, getur einnig
komið til athugunar bæði hvað trú sé alment, og svo
hitt, hvað einkenni sérstaklega trúna i kristilegum skiln-
ingi.
Þar getur enn fremur komið til athugunar, hvernig
trúin heflr birzt á hinum ýmsu tímum og hjá hinum ýmsu
22