Skírnir - 01.12.1917, Blaðsíða 98
432
Ritfregnir.
[Skirnir
og er tillaga hans; aS landið kaupi 4 strandferSaskip sem fari hring-
ferðir kringum landiS, en á stœrstu flóum og fjörðum sóu látnir
ganga stórir vélbátar. Landpóstar gangi svo frá helztu höfnum
■ upp í sveitir, en hringferðir pósta sóu lagðar niður. Yfirleitt sóu
• samgöngur á sjó efldar á allan hátt, en ekki lagt út í járnbrautar-
dagningu fyrst um sinn. Kemur þetta vel heim við skoSanir margra
iiun að gera öllum hóruðum landsins jafnhátt undir höfði. Enn má
inefna í þessu hefti ritgerð Sigurgeirs FriSrikssonar um póstsamband,
|þar sem komið er meS tillögur um fyrirkomulag póstferða til sveita
irneS hafnapóstum og sveitapóstum.
I þriðja heftinu eru ýmsar veigamiklar greinar. Benedikt
Bjarnason ritar um trygging búfjár meS heyfyrningasjóðum um land
alt, Páll Zóphóníasson skvrir frá jarðarleigu og leiguliSakjörum fyr
og nú, Benedikt Bjarnason ritar um ábúð og leiguliðarétt og synir
fram á hin erfiðu kjör leiguliða, Jón Gauti Pótursson ritar um
jþjóSjarðasölu og landleigu, óvenju vel ritaða grein, þar sem hann
kemst aS þeirri niðurstöSu að afhenda eigi þjóðjarðir til lögfullrar
eignar og umráSa, útborganalaust, en með leigutökurótti á þáver-
andi verði jarSarinnar og jafnframt þeirri verShœkkun, sem í ljós
kæmi í framtíSinni og væri fyrir tilverknað þjóSfólagsins. Hór viS
mætti bæta að leggja skyldi leiguna í sjóS og nota hann — ef til-
raunin tækist vel — til aS kaupa upp jarðir fyrir landssjóð og
i.koma á þær samskonar ábúS. Auk þess stingur sami höf. upp á
llandskatti í samræmi við Henry Gcorge. Slíkur skattur mun þó
-varla vera framkvæmanlegur hór á landi fyrst um sinn nema þá i
ikauptúnum eSa þar sem landið eða hóruðin leggja fram fó til at*
vinnubóta. Síðast en ekki sízt má geta ritgerðar eftir Jón Sigurðs-
son, »nýir straumar«, sem virðist vera einskonar heildaryfirlit yfir
-kenningar þær, sem »Réttur« hefir haldið fram.
»Róttur« er ádeilurit. Engin von er um, aS kenningar þær,
- sem hann flytur, sigri baráttulaust. En þeir, sem aS honum standa,
, munu vilja taka undir meS Björnsson:
. . . fred er ej det bedste
men at man noget vil.
Héðinn Valdimarsson.