Skírnir - 01.12.1917, Blaðsíða 6
340
Trúarhugtakið.
[Skírnir
(8, 48). En orðalagið er hjá Mt.: »Vertu hughraust dóttir,
trú þín hefir gjört þig heila« (9, 22).
Meðan Jesús enn var að mæla við konuna, komu
menn frá samkundustjóranum Jairusi og segja
honum lát dóttur hans og biðja hann að ómaka meistar-
ann ekki lengur. En Jesús gaf eigi gaum að orðum
mannanna, en sagði við samkundustjórann: »V e r t u
e k k i h r æ d d u r, t r ú ð u a ð e i n s« (5, 36). Orðin
eru eins hjá Lk. (8, 50), en vantar í hliðstæða stsðinn
hjá Mt. (9).
Þá höfum vér t v e n n u m m æ 1 i um trúna i 9.
kap. Mk.guðspj. önnur eru í viðtali við föður
flogaveika piltsins, sem hafði komið með son
sinn til lærisveina hans, en þeir ekki getað læknað.
Jesús lét þá færa piltinn til sín og spurði föðurinn, hve
lengi drengurinn hefði verið veikur af flogaveiki sinni.
Faðirinn segir Jesú það og biður hann að sjá aumur á
þeim og hjálpa piltinum, ef hann geti nokkuð. Þá sagði
Jesús eftirtektaverðu orðin: »Ef þú getur! Sá getur
a 11, s e m t r ú n a h e f i r« (9, 23).
Hin ummælin í þessum kap. eru i viðtali Jesú við
lærisveinana, þar sem hann segir: »Hver sem hneykslar
einn af þessum smælingjum, s e m á m i g t r ú a, betra
væri honum að honum væri varpað í hafið með stóran
kvarnarstein um hálsinnc (9, 42; sbr. Mt. 18,6).
I næsta kap. Mk.gu ð s p j. er sagt frá lækningu
Bartímeusar, b 1 i n d a b e i n i n g a m a n n s i n s, er sat
við veginn v i ð J e r í k ó. Maður þessi kallaði til Jesú,
er hann fekk að vita, að hann færi fram hjá, og bað
hann að gefa sér aftur sjón sína. Við hann sagði Jesús:
*Far þú leiðar þinnar, trú þin hefir gjört þig
keilan« (10,52). L ú k. orðar ummælin: »Verð þú aftur
sjáandi! trú þín hefir gjört þig heilan« (18, 42).
í 11. kap. Mk. eru eftirtektaverðu orðin, sem Jesús
sagði við lærisveina sína, þegar Pétur benti honum á
visnaða fíkjutréð: »Trúið á guð. Sannlega segi eg
yður, hver sem segir við fjall þetta: Lyftist þú upp og