Skírnir - 01.12.1917, Blaðsíða 45
•'Skírnir]
Þjóðfélag og þegn.
379
tekjur, sem þeir gefa, og ennfremur þróast þessir skattar
•engan veginn í hlutfalli við blómgun atvinnuveganna né
■bættan efnahag. Að öðru leyti má heita,*að þeir full-
mægi sæmilega ytri skilyrðum fyrir skatti, en eins og síð-
ar mun sýnt fram á, eru ýmsar innri orsakir þess vald-
andi, að þessir skattar koma ekki vel niður.
Þó útflutningsgjöld sé í rauninni alt annars eðlis en
aðfiutningsgjöld, og hafl alls ólíkar verkanir, þá ioðir við
þau samskonar annmarki, að eins og aðflutningsgjöld gefa
aðstöðu til að h æ k k a vöruverð um þörf fram, g e t a
útflutningsgjöld notast sem ástæða til að d r a g a af verði
útfluttra vai'a þ a r sem verzlunarhættirnir leyfa það.
Eins og siðar mun bent á er og varhugavert og ekki
réttlátt að leggja skatta á í hlutfalii við framleiðslu manna
■ og persónulega atorku. Gildir það líka um lausafjárskatt-
inn og fleiri skatta.
Tekjuskatti (einkum af eign) og þvi fremur erfðafjár-
skatti, má telja það til gildis, að þeir koma róttlátast nið-
ur þeirra skatta, sem hér er um að ræða. En bæði þeim
og lausafjárskattinum má flnna það til foráttu, að gjald-
stofninn er hvorki augljós né ábyggilegur. Ef skattanið-
urjöfnun og innheimta byggist annarsvegar á heiðarleik
manna og þegnfélagslund við framtal og mat á eigin eign-
um, en hinsvegar á nákvæmni og ráðvendni skattkrefj-
anda, þá er báðum aðilum næstum gefinn laus taumur
með undandrátt og tilhliðrun, þar sem við verður komið.
Það er nefnilega augljóst, að frarntal manna á tekjum og
lausafé getur oft og tíðum engu eftirliti orðið háð,
enda er ýmsum tekjuskatts- og framtalsskýrslum viðbrugð-
iðj þó lítill rekstur sé að því gerður né slíkt vitt opinber-
lega. Eins má á ýmsan hátt liaga arfaskiftum þannig,
&ð skattur faili öðruvísi á en lögin ætlast til. Má geta
uærri hve óheppilegt það sé að gefa lægri hvötum rnanna
þannig svigrúm í viðskiftum við lnð opinbera, og er mikils-
varðandi fyrir viðskiftasiðgæði þjóðarinnar, að skattarnir
:oefi ekki tilefni til slíks.
Hér er samt sem áður um þá skatta að ræða (tekju-