Skírnir - 01.12.1917, Blaðsíða 52
386 Þjóðfélasj og þegn. [Skirnir
orðið er heilsuspillandi vegna fúa og kulídla og ósamboðið'
réttmætum kröfum — hvað kemur þá frarn? Fyrst og:
fremst þarf hann að greiða skatt (vörutoll) af öllu efni til
hússins; í öðru lagi þurfa þeir, sem húsið smíða, hærra-
kaup, af því skattar hvíla á flestum lífsnauðsynjum þeirra,,
og svo þegar húsið er fullgert, þarf eigandinn að greiða
af því húsaskatt. Sé nú tekinn samanburður við B., sem
eftir sem áður býr í álíka húsakynnum og A. áður, og var
álíka efnaður, þá er fátt augljósara en að hér er beinlínis-
lagt á framtak og atorku, en ódugnaður og aðgerðaleysí
verðlaunað. — Hið sama kemur fram um hvert annað
framfarafyrirtæki sem er, eða aukna framleiðslu: Því
meir sem búskapur bóndans blómgast í höndum hans, þvt
meiri afla sem sjórnaðurinn fær o. s. frv., því hærri skatta
þurfa þeir að gjalda eftir gildandi skattaskipulagi.--------
Nú er það auðsætt, að allir skattar, sem leggjast á
framleiðslu og framkvæmdir, draga úr hvötinni til fram-
leiðslu og starfa og verða þannig eins og hemill á frarn-
faraviðleitni þjóðarinnar. Þurfi skattar að hvíla á vinnu,
veltufé eða búskap, þá væri ólíkt affarasælla að þeir legð-
ust b e i n t á vinnu k r a f t i n n, hvort sem hann væri
notaður til gagns eða gamans — á veltuféð (kapitalið) án
tillits til hvort eigandinn hefir lag á að láta það bera arð
eða ekki, og á búskapar aðstöðuna, án tillits til hvernig
hún væri notuð. Slíkir skattar myndu þó síður draga úr
framleiðslu og starfsemishvötinni en hinir, sem leggjast á
i hlutfalli við dugnað manna og framtak.
En hvar og hvernig á þá að taka fé til almennra
þarfa, ef öllum þeim aðferðum, sem hingað til hafa verið
notaðar, er ábótavant?
Hér stendur hið a I m e n n a gagnvart hinum e i n-
staka — þjóðfélagið gegn þegninum — og þá er rétt
að snúa þeirri kröfu við, sem hann gerir til þess: Hann
krefst ekki einungis að þjóðfélagið (þ. e. ríkið) verndi líf
hans, limi og eignir, heldur og veiti honum aðstoð til að
hafa fullan og óskertan arð atvinnu sinnar og framleiðslu,.
svo hann geti uppskorið þar sem hann sáir. Sé þeirri