Skírnir - 01.12.1917, Blaðsíða 51
íSkirnir]
Þjóðfélag og þegn.
385
llands og sjávar. Og ekki nóg með það; þeir þyrftu
ilíka að geia jafnmikið fyrir þjóðfélagið: ala upp
jafnmörg börn, sjá fyrir jafnmörgum gamalmennum o. s.
'frv. — Slík skilyrði e i n réttlættu þá kröfu, að allir borg-
uðu jafnt til opinbeira þarfa. — Samskonar skilyrði þyrfti
• að vera fyrir hesndi til að réttlæta þá skatta, sem koma
fram eins .og hundraðsgjald á tekjur manna, hvort sem
:þær eru meiri eða minni, en svo má telja að þeir skatt-
ar geri, sem miðast við atvinnuarð og framleiðslu.
Ætla mætti að sú viðleitni, sem komið hefir fram hér
á landi um það, að skattleggja flest sem nöfnum tjáir að
mefna, hefði haft að markmiði að rekast með því á ein-
hvern heppilegan skattstofn. En hún hefir þá ekki náð
'þeim tilgangi sinum, því það, hve mörg nöfn skattarnir
!bera að lögum, sannar ekkert um af hvaða tekjustofni
'þeir greiðast a ð lokum, þegar einn er búinn að velta
þeim á annan. Ef því er fylgt eftir með gaumgæfni
hvernig skattgreiðslan kemur niður í r e y n d i n n i, mun
•koma í ljós það sem sýnt hefir verið fram á, að 8/5 hlut-
ar skattgjaldanna hvíla á og miðast við n e y z 1 u lands-
manna eða þarfir, en hinn hlutinn langdrægt sem kvöð
á a t v i n n u þeirra og f r a m 1 e i ð s 1 u.
Nú kynni einhver að segja, að ekki verði gjöldin
greidd með öðru en tekjunum af atvinnu eða framleiðslu.
Það er og mikið rétt, eins og skattarnir eru á lagðir, en
það er allur skilsmunur á þvi, hvort skattþegninn borgar
gjöldin m e ð þ v í sem hann framleiðir, eða vinnur sér
inn, eða i beinu hlutfalli við hve það er mikið. —
Hér kemur þvi gamla skattamálastefnan fram í einni
setningu: Undir því yfirskyni að skattleggja eftir efnum
°g ástæðum, verður f r a m t a k manna aðalskattstofninn,
'°g þá ekki síður með tilliti til nefskattanna, sem
hvila eins og sektir á þeim, sem ala upp æskulýð lands-
lins, en létta undir með þeim, sem ekki hafa nema fyrir
'Sjálfum sér að sjá. Því til sönnunar, að skattarnir leggist
■á framtak manna og atorku, mætti leiða mörg dæmi. Ef
hyggir hús — t. d. íbúðarhús í stað þess gamla, sem
25