Tímarit lögfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 16
a) Leiðarar (forystugreinar / formálar)
b) Minningargreinar um látna lögfræðinga
c) Fræðigreinar
d) Fregnir af dómstólum, nýrri löggjöf o.fl.
e) Bóka- og ritfregnir
f) Fregnir sem varða lögfræðingastéttina
g) Annað - Auglýsingar
a) Leiðarar (forystugreinar/formálar)
Sem fyrr segir var fyrsta tölublaði Tímarits lögfræðinga fylgt úr hlaði með
eins konar formála eða ávarpsorðum stjómar Lögmannafélags Islands. Þá
fylgdi ritstjóri fyrsta tölublaðsins því úr hlaði með nokkurs konar leiðara. Þeg-
ar þessu fyrsta tölublaði sleppir var almenna reglan sú að ekki var að finna í ein-
stökum tölublöðum leiðara. Þess má þó geta að í 1. hefti 1953 er að finna stutta
grein eftir ritstjórann Einar Amórsson sem hann nefnir „Gagnrýni dómsúr-
lausna“.17 Líta má á þessa stuttu grein sem eins konar forystugrein eða leiðara
þótt ekki sé víst að Einar hafi haft það í huga. Tilefni greinarinnar virðist hafa
verið tveir dómar Hæstaréttar, annars vegar í svokölluðu refafeldsmáli, sbr. H
1949 3 og hins vegar dómurinn í Hrafnkötlumálinu, sbr. H 1943 237. Nokkrar
almennar umræður urðu um þessa dóma og voru ekki allir á einu máli um ágæti
þeirra. Umræður um gagnrýni á dómstóla og dómstörf eru kunnar frá seinni ár-
um. Meginþráðurinn í hugleiðingum Einars kemur fram í þessum orðum:18
Og muna mega menn það, að málfrelsi og ritfrelsi er löghelgað og í heiðri haft í
þessu landi. Og því er gagnrýni á hverri ríkisstofnun heimil, og handhöfum ríkis-
valdsins yfirhöfuð skylt að þola rökstudda og áreitnislausa gagnrýni. jafnt handhöf-
um dómsvalds sem öðrum.
Af þessari grein spratt síðan fyrsta ritdeilan sem segja má að tímaritið hafi
verið vettvangur fyrir. Grein Einars varð síðar tilefni skrifa af hendi Áma
Tryggvasonar hæstaréttardómara sem lagði nokkuð aðrar áherslur en Einar.19
Geta má þess að Ámi sat í ritnefnd tímaritsins á þessum tíma. Grein Áma varð
síðan aftur tilefni til svara af hálfu Einars20 sem aftur kallaði á svör frá Áma.21
Næst birtist eins konar leiðari eftir Theodór B. Líndal í 1. hefti 1954 en hann
tók þá við ritstjóm tímaritsins. Aftur birtist leiðari (ávarpsorð) í 1. hefti 1960 frá
Lögmannafélagi Islands annars vegar og Ármanni Snævarr, fyrsta formanni
17 Einar Arnórsson: „Gagnrýni dómsúrlausna". Tímarit lögfræðinga. 1. hefti 1953, bls. 1-4.
18 Sama heimild, bls. 3.
19 Arni Tryggvason: „Aðstaða dómara til andsvara við gagnrýni". Tímarit lögfræðinga. 4. hefti
1953, bls. 193-200.
20 Einar Arnórsson: „Nokkrar athugasemdir við grein Ama Tryggvasonar". Tímarit lögfræðinga.
l.hefti 1954, bls. 50-56.
21 Arni Tryggvason: „Athugasemd". Tímarit lögfræðinga. 2. hefti 1954, bls. 103.
272