Tímarit lögfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 76
þjkpl. Ákvæðið kemur þannig í veg fyrir, að skyldur neytanda skv. 1. og 2. mgr.
verði meiri en nemur því verði sem samið hefur verið um.
6.5 Heimild til að falla frá samningi
Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000, um húsgöngu- og fjarsölusamninga
(húsg.fjsl.), skuldbindur húsgöngu- og fjarsölusamningur ekki neytanda fyrr en
fjórtán dögum frá gerð hans, og er neytanda heimilt að falla frá samningi innan
þess frests, án þess að tilgreina nokkra ástæðu eða greiðslu viðurlaga. Fjarsölu-
samningur er samningur seljanda og neytanda um kaup á vöru eða þjónustu, sem
gerður er með fjarskiptaaðferð. Hafi neytandi notfært sér slíkan rétt, sem um
ræðir í 1. mgr. 8. gr., er seljanda samkvæmt ákvæðum 2. mgr. skylt að endur-
greiða honum án nokkurs kostnaðar þær greiðslur, sem hann hefur innt af hendi.
Slík endurgreiðsla skal fara fram eins fljótt og kostur er og eigi síðar en eftir
þrjátíu daga. Neytanda ber að skila eða endursenda seljanda vöruna. Eingöngu er
heimilt að krefja neytanda um greiðslur vegna beins kostnaðar við að skila vör-
unni. Ef neytandi notfærir sér rétt til að falla frá samningi samkvæmt þessari
heimild, falla úr gildi allir lánssamningar, sem hann hefur gert við seljanda eða
þriðja aðila, sem hefur haft milligöngu unr að veita lán í tengslum við kaupin,
sbr. 3. mgr. 8. gr. Frestur til þess að beita framangreindum rétti til að falla frá
samningi telst samkvæmt 9. gr. húsg.fjsl. frá þeim degi, sem neytandi veitir vöru
viðtöku, eða ef um er að ræða þjónustu, frá þeim degi sem samningur er gerður,
þó aldrei síðar en frá og með sjötta degi eftir gerð hans, og seljandi hefur
fullnægt upplýsingaskyldu sinni.
Húsgöngusala rnerkir samkvæmt 3. tl. 2. gr. húsg.fjsl. sölu á vöru og þjónustu,
sem seljandi skipuleggur utan fastrar starfsstöðvar sinnar, svo sem á heimili
neytanda eða vinnustað hans, og neytandi hefur hvorki óskað eftir né var
kunnugt um, að afhending vöru eða þjónustu væri hluti af sölu- eða þjónustu-
starfsemi seljanda, svo og annars konar farandsala. Fjarsala merkir samkvæmt 6.
tl. 2. gr. skipulagða sölu á vöru eða þjónustu þar sem notuð er ein eða fleiri
fjarskiptaaðferð við gerð samnings, en fjarskiptaaðferð er samkvæmt 5. tl. sér-
hver aðferð, sem er nothæf til þess að stofna til samnings milli neytanda og
seljanda án þess að þeir hittist.
Ákvæði 8. gr. húsg.fjsl. taka ekki til eftirtalinna samninga: 1. Samninga um
þjónustu, hafi neytandi samþykkt að hún sé veitt, áður en frestur til að falla frá
samningi samkvæmt 8. gr. laganna er útrunninn. 2. Sanrninga um kaup á mynd-
böndum, hljóðupptökum eða hugbúnaði, hafi neytandi rofið innsigli seljanda. 3.
Fjarsölusamninga þar sem neytandi hefur sérpantað vöruna eða hún hefur verið
sniðin á annan hátt að persónulegum þörfum hans, eða ef eðli vörunnar er slíkt,
að hún mun skemmast eða verða útrunnin innan frestsins. 4. Fjarsölusamninga
unr þátttöku í happdrætti eða öðru löglegu spili.
Samkvæmt 1. gr. eiga lögin við um samninga um sölu eða leigu á vöru eða
þjónustu til neytenda, þegar seljandi hefur atvinnu af því að selja eða veita þjón-
332