Tímarit Máls og menningar - 01.10.1976, Blaðsíða 78
Tímarit Aíáls og menningar
Iítils komi núorðið að særa mikinn hluta
Islendínga við æru sína, hún sé sigin
niður á stað sem liggi nokkuð neðar-
lega og birtist einúngis í skrýtnum
myndum þegar henni þyki sér misboðið
(einkum bregzt hún illa við glensi).
Þetta er væntanlega rángt og byggt á
fáum og sorglegum dæmum. En þó satt
væri, þá er hart að ekki skuli vera hægt
að særa þá við líftóruna, þetta ljós sem
þrátt fyrir allt blaktir á skari innaní
sérhagsmunahítinni.
Til mótvægis öllum illum veðurblik-
um virðast herstöðvaandstæðíngar nú
efla samtök sín úngum kröftum og
ötulu starfi, og beita herstöðvamálið af-
dráttarlausari og gleggri skilníngi en
stundum áður. Þessi hreyfíng hefur oft
megnað að hrinda drúnganum úr hug-
um manna, en betur má ef duga skal.
Nú sem fyrr er lífsnauðsyn að smásmug-
Ieg ágreiníngsefni drepi ekki í dróma
þá staðreynd að markmið hreyfíngar-
innar er augljóst og eitt.
Þorsteinn frá Hamri.
Athugasemd.
Antonio D. Corveiras er Spánverji, búsettur á íslandi. Hann gaf út á þessu ári í
Reykjavík ljóðabókina Gradus ad Parnassum. Viðtalið við Borges er þýtt af Steinari
Arnasyni.
Frá aðalfundi félagsráðs Máls og menningar
Á aðalfundi félagsráðs fyrir árið 1975, sem haldinn var 6. október s.l., áttu að
ganga úr ráðinu: Anna Einarsdóttir, Gísli Ásmundsson, Halldór Laxness, Haukur
Þorleifsson, Magnús Kjartansson, Ragnar Olafsson, Snorri Hjartarson, Þröstur
Ólafsson. Voru þau öll endurkjörin. í sæti Sverris Kristjánssonar, sem lézt í byrjun
þessa árs, var kosinn Þorleifur Hauksson. — I stjórn voru kosin: Þorleifur Einarsson
formaður, Jakob Benediktsson varaformaður; Anna Einarsdóttir, Halldór Laxness,
Svava Jakobsdótdr. I varastjórn voru kosin: Óskar Halldórsson, Árni Bergmann,
Magnús Kjartansson, Guðrún Helgadóttir, Loftur Guttormsson.
280