Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ferdínand
Smáfólk
Vhov knooj ojhat
VOU SHOULP UJRITE?
YOU 5HOULP UJRITE
YOUR OU)N LIFE
5TORV..
3/15/00 A-1
THAT'S UJHAT YOU 5H0ULP DO,.
UURITE YOUR AUT0BI06RAPHY...
ALL YOU NEEP15 A 600P TITLE..
Veistu hvað þú ættir að skrifa um. Það er einmitt það sem þú ættir að
Þú ættir að skrifa sögu lífs þíns. skrifa um. Skrifa sjálfsævisögu.
Það eina sem þig vantar er gúður titill.
I
P
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sælureitur
o g frábær
þjónusta
Frá Ásgeiri Yngvasyni:
STARFSFÓLK prentsmiðjunnar
Ásprents/ Pob á Akureyri hélt sína
árlegu árshátíð helgina 10.-12. mars.
Að þessu sinni varð fyrir valinu
nýbyggt hótel að Skútustöðum í
Mývatnssveit. Þetta er staður sem
óhætt er að mæla með við hvern sem
er. Fjölskyldan, sem rekið hefur Sel-
ið á Skútustöðum um nokkurra ára
skeið, hefur verið að byggja þetta
glæsilega hótel í vetur. Við vorum
fyrstu gestirnir. Þarna eru 24 her-
bergi sem eru hvert öðru glæsilegra.
Hvert og eitt hefur sérsnyrtingu,
síma, útvarp, sjónvarp og einnig er
möguleiki á ISDN- tengingu á hvert
herbergi.
Við höfum farið á nokkra staði á
undanförnum árum, en þessi, að öðr-
um ólöstuðum, slær alla út. Fólkið
sem rekur þennan stað er fádæma
lipurt og var það á allra orði að þetta
væri einhver besta helgi sem fólk
hafði lengi upplifað. Kváðu sumir svo
sterkt að, að þarna skyldum við
halda okkar árshátíð í það minnsta
næstu tíu árin. Þarna er þjónusta öll
til fyrirmyndar, hægt er að fá hár-
greiðslu, nudd og ýmislegt annað
sem fólk hefur áhuga á. Afþreying er
nánast óþrjótandi, hægt ér að fara á
skíði, skauta, fara í jeppa- og/eða
snjósleðaferðir, eða bara gönguferð-
ir í fallegri náttúra. Yngvi Ragnar
sem er í forsvari fyrir staðinn tók að
sér að skipuleggja um það bil fjög-
urra tíma afþreyingu fyrir okkur á
laugardaginn. Tókst það eins og ann-
að þarna fádæma vel og var mann-
skapurinn virkilega ánægður.
Ekki má nú gleyma matnum, en á
laugardagskvöldið var hlaðborð með
um það bil 15 réttum sem skiptust í
forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Það
var samdóma álit manna að matur-
inn hefði verið frábær. Til marks um
það var ekki einn einasti maður úr
fimmtíu manna hópi sem hafði nokk-
uð út á hann að setja.
Þarna tekst með einhverjum
undraverðum hætti að skapa þannig
stemmningu að þér finnst þú alls
ekki vera „gestur", heldur líður þér
eins og þú eigir heima þarna.
Þetta er staður þar sem fara sam-
an sérstaklega góð þjónusta, góður
matur, gott verð, glæsilegt hótel og
síðast en ekki síst stórbrotin náttúra
allt í kring.
Þarna fá allir eitthvað við sitt hæfi
og er tilvalið fyrir hópa, pör eða ein-
staklinga að dvelja um lengri eða
skemmri tíma.
Fyrir hönd okkar allra sem þarna
vorum umrædda helgi vil ég þakka
kærlega fyrir okkur og óskum við
Yngva Ragnari og hans fólki alls
hins besta í framtíðinni. Þetta var
frábært!
ÁSGEIR YNGVASON,
framleiðslustjóri í
tölvupappírsdeild
Ásprents/Pob á Ákureyri.
Hjálparbeiðni
frá Rúmeníu
Frá Kristni Snæland:
NOKKRU fyrir síðastliðin jól barst
hingað neyðarkall frá Rúmeníu.
Prof. dr. Martha Banulescu, stofn-
andi og forseti félagsins „Nicolae
Balcescu", sendi þessa hjálpar-
beiðni.
Stofnunin eða félagið hefur tekið
að sér eftir mætti að annast yfir 200
AIDS-sjúk börn á aldrinun 2 til 14
ára, flest þó 8 til 13 ára.
Börnin dveljast á hjúkranarstofn-
un og skortir nánast allt annað en
þakið yfir höfuðið. Þessi sjúku böm
hafa verið yfirgefin af ættingjum,
nánast verið borin út og eiga engan
að. Þörf þeirra íyrir einhvern sem
þau gætu kallað vin er því mikil og
sár. Fyrsta skref í að svara beiðni
þessari gat því verið sú að senda smá
jólagjöf, eina eða fleiri sem ætlaðar
væra dreng eða stúlku. Þetta munu
margir hafa gert og komið þar með á
sambandi við tiltekna einstaklinga.
Ósk Mörthu Banulescu var sú að
sambandi yrði haldið áfram við þessi
böm, t.d. með því að senda stöku
sinnum póstkort eða afmæliskveðju.
Lítil gjöf, svo sem teikniblokk og lit-
ir, er og afar vel þegin í öllu allsleys-
inu.
Föt, skór, matvæli og leikföng era
á almennum óskalista frá stofnun-
inni, sem auk þess að sjá um það sem
áður er nefnt, reynir að gleðja börn-
in með stuttum ferðalögum, eins
dags eða fleiri. Peningar væru og vel
þegnir enda margfaldast kaupmátt-
ur krónunnar okkar við komuna til
Rúmeníu.
Sá hópur sem þegar hefur tekið
upp samband við „Nicolae Balescu“-
stofnunina mun halda fund um
áframhaldandi starf í Hreyfilssaln-
um í Fellsmúla 26, fimmtudaginn 23.
mars nk. kl. 20.30.
Allir velunnarar verkefnisins eru
hjartanlega velkomnir. Hafa má
samband við undirritaðan í síma
5577589 og 896-0635.
KRISTINN SNÆLAND,
Engjaseli 65,109 Rvk.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.