Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 21
Afkoma Sam-
herja lakari
en gert var
ráð fyrir
✓
Aformað að draga fyrirtækið út úr
rekstri í Bandaríkjunum
AFKOMA sjávarútvegsfyrirtækis-
ins Samherja hf. er mun lakari en
gert var ráð fyrir. Hagnaður sam-
stæðunnar árið 1999 nam 200 millj-
ónum króna, en var 706 milljónir
árið áður. Astæður lakari afkomu
má fyrst og fremst rekja til mjög
slakrar afkomu DFFU, dótturfé-
lags Samherja GmbH í Þýskalandi,
að því er fram kemur í frétt frá
Samherja. Þar kemur einnig fram
að félagið hyggst draga sig út úr
rekstri í Bandaríkjunum á árinu.
Rekstrartekjur Samherja-sam-
stæðunnar voru 8.887 milljónir
króna á liðnu ári, en voru 9.465
milljónir króna árið áður, og
rekstrargjöld voru 7.620 milljónir
króna, en voru 7.757 milljónir
króna árið 1998. Reikningsskilaað-
ferðir eru óbreyttar á milli ára.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrir tekju- og eignarskatt nam 77
milljónum króna, en var 589 millj-
ónir á árinu 1998. Veltufé frá
rekstri samstæðunnar var 881
milljón króna en var 1.397 milljónir
króna árið áður. Veltufé frá rekstri
móðurfélags var 1.027 milljónir
króna.
Heildareignir Samherja hf. í árs-
Basis-
bank.dk
kynntur
fjárfestum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANSKI Netbankinn, sem FBA
hefur keypt hlut í, var kynntur á
fjárfestingastefnu í Kaupmannahöfn
í gærkvöldi. Bankinn, sem fengið
hefur heitið Ba.sisbank.dk, verður
opnaður síðar á árinu, en umsókn um
rekstrarleyf! til hans liggur fyrir
danska fjármálaeftirlitinu að því er
segir í Bersens Nyhedsmagasin í
gær. FBA er stærsti hluthafinn í
bankanum, ásamt dönskum fjárfest-
um.
Þeir sem hafa tekið sig saman um
stofnun Basisbank eru fjórmenning-
ar, sem áður störfuðu hjá McKinsey-
ráðgjafarfyrirtækinu, A.P. Mpller-
samsteypunni, PBS, sem er
greiðslustofnun dönsku bankanna,
og Den Danske Bank. Stofnframlag-
ið er um 100 milljónir danskra króna,
milljarður íslenskra króna. Þar hef-
ur FBA lagt til 41 milljón danskra
króna og BI Technology 35 milljónir.
Síðastnefnda fyrirtækið er áhættu-
sjóður Bankinvest, en það var á fjár-
festingastefnu Bankinvest í gær sem
bankinn var kynntur.
I Borsens Nyhedsmagasin segir
Lars Krull, framkvæmdastjóri
Bankinvest, að helstu keppinautarn-
ir séu ekki fyrst og fremst hefð-
bundnir bankar, heldur netfyrirtæki
eins og America Online og Microsoft.
Sökum mikils vaxtar í netbönkum
segist Krull líta á bankann sem góða
fjárfestingu. Krull situr í stjórn Bas-
isbank.dk.
A stefnunni í gærkvöldi var rætt
um fjárfestingar og sjósetningu
nýrra fyrirtækja. Einn af þeim sem
töluðu var Jeff Raikes, sem er þriðji
æðstráðandi í Microsoft á eftir Bill
Gates og Steve Ballmer.
lok 1999 voru bókfærðar á 13.915
milljónir króna. Skuldir og skuld-
bindingar námu hins vegar 9.257
milljónum króna og var því eigið fé
félagsins í árslok 4.658 milljónir
króna, en var 4.316 milljónir króna
í árslok 1998. í árslok var eigin-
fjárhlutfall félagsins 33,5%, en var
34,7% í lok ársins 1998. Veltufjár-
hlutfallið var 1,09, en var 0,98 í árs-
lok 1998.
Erlend starfsemi gengur ekki
sem skyldi
Rekstur Onward Fishing Comp-
any Ltd., dótturfélags Samherja hf.
í Bretlandi, var í jafnvægi á árinu,
að því er fram kemur í fréttinni.
Hins vegar gekk rekstur dótturfé-
lags Samherja GmbH í Þýskalandi,
útgerðarfyrirtækið DFFU, afleit-
lega á árinu. Samherji GmbH á
99% hlut í DFFU og var reksturinn
mjög erfiður. Aflabrögð skipa
DFFU voru almennt mjög léleg allt
árið og til að mynda brugðust veið-
ar í Barentshafi. Það hafði í för
með sér mikið tekjutap fyrir félagið
en fastur kostnaður þess er mikill.
„Það er alveg ljóst að þessi nið-
urstaða er, þegar á heildina er litið,
engan veginn ásættanleg,“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, í tilkynningu sem
Samherji sendi frá sér í gær.
„Rekstur móðurfélagsins er að vísu
í góðu lagi miðað við aðstæður. Þar
á ég við að bæði sumar- og haust-
vertíðin í loðnu brugðust, rækju-
veiði var léleg og gengisþróunin
var félaginu óhagstæð. Hins vegar
náðu góð bolfiskveiði og hátt verð
fyrir þær afurðir að vega að mestu
leyti þar upp á móti. Ég er jafn-
framt sáttur við þá fjármunamynd-
un sem átti sér stað i rekstri móð-
urfélagsins," segir hann.
Þorsteinn Már segir hins vegar
ljóst að erlend starfsemi Samherja
hafi ekki gengið sem skyldi. „Við
Samherji hf.
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 8.887 9.465 -6,1%
Rekstrargjöld 7.620 7.757 -1,8%
Afskriftir 883 861 +2,6%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -307 -258 +19,0%
Tekju- oq eiqnarskattar 106 182 -41.8%
Aðrar tekjur og gjöld 215 269 -20,1%
Hagn. án áhr. dóttur- og hlutd.fél. 186 676 -72,5%
Áhrif dóttur- oq hlutdeildarfél. 14 30 -53.3%
Hagnaður ársins 200 706 -71,7%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 13.915 12.447 +11,8%
Eigið fé 4.658 4.316 +7,9%
Skuldir 9.257 8.131 +13,8%
Skuldir og eigið fé samtals 13.915 12.447 +11,8%
Kennitölur og sjóðstreymi 13.915 1998 Breyting
Eiginfjárhlutfall 33,5% 34,7%
Veltufjárhlutfall 1,09 0,98
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 881 1.397 -36,9%
afskrifuðum á árinu 1999 ríflega
100 milljónir króna vegna fjárfest-
inga okkar í Bandaríkjunum og
stefnum að því að losa okkur alfarið
út úr rekstri þar,“ segir hann.
Hann segir ennfremur ljóst að
grípa verði til enn róttækari að-
gerða en þegar hefur verið gripið
til hvað varðar endurskipulagningu
rekstrarins í Þýskalandi. „Við
gerðum okkur vonir um að sú end-
urskipulagning sem við höfum gert
á rekstri DFFU síðustu misseri
myndi skila sér í bættum rekstri á
liðnu ári. Hins vegar voru afla-
brögðin með eindæmum léleg á
sama tíma og félagið ber mikinn
fastan kostnað. Við vinnum að því
að leita leiða til að draga eins og
unnt er úr föstum kostnaði DFFU
og gera félagið þar með betur í
stakk búið til að bregðast við afla-
samdrætti á borð við þann sem
varð á liðnu ári. Það er alveg Ijóst
að við viljum ekki standa frammi
fyrir svo lélegri afkomu þessa dótt-
urfélags okkar að ári liðnu,“ segir
hann í tilkynningunni.
Þokkalegar horfur fyrir
yfirstandandi ár
Þorsteinn Már segist telja horf-
urnar fyrir yfirstandandi ár í heild
sinni þokkalegar. „Það er að vísu
ýmislegt sem getur haft áhrif á
reksturinn til hins verra hjá Sam-
herja eins og öðrum fyrirtækjum í
þessari atvinnugrein. Ég nefni t.d.
að afurðaverð á loðnu og lýsi er til-
tölulega lágt og óvissa er um fram-
vinduna í kjarasamningaviðræðum.
Á hinn bóginn er verð fyrir bolfisk-
afurðir hátt og markaðshorfur góð-
ar. Loðnuveiðarnar hafa ennfremur
gengið vel það sem af er ári, svo ég
nefni ljósa punkta líka. Af framan-
sögðu er ljóst að erfitt er að segja
ákveðið til um rekstrarhorfurnar á
yfirstandandi ári. Samherji er hins
vegar sterkt og öflugt félag sem
hefur tvímælalaust burði til að gera
vel. Við munum einfaldlega gera
okkar besta og sjá hverju það skil-
ar,“ segir Þorsteinn Már.
Jón Ottar Birgisson, sérfræðing-
ur hjá íslenskum verðbréfum á Ak-
ureyri, segir afkomu móðurfélags-
ins að mörgu leyti viðunandi.
„Tekjur dragast lítillega saman en
gjöld gera það einnig. Fjármagns-
liðir eru þó mjög óhagstæðir fyrir
félagið sem útskýrir að öllu leyti
verri afkomu
móðurfélagsins árið 1999 en árið
1998. Afkoma dótturfélaga, þá sér-
staklega í Þýskalandi, er hins veg-
ar óviðunandi og veldur áhyggjum,
þrátt fyrir að hún eigi sér mjög
eðlilegar skýringar," segir Jón Ott-
ar. Að hans mati er ekki hægt að
reikna með að þorskveiðar muni
glæðast á næstunni í Barentshafi
og því skipti sköpum fyrir félagið
að leysa það vandamál farsællega.
„Félagið er hins vegar mjög vel í
stakk búið til að taka á svona
vandamálum, bæði kvótalega og
stjórnunarlega, og því teljum við
félagið góðan fjárfestingarkost til
lengri tíma litið,“ segir Jón Óttar.
Aðalfundur Samherja hf. verður
haldinn föstudaginn 7. apríl nk.
Stjórn félagsins gerir tillögu um að
greiddur verði 7% arður til hlut-
hafa á árinu 2000 fyrir rekstrarárið
1999.
Landsteinar og Hugvit
Rætt um sam-
starf við önn-
ur fyrirtæki
Hugvit hf. og Landsteinar Internat-
ional hf. eiga nú í viðræðum við inn-
lend og erlend fyrirtæki um sam-
starf og sameiningu. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Islenska hug-
búnaðarsjóðnum hf. en félögin eru
tvö þeirra stærstu í eignasafni sjóðs-
ins. Viðræðunum er ekki lokið, að því
er fram kemur í tilkynningunni, og
alls óvíst um niðurstöður þeirra sem
reiknað er með að fáist á næstu vik-
um. Gengi hlutabréfa Hugbúnaðar-
sjóðsins hækkaði um 24,2% í kjölfar
tilkynningar sjóðsins á Verðbréfa-
þingi Islands í gær.
Ekki náðist í framkvæmdastjóra
Islenska hugbúnaðarsjóðsins í gær
en í tilkynningu frá sjóðnum er vísað
til fréttatilkynninga Landsteina Int-
ernational um að félagið stefni að
frekari sameiningum og yfirtökum á
næstunni. Markmiðið með því er að
stækka og efla félagið eins og frekast
er kostur og undirbúa þannig skrán-
ingu Landsteina á alþjóðlegan hluta-
bréfamarkað.
Gengisað-
lögun til að
jafna sveiflur
GENGISAÐLÖGUN tók gildi hjá
Eimskipafélagi Islands í gær. Um
aðlögun á gjaldskrá í innflutningi frá
Evrópu er að ræða og ástæðan er
áframhaldandi lækkun á gengi
Evrópumynta.
Við gengisaðlögun helst gjaldið
óbreytt í íslenskum krónum en til-
gangurinn er að jafna sveiflur sem
verða milli einstakra mynta gagn-
vart íslensku krónunni, að sögn
Þórðar Sverrissonar, framkvæmda-
stjóra flutningasviðs Eimskips.
Eimskip lagaði gjaldskrá sína síðast
að gengi evrópskra mynta um miðj-
an febrúar og á síðasta ári var geng-
isaðlögun gerð fjórum sinnum.
Guðmundur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Sam-
skipa, segir ljóst að gengi evrunnar
hafi lækkað verulega frá áramótum
og að möguleikinn á næstu gengisað-
lögun hjá Samskip sé í skoðun. Sam-
skip aðlagaði gjaldskrá sína að gengi
Evrópumynta 15. janúar sl., og í
mars og október á síðasta ári. Guð-
mundur segir tilgang gengisaðlög-
unar að tryggja sömu innkomu í ís-
lenskum krónum, þrátt fyrir lækkun
erlendra mynta.
Hafnarfjarðarbær
hefur fengið ný símanúmer!
Aéalskrifstofur
- fax
Skrifstofa bæjarstjóra
Umhverfis- og tæknisviÓ
Félagsþjónustan
Skólaskrifstofan
Áhaldahús
Vatnsveitan
58 55 500
58 55 509
58 55 505
58 55 600
58 55 700
58 55 800
58 55 670
58 55 665
Hafnari
Itarleg símaskrá er á heimasíéu
Hafnarfjaréarbæjar, www.hafnarfjordur.is
ijipðafbmp
jll Vil