Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Dómstólar
leysi málið
Á ALÞINGI 6. mars,
þegar rætt var um fjár-
reiður stjómmála-
flokka, sagði Davíð
Oddsson þessi orð sem
rétt er að birta í heild
svo ekkert fari á milli
mála: „Mér finnst
einkar ógeðfellt í síð-
ustu kosningabaráttu
hvemig peningar ör-
yrkja, milljónir króna
af peningum samtaka
öryrkja, voru notaðir til
að birta áróðursauglýs-
ingar augljóslega
tengdar Samfylking-
unni. Ef maður tryði á
það að þessir þingmenn
væra virkilega þess sinnis að hafa
heiðarleika í þessum málum [fjár-
reiðum stjómmálaflokka, innskot
höf.] þá hefðu þeir fordæmt auglýs-
ingar af því tagi, að taka fjármuni Or-
yrkjabandalagsins og nota þá blygð-
unarlaust í kosningabaráttu eins og
þama var gert.“ (Mbl. 7. 3.) Síðar
hefur ráðherrann neitað að draga
^ummælin til baka en segir að þeim sé
eingöngu beint gegn Garðari Sverr-
issym formanni Óryrkjabandalag-
sins. Á þinginu minntist hann þó ekki
á Garðar eða nokkum annan ein-
stakling. Formaður Öryrkjabanda-
lagsins er kjörinn lýðræðislega af ör-
yrkjum sjálfum líkt og formaður
Sjálfstæðisflokksins er kjörinn af
flokksmönnum. Þegar þessir for-
menn koma fram opinberlega í nafni
félaga sinna hlýtur árás á formlegar
athafnir þeirra á vegum félagsins því
^jeinnig að vera árás á viðkomandi fé-
lög eða samtök sem standa að baki
formanninum. Umræddar auglýs-
ingar voru reyndar á ábyrgð allrar
stjómar Öryrkjabandalagsins. Þær
vom ekki prívatgjörð Garðars Sverr-
issonar þó sagt sé að hann hafi átt
fmmkvæðið. Þetta er mergurinn
málsins. Og það em hin sérstöku um-
mæli ráðherrans á þingi sem máli
skipta en ekki persónuleg átök hans
og formanns Öryrkjabandalagsins
að öðra leyti. Þau verða þeir að leysa
sjálfir. Hitt er svo annað mál að ör-
yrkjar einir velja sér stjórn og setja
hana líka frá. Áðrir verða að sætta
sig við þær ákvarðanir.
í kvöldfréttum Rík-
issjónvarpsins 13. mars
höfðu bæði ritari og
formaður Öryrkja-
bandalagsins orð á því
að bandalagið íhugaði
að leita til dómstóla
vegna orða forsætis-
ráðherra um bandalag-
ið. En viti menn! Dag-
inn eftir tilkynnti
framkvæmdastjórn
bandalagsins að hún
stæði einhuga að baki
formanni sínum. En
jafnframt skírskotar
stjórnin til dómgreind-
ar almennings til að
meta réttmæti ásökunar ráðherrans.
Slík ályktun er í rauninni marklaus.
Þá væri hægt að bera fram hvaða
ásökun sem er um hvem sem er og
Oryrkjadeilan
Ráðherrann stendur nú
með pálmann í höndun-
um, segir Sigurður
Þ. Guðjónsson. For-
ystumenn Oryrkja-
bandalagsins hafa hins
vegar brugðist öryrkj-
um illilega þó búast
megi við að þeir reyni
að gera sem minnst úr
slíkum viðhorfum.
vísa til dómgreindar almennings um
réttmæti hennar. En þannig ganga
bara ekki málin fyrir sig í vemleikan-
um. Það er fjarri því að almenningur
geti metið ásakanir af þessu tagi.
Ekki get ég það og er ég þó örlítill
hluti af almenningi. Til þess höfum
við einmitt dómstólana að hægt sé að
fjalla af fagmennsku um svona álita-
mál, vega þau og meta í ljósi gildandi
Sigurður Þór
Guðjónsson
laga. Það er ekki auðvelt verk og
sjaldan einhlítt. Afgreiðsla Öryrkja-
bandalagsins á þessu atriði er mikil
mistök. Eftir stóm orðin á undan vita
menn ekki hvaðan á sig stendur
veðrið. Og eru menn þó ýmsu vanir í
þessari dæmafáu ótíð! Að ritari og
formaður Öryrkjabandalagsins
skyldu nú ekki hafa haft þau lág-
marks hyggindi til að bera að neita
sér til morguns um yfirlýsingar um
hugsanleg viðbrögð vegna orða for-
sætisráðherra. Sýna styrk og sjálf-
stjórn og hafa allt á hreinu. I ályktun
framkvæmdastjómarinnar koma
síðan fram áhyggjur af slæmum
kjörum öryrkja sem bregðast verði
við. En það er mikilvægt að ragla
ekki saman annars vegar einstöku
atviki er felst í alvarlegum ásökunum
ráðamanns um ábyrgð og athafnir
tiltekinnar stjómar Óryrkjabanda-
lagsins og hins vegar almennri bar-
áttu bandalagsins fyrir bættum kjör-
um öryrkja. Fáir em á móti henni þó
deilt sé um margt. En allir em von-
andi mjög andvígir hugsanlegri spill-
ingu í stjórn Öryrkjabandalagsins.
Peninga Öryrkjabandalagsins á
auðvitað ekki að nota fyrir aðra en
öryrkja, hvað þá í þágu almennra
stjórnmálasamtaka, hvorki Samfylk-
ingar, Vinstri grænna eða Sjálfstæð-
isflokks. Ásökun forsætisráðherra
varðar því líklega refsivert athæfi og
hún er þá einstaklega alvarleg. Sé
hún sönn verður viðkomandi stjóm
Öryrkjabandalagsins að bera ábyrgð
á gjörðum sínum. Sé hún ósönn verð-
ur forsætisráðherra að taka afleið-
ingum orða sinna. Þess vegna er
óhjákvæmilegt að einhver óháður að-
ili skeri úr um sannleikann í þessu
máli, hver sem hann er. Það er óþol-
andi fyrir öryrkja að hann eigi bara
sisvona að gleymast í baráttunni fyr-
ir bættum kjöram þeirra. Þetta
snertir nefnilega trúverðugleika og
sjálfsvirðingu Óryrkjabandalagsins,
reyndar líka ráðherrans. Einörð og
sterk sjálfsvirðing setur einföld en
skýr mörk ef henni finnst raunvera-
lega að sér vegið: hingað og ekki
lengra. Hún lætur þá verkin tala en
ekki stóra orðin. Málsókn gegn for-
sætisráðherra var heiðarlegasti
kosturinn úr því sem komið er þó
hann sé í sjálfu sér afleitur. Ráðherr-
ann stendur nú með pálmann í hönd-
unum. Forystumenn Öryrkjabanda-
lagsins hafa hins vegar bragðist
öryrkjum illilega þó búast megi við
að þeir reyni að gera sem minnst úr
slíkum viðhorfum.
Höfundur er rithöfundur.
- 1
Leitið nánari uppiýsinga
hjá utanlandsdeild okkar.
Q)
Guðmundur Jónassson
ferðaskrifstofa,
Borgartúni 34,
sími 511 1515.
Vorferðir til Prag, Noregs og Búdapest
Bjóðum spennandi vorferðir til Prag, Noregs og Budapest með viðkomu í Vínarborg.
8. maí, 7 daga ferð: Vor í Prag
Flogið til Frankfurt og ekið þaðan til ævintýraborgarinnar Prag í Tékklandi. Á sjötta degi er svo ekið aftur i
áleiðis til Frankfurt og gist síðustu nóttina í Pýskalandi.
Verð kr. 63.800
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting, morgunverður, akstur og skoðunarferð um Prag.
27. maí, 8 daga ferð: Búdapest með viðkomu í Vínarborg
Flogið í beinu leiguflugi til Vínarborgar og gist þar eina nótt. Á öðrum degi er borgin skoðuð og ekið
síðan til Búdapest þar sem dvalið verður næstu 5 daga. Síðasta daginn er svo ekið aftur til Vínarborgar
og deginum eytt þar uns flogið verður heim um kvöldið.
Verð kr. 64.350
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting, morgunverður,
akstur og skoðunarferðir um Vínarborg og Búdapest.
6. júní, 10 daga ferð: Vorferð til Noregs
Flogið til Ósló, borgin skoðuð og gist þar eina nótt. Síðan er ferðast um Lillehammer til Þrándheims,
Ándalsness, Förde og Bergen. Frá Bergen verður svo siglt þann 13.05. til íslands með viðkomu í
Færeyjum og tekið land á Seyðisfirði að morgni þess 15. maí. Paðan er svo ekið samdægurs til
Reykjavíkur.
Verð kr. 87.100
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting, morgunverður á hótelum, allur akstur,
fargjöld á ferjum í Noregi og sigling frá Bergen til Seyðisfjarðar.
Bjóðum einnig vikuferðir í beinu leigufiugi til Prag þann 4. og 25.
ágúst (uppseid) og til Búdapest þann 9. september.
Samfylkingin
uppsker eins
og hún sáir
FÓLK á það skilið
sem það kýs sagði
þingkona nokkur að
gefnu tilefni, en svo er
ekki alltaf. Jóhönnu
Sigurðardóttir var kos-
in með yfirgnæfandi
meirihluta til forastu í
samfylkingunni, en
Sighvatur Björgvins-
son hundsaði vilja
meirihlutans sem ekki
leist á refsleg vinnu-
brögðin og sneri baki
við afli sem fór þó svo
vel af stað. Gengið var
þannig frá að þýðing-
arlaust var fyrir Jó-
hönnu að bjóða sig til
forastu að þessu sinni og er því aug-
ljóst að tveir fyrverrandi Alþýðu-
bandalagsmenn verða þar í forsvari.
Þrátt fyrir trú Össurar Skarphéð-
inssonar á sjálfum sér, verður stöðn-
un Samfylkingar óumflýjanleg und-
ir forastu hans nema hann breyti og
Stjórnmál
Það er eins og að þjóðin
vegsami þá er stuðla
að misrétti og spillingu,
segir Albert Jensen,
en ýti þeim frá sér er
vinna henni vel.
bæti í fjölmörgum málum og sýni að
hann þori að berjast við óbilgjörn-
ustu öfl þingsins, eins og Jóhanna
hefur gert án teljandi stuðnings
samherjanna og finnst mér stundum
að hún sé látin gjalda þess að vera
kona, því sumir karlmenn þola ekki
kvenmenn sem eru þeim frambæri-
legri. Össur á heiður skilið fyrir af-
stöðu sína í Eyjabakkamálinu, þar
sem Guðmundur Árni gerði sig aftur
á móti marklausan með því að lýsa
sig einlægan vin umhverfisins um
leið og hann skipaði sér í sveit með
verstu óvinum þess, þar sem skiln-
ingur á verðmætum er nánast eng-
inn.
En glöggskyggni Össurar er ekki
allstaðar jafn vist- og mannvæn.
Hann virðist ekki skilja að hægt er
að raska hinu villta lífríki með mis-
munandi friðun og veiði. Össur vill
vera góður drengur og sýnir það
með því að berjast með trúverðug-
um rökum fyrir ákveðnum þáttum í
umhverfinu, en þegar kemur að líf-
ríkinu gilda ekki sömu lögmál og er
hann í þeim efnum ótrúlega glám-
skyggn. Sjórinn er aðalauðlind Is-
lendinga og eiga þeir afkomu sína að
mestu undir skynsamlegri nýtingu
hans og gjafamildi. I augum Össur-
ar eru hvalir og selir einungis skraut
í hafinu og virðist hann ekki gera sér
ljóst hvað þeir taka mikið til sín og
því ójafnvægi sem er
að verða í náttúranni.
Okkur veitir ekki af
öllu sem hægt er að ná
úr hafinu með vistvæn-
um hætti og það kemur
að því og þá er hætt við
að einstefnumenn
verði dragbítar. Ekki
tekur betra við hjá
Össuri þegar á land er
komið og eiga minkar,
refir og nú síðast
hrafninn samúð hans
og skilst mér að að
hann sé meðmæltur
friðun rándýranna á
friðlýstum svæðum.
Eg hef ekki heyrt hann
hafa áhyggjur af fækkun anda eða
mófugls sem er nánast að hverfa úr
umhverfi okkar vegna óhugnanlegr-
ar fjölgunar hverskonar vargs, en
minksins þó sérstaklega. Mér er
ókunnugt um að Össur hafi áhyggur
af mikilli blýmengun af völdum
skotvopna. Það er Samfylkingunni
ekki til framdráttar að Össur treyst-
ir aðallega á þá fáu Alþýðubandalag-
smenn sem ekki gengu í Vinstri
græna, sér til brautargengis í kosn-
ingu og að hann leggur meir upp úr
málskrúði en hnitmiðaðri og má-
lefnalegri stefnu í anda jafnaðar. Al-
þingi á ekki að vera leikhús og það
má Össur eiga að hann hefur ekki
slegið um sig á þingi með útúrsnún-
ingum og rangsleitni eins og borið
hefur fyrir nú undanfarið af hálfu
meirihlutans og hefur verið frekar
gaman að Össuri en það vantar að
hægt sé að taka hann alvarlega.
Eg er viss um að Davíð Oddsson
er ekki vondur maður, en skilnings-
leysi hans á kjöram öryrkja, fjand-
skapur hans við bandalag þeirra og
fleira í þeim dúr, er með þeim hætti
að óviðunandi er að Jóhanna Sigurð-
ardóttir sé eina samfylkingarmann-
eskjan sem lætur hann ekki komast
létt frá slíku. Össur hefur ekki vitað
mikið af fötluðum. Halldór Björns-
son er nú að þóknast atvinnurekend-
um og ríkisstjórn með samningum
um áframhald láglaunastefnunnar
og ætti Össur að skoða það nánar og
hvað Halldóri var hjartanlega sama
um gamalt fólk, fatlaða og aðra ör-
yrkja. Um þessar mundir er eins og
þjóðin fljóti sofandi að feigðarósi,
hún vegsamar þá er stuðla að mis-
rétti og spillingu, en ýtir þeim frá
sér er vinna henni vel. Ef samfylk-
ingarfólk stendur saman og hver
einstaklingur er ekki að skara eld að
eigin köku er von um árangur gegn
ranglætinu, en án Jóhönnu og henn-
ar líka er vopn réttlætisins bitlaust.
Munið að Jóhanna Sigurðardóttir er
eini íslenski ráðherrann sem sagt
hefur af sér fyrir sannfæringu sína.
Til þess þarf mikin kjark og heiðar-
leik og kemur vonandi að því að hún
verði metin að verðleikum.
Höfundur er trésmi'ðameistari.
Albert
Jensen
Ný sending
frá Kookai
Laugavegi 62, sími 511 6699