Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MORGUNBLADIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Stúlkur frá Skautafélagi Reykjavíkur sýndu listir sínar.
Gleðidagur hjá
skautafólki
Meðal erlendra gesta var listskautaparið Andrew Sea-
brook og Tiffany Sfiskas.
Áhorfendur ijölmenntu og skemmtu sér vel.
Laugardalur
FYRSTA listskautasýningin
hér á landi var haldin í
Skautahöllinni í Laugardal
á laugardag. Fimm erlend-
ir gestir tóku þátt í sýning-
unni auk fjölda innlendra
sýnenda.
Áhorfendur fjölmenntu
til að fylgjast með þessari
vinsælu íþrótt í návígi en
hingað til hafa flestir að-
eins komist í tæri við list-
danshetjur á sjónvarps-
skjánum.
Gestirnir voru listskauta-
parið Andrew Seabrook frá
Englandi og Tiffany Sfisk-
as frá Bandaríkjunum; frá
Tékklandi komu dansarinn
Tomas Storm og ísdanspar-
ið Martina Kvarckova og
Ota Jandesjek.
Skautafélag Reykjavíkur
lagði til nokkra sýningar-
hópa undir stjórn Olgu
Baranovu. Meðal íslenskra
sýnenda var þrefaldur Is-
landsmeistari, Sigurlaug
Árnadóttir.
Skautasýningin var liður
í vetraríþróttahátíð ÍBR í
tilefni af því að Reykjavík
er ein menningarborga
Evrópu árið 2000.
Almannavarnir og fjarskiptamiðstöð
A lögreglu flytja í Slökkvistöðina
Avinningurinn sá að
hver styður annan
Reykjavík
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur
áformar nú að stækka
Slökkvistöðina við Skógar-
hlíð. Ætlunin er að ný fjar-
skiptamiðstöð lögreglunnar
verið starfrækt þar og Al-
mannavarnir ríkins hafa ósk-
að eftir því að fá aðstöðu þar
einnig. Hrólfur Jónsson,
slökkviliðsstjóri, segir að
margvíslegt hagræði felist í
því að fjarskiptamiðstöð lög-
reglu, almannavama og
slökkviliðs sé á einum stað í
tengslum við starfsemi Neyð-
arlínunnar, sem nú er starf-
rækt í húsnæði Slökkviliðsins.
Slökkviliðsstjóri hefur leit-
að eftir heimild borgarráðs til
að hefja undirbúning að við-
byggingu við þann hluta
Slökkvistöðvarinnar sem nú
hýsir Neyðarlínuna ehf. Ætl-
unin er að byggja 155 fer-
metra viðbyggingu á tveimur
hæðum, alls 310 fermetra. Þá
hafa verið unnar frumhug-
myndir að byggingu þriðju
hæðar og turns, þar sem gert
er ráð fyrir að Almannavarnir
ríkisins fái skrifstofuaðstöðu.
Hrólfur segir að fyrirhuguð
stækkun tengist fyrst og
fremst nýja fjarskiptakerfinu
TETRA, sem að lögreglan og
slökkviliðið eru sameiginlega
með. Kerfið nær austur yfir
Þjórsá, upp í Hvalfjörð og um
öll Suðurnesin og hyggst lög-
reglan með tilkomu þessrar
nýju tækni koma á einni sam-
eiginlegri fjarskiptamiðstöð
fyrir lögregluembættin í
Reykjavík, Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Selfossi,
Akranesi og Borgarnesi, sem
rekin yrði í tengslum við
Neyðarlínuna.
Þegar þetta lá ljóst fyrir
var ákveðið að kanna hvort
Almannavamir ríkisins hefðu
áhuga á að vera með, þar sem
sameiginleg almannavarna-
nefnd Reykjavíkur, Seltjarn-
arness, Mosfellsbæjar og
Kjósarsýslu verða þai-na með
bækistöð. Niðurstaðan varð
sú að Almannavarnir sækjast
nú eftir því að komast einnig
inn í Slökkvistöðina. Hug-
myndin er að stjórnstöð
þeirra verði í kjallara nýju
viðbyggingarinnar, en að
skrifstofur verði á fyrirhug-
aðri þriðju hæð, sem ætlunin
er að byggja ofan á núverandi
skrifstofur Slökkviliðsins.
Upplýsingastreymi
verður skilvirkara
,Á-VÍnningurinn af þessu er
auðvitað sá að þá styður hver
annan. í útköllum slökkviliðs
og lögreglu er oft mjög náin
samvinna á vettvangi og því
gefur auga leið að það getur
verið þægilegra að hafa sam-
eiginlega fjarskiptamiðstöð,
þar sem hver getur stutt ann-
an. Þá verður allt upplýsinga-
streymi miklu skilvirkara, og
það er t.d. gert ráð fyrir að
ákveðin boðmiðlun til lög-
reglubílanna flytjist úr hönd-
um lögreglunnar til Neyðar-
línunnar. Þegar tilkynnt er
um slys í dag, þá boðar
Neyðalínan út sjúkrabíl og
slökkvibíl ef með þarf, en síð-
an þarf að gefa símtalið til
lögreglunnar. Það hefur tafið
svolítið fyrir lögreglunni, en
við þessar breytingar mun
Neyðarlínan boða út bæði lið-
in jafnt,“ segir Hrólfur.
Að sögn Hrólfs tengist
stækkun Slökkvistöðvarinnar
ekki beint hugsanlegri sam-
einingu slökkviliðanna á höf-
uðborgarsvæðinu. Ekki er
ennþá Ijóst hvort af þeirri
sameiningu verður, en sveit-
arfélögin sem nýta sér þjón-
ustu þeirra hafa skipað
starfshóp sem þessa dagana
er að fara ofan í saumana á
kostum og göllum á samein-
ingu liðanna. Niðurstöðu
þeirrar vinnu er að vænta í
lok apríl.
Snjólosun í
Elliðaár hætt
Elliðaár
GATNAMÁLASTJÓRI hef-
ur ákveðið að hætt verði að
losa snjó í Elliðaárnar. Þessi
ákvörðun er tekin í framhaldi
af umræðunni um lífríki
Elliðaánna og hugsanleg
skaðleg áhrif ofanvatns af um-
ferðargötum, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu
sem blaðinu barst frá Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær. „Allri
snjólosun í vesturál Elliðaáa
er nú hætt og hafa starfsmenn
borgarinnar einnig, eins og
kostur er, reynt að koma í veg
fyrir að aðrir losi í árnar.“
„Því miður liðu nokkrir
dagar áður en fyrirmælin skil-
uðu sér til allra þeirra aðila
sem hreinsa snjó á vegum
borgarinnar," segir í fréttinni
en hún er send út í framhaldi
af því að fjallað var um snjó-
losunina í veiðiþætti Morgun-
blaðsins síðastliðinn sunnu-
dag.
I fréttinni er vísað til þess
að laxveiðimenn hafi bent á að
Elliðaárnar og dalurinn séu
ein af náttúruperlum Reykja-
víkur. „Reykjavíkurborg hef-
ur, í kjölfar rannsókna sem
gerðar hafa verið á ánum, leit-
að leiða til þess að skapa laxa-
stofninum viðgang. Það er
einlægur vilji borgaryfirvalda
að Elliðaárnar verði áfram
skart borgarinnar og takast
megi að viðhalda laxastofnin-
um. Ein af þeim leiðum sem
farin hefur verið er að hætta
allri snjólosun í árnar og ef til
einhverra hefur sést nýverið í
þeim erindagjörðum má
vænta þess að við aðra sé að
sakast en gatnamálastjóra.“
Ályktun SAMKÓPS
Foreldrar eru
vannýtt auðlind
í skólastarfínu
Kópavogur
SAMKÓP, samband foreldra-
félaga og foreldraráða við
grunnskóla Kópavogs, telur að
mikilvægt sé að endurskoða
og bæta móttöku nýrra nem-
enda og foreldra þeirra í
grunnskólum Kópavogs, en
hingað til hafi þetta verið gert
með ómarkvissum hætti.
Þetta kemur fram í ályktun
sem samþykkt vai’ á síðasta
fulltrúaráðsþingi SAMKÓPS
og send skólanefndum og
skólastjórum í Kópavogi.
í ályktuninni segir að það sé
álit fulltrúaráðsþings SAM-
KÓPS að allir skólar í Kópa-
vogi eigi ár hvert að bjóða upp
á námskeið fyrir foreldra sex
ára bama um upphaf skóla-
göngu og uppeldismál. Bent er
á að í aðalnámskrá segi að
mikilvægt sé að „traust sam-
starf sé milli heimila og skóla
um skólastarfið í heild“ og
jafnframt sé gert „ráð fyrir að
foreldrar taki þátt í mótun
skólasamfélagsins og vinni að
því með kennurum og öðrum
starfsmönnum skóla að koma
markmiðum skólastarfs í
framkvæmd."
Foreldrum líður eins og
óvelkomnum gestum
í ályktun SAMKÓPS segir
einnig að því sé stundum hald-
ið fram að mörgum foreldrum
líði eins og óvelkomnum gest-
um þegar þeir komi í skóla
bama sinna og að foreldrar
séu illa nýtt auðlind í skóla-
starfinu. Rannsóknir hafi sýnt
að í skólum þar sem samstarf
við foreldra er samfellt og gott
skili nemendur mun betri
námsárangri, agavandamál
séu færri og líðan þeiiTa betri.
Bent er á að samstarf for-
eldra og skóla eigi ekki ein-
ungis að byggja á almennum
upplýsingum um skólahald
heldur verði að vera um reglu-
leg persónuleg samskipti að
ræða, en mikilvægt sé að
skapa þessi tengsl strax í byrj-
un skólagöngu barnanna.
Mismunandi
lengd skólatíma
Fleiri mál voru tU umræðu á
fundi SAMKÓPS, til dæmis
var rædd fyrirspum þeirra til
skólanna og skólanefnda um
hvort og hvenær foreldraráðin
ættu að veita umsögn um drög
að samningi um fjárhagslegt
sjálfstæði og nýbreytni í
skólastarfi. Kom fram að mis-
munandi væri hvað skólarnir
hefðu gert til kynningar og var
óskað eftir því að skólayfirvöld
beindu þeim tilmælum tU skól-
anna að þeir framfylgi því sem
stendur í aðalnámskrá um for-
eldraráð, að þeim séu kynnt
áform og áætlanir í skólamál-
um.
Á fundinum var einnig rædd
mismunandi lengd skólatíma í
Kópavogi en hún er talin
skapa aðstöðumun, ekki síst
hjá þeim foreldrum sem kaupa
vist fyrir börn sín í dægradvöl
og eru skólayfirvöld spurð að
því hvað þau hyggist gera til
að vinna að samræmingu og
lengingu skólatíma.
Fjöldi hlýddi á tónleika
skólahlj ómsveitar
Mosfellsbær
G-700 manns létu illviðrið á
sunnudag ekki á sig fá en
mættu í íþróttamiðstöðina í
Mosfellsbæ til að hlýða á leik
Skólahljómsveitar Mosfells-
bæjar.
Hljómsveitin hefur starfað
óslitið frá 1964 og um 100
börn og ungmenni taka þátt í
starfinu. Langflest þeirra
komu fram á tónleikunum.
Eldri deild hljómsveitarinnar
undirbýr á þessu starfsári
tónleika- og skemmtiferð til
Austurríkis og Italíu.
Tónleikarnir á sunnudag
voru m.a. haldnir í minningu
Lárusar Sveinssonar, tromp-
etleikara og fyrrverandi
stjórnanda hljómsveitarinn-
ar, sem starfaði með sveit-
inni um 30 ára skeið, auk
þess að sljórna kórum í bæn-
um og eiga mikinn þátt í að
efla tónlistarlíf bæjarins.
Á tónleikunum komu fram,
auk Skólahljómsveitarinnar,
Reykjalundarkórinn, Hjördís
Elín Lárusdóttir söngkona
og Jón Sigurðsson trompet-
leikari sem var um langt ára-
bil samstarfsmaður Lárusar í
Sinfóníuhljómsveit fslands.
Skólahljómsveitin gaf á
sfðasta ári út hljómdiskinn „I
MosfeIlsbæ“ í samvinnu við
sjö kóra í bænum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Krakkamir í Skólahljómsveit Mosfellsbæjar héldu tónleika á sunnudag en hljómsveitin gaf
út geisladisk í fyrra og ætlar til Austurríkis og Italíu í sumar.