Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 47
■I
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 21. MARS 2000 47
I
UMRÆÐAN
Mundu mig,
ég man þig
í umræðuþættinum
Deiglunni, þriðjudag-
inn 14. mars sl.,
ræddu formenn
stjórnmálaflokkanna
um frumvarp Jóhönnu
Sigurðardóttur um
fjárreiður flokkanna.
Stjórnandi þáttarins
lagði ekki mikið til
málanna en fylgdist
með formönnunum
klóra hver öðrum á
bakinu. A sama tíma
og þingmenn vilja láta
líta út sem þeir telji
að hér þurfi að taka
til hendi er augljóst
að þeir munu samein-
ast um að láta frumvarp Jóhönnu
daga uppi á þinginu.
I byrjun þáttarins gerði Geir H.
Haarde grein fyrir því að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði ekki sóst
eftir fjárframlagi frá Islenskri
erfðagreiningu vegna umfjöllunar
um fyrirtækið á þinginu. Framlag
frá fyrirtækinu í kosningasjóð
Sjálfstæðisflokksins hefði getað
skaðað málstað fyrirtækisins. Óðru
máli gegndi um greiðslu í kosn-
ingasjóð Samfylkingarinnar. Slík
greiðsla gæti ekki skaðað fyrir-
tækið í komandi umræðum um
gagnagrunninn.
Eftir að gagnagrunnsfrumvarpið
var gengið í gegn mátti nota pen-
ingana aftur með því að láta Davíð
núa Samfylkingunni því um nasir
að hafa þegið fé frá fyrirtækinu.
Hvar Davíð Oddsson fékk upplýs-
ingar um framlag íslenskrar
erfðagreiningar til Samfylkingar-
innar er alveg óupplýst mál.
Steingrímur J. Sigfússon talaði
fyrir Vinstri-græna. Orðið vinstri-
grænir fékk alveg nýja merkingu í
þessum sjónvarpsþætti því aldrei
hef ég séð grænni vinstri mann.
Steingrímur kvaðst aldrei, á sínum
þrjátíu ára stjórnmálaferli, hafa
orðið var við að menn eða fyrir-
tæki, sem lagt hefðu honum eða
hans flokkum til fé, færu fram á að
fá eitthvað til baka!
Steingrímur, auðvitað gefur
enginn fjármuni með skilyrðum,
en að sjálfsögðu á það við hér sem
annars staðar að: Mundu mig, ég
man þig.
Þó tengsl fyrirtækja og stjórn-
málaflokka séu ekki eins augljós í
Sigurgeir
Sigurjónsson
dag og þau voru hér
áður fyrr, þegar segja
mátti að stjórn Sam-
bandsins sæti á Al-
þingi, Arvakur ætti
Sjálfstæðisflokkinn og
öllu skipti að hafa að-
gang að pólitískt
kjörnum bankastjór-
um, þá á sjálfstæði
stjórnmálamanna að
vera hafið yfir allar
efasemdir. Það er því
full ástæða til þess að
setja lög um sam-
skipti þessara aðila.
Oryrkjabandalagið
birti upphaflega mjög
réttmæta auglýsingu
nokkrum mánuðum fyrir kosning-
ar, þar sem segja má að stjórn-
málaflokkar hafi verið hvattir til
Fjárstuðningur
Það fór ekki hjá því að
maður vorkenndi aðal-
leikurunum, segir Sig-
urgeir Sigpurjónsson,
sem í kristilegum kær-
leika tóku þátt í fyrstu
auglýsingunum en voru
síðan orðnir þátttakend-
ur í pólitískum áróðri.
að gera málstað öryrkja að sínum.
En þegar þessi sama auglýsing
birtist síðan nokkrum dögum fyrir
kosningar þá var eðli hennar orðið
allt annað. Það fór ekki hjá því að
maður vorkenndi aðalleikurunum
sem í kristilegum kærleika tóku
þátt í fyrstu auglýsingunum en
voru síðan orðnir þátttakendur í
pólitískum áróðri.
í opnu stjórnkerfi eiga fjármál
stjórnmálaflokkanna að vera eins
og opin bók og vonandi að al-
menningur þurfi ekki að sitja und-
ir öðrum eins tvískinnungi og fram
kom í áðurnefndum sjónvarps-
þætti.
Höfundur er Ijósmyndari.
GLERAUGA
ö t e « «M«o«vrr s ! u
V1D /AXAFEN 568 2662
IBi
vörulistanum
Ármúla 17a • S: 588-1980
www.otto.is
-!
Náum árangri erlendis!
Fyrirtækjastefnumót í Danmörku 8. og 9. júní
Morgunveröarfundur á vegum Evrópumiöstöðvar Impru og Aflvaka hf.
verður haldinn á Grand Hótel Reykjavíkur fimmtudaginn 23. mars kl. 08:15 - 10:00
Aflvaki hf. kynnir leiðir til fjármögnunar i atvinnurekstri
Dagskrá:
Europartenariat - alþjóðleg stefnumót fyrirtækja
Emil B. Karlsson, Evrópumiðstöð Impru, landsfulltrúi Europartenariat á íslandi
Hver er árangur fyrirtækja afþátttöku í Europartenariat?
Andrés Magnússon fyrrum starfsmaður ESB, varðandi fyrirtækjastefnumót
Reynsla íslensks fyrirtækis afþátttöku í fyrirtækjastefnumóti
Bjöm Ófeigsson, ráðgjafí
Aflvaki - sérhæfing í sprotafjárfestingum
Elísabet Andrésdóttir, forstöðum. upplýsingasviðs Aflvaka hf.
Þátttaka tilkynnist til Iðntæknistofnunar í síma 570 7267 eða með tölvupósti til: emiibk@iti.is
JL
ímpra
AFLVAKIf
Ókeypis lögfræðiaðstoð
fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, féiag laganema
LANGAR ÞIG AÐ
NÁLGAST VgRKEFN IN FRÁ
NýRRI HLIÐ?
1.040. 161kr. ánVSK. RENAULT KANGOO
Rekstrarleigusamningur Engin útborgun 22.709 kr. ámánuSi Fjármögnunarleiga 25% útborgun 260.040 kr. 15.982 kr. ámánuði
f .
Rekstrarleiga er miftuð er vifi 24 mánufti og 20.000 km akstur á ári, f erlendri myntkröfu.
Fjármögnunarleiga er miftuft vifi 60 mánufii og 25% útborgun, greifislur eru án vsk. Vsk leggst
ofan á leigugreifislur en vifikomandi fær hann endurgreiddan ef hann er mefi skattskyldan rekstur.
Allt verfi er án vsk.
ATVINNUBILAR
FYR1RTÆKJ AÞJ Ó N USTA
Grjóthálsi 1
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1225
RENAULT