Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjölmennur fundur með menntamálaráðherra í Verslunarskólanum
Ekki ætlunin að steypa
alla skólana í sama mótið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá fundi menntamálaráðherra, Björns Bjarnasonar, með nemendum í Verslunarskólanum í gær.
MIKILL fjöldi nemenda Verslunar-
skóla íslands sótti fund í skólanum í
gær með Birni Bjamasyni mennta-
málaráðherra. Umræðuefni fundar-
ins var ný aðalnámskrá fyrir fram-
haldsskólastigið, en ráðherra hefur
kynnt drög að henni í framhaldsskól-
um að undanförnu.
Björn segir að fundurinn í Versl-
unarskólanum hafi verið mjög gagn-
legur. Gott tækifæri hafi gefist til að
leiðrétta misskilning, sem virst hafi
ofarlega í huga margra nemenda.
„Það er ekki rétt að ætlunin sé að
steypa alla skóla í sama mótið með
nýrri námskrá. Skólar geta eftir sem
áður haldið sérstöðu sinni á ýmsan
hátt. Hins vegar verða gerðar mark-
vissari kröfur til bóknámsins og ekki
síður til starfsnámsins," segii- Bjöm.
Samræmd próf
valda misskilningi
Hann leggur áherslu á að ekki sé
með nýrri námskrá verið að reyna að
útrýma bekkjakerfinu. „Þótt skólar
hagi skipulagi sínu samkvæmt nýrri
námskrá er ekki þar með sagt að
sérkennum þeirra þurfi að varpa fyr-
ir róða.“
Björn segist merkja það að hug-
myndir um samræmt próf á fram-
haldsskólastigi hafi valdið misskiln-
ingi; sumir tengi þær samræmdu
prófunum í grunnskólum. „Það er af
og frá. Við ætlum ekki að endurtaka
þau próf. Hins vegar hefur um tíma
verið Ijós ákveðin þörf fyrir frekari
mælitæki á árangur einstakra skóla í
nokkrum námsgreinum," segir hann
og bætir við að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um til hvaða aldurs þau
munu taka. Samkvæmt lögum ber að
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra leggur í vikunni fram
frumvarp á Alþingi sem gerir ráð
fyrir breytingum á rekstri Leifs-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli í þá
veru að stofna hlutafélag um rekst-
urinn. í frumvarpinu er aðeins gert
ráð fyrir að breyta Leifsstöð í hluta-
félag en í því eru engar heimildir til
að selja hlutabréf í fyrirtækinu.
Halldór segir þó ekki útilokað að til
þess komi í framtíðinni en þá þurfi að
koma til sérstakar heimildir Alþing-
is.
Að sögn Halldórs mun ríkið eiga
öll hlutabréf í Leifsstöð. Utanríkis-
ráðherra skipar þá stjórn flugstöðv-
arinnar sem mun starfa á ábyrgð
eigendanna.
hefja framkvæmd þeirra skólaárið
2003-2004.
Þetta hafi m.a. verið rætt á fund-
um með nemendum og kennurum
Verslunarskólans í gær.
Ahyggjur af sérstöðu
V erslunar skólans
Ingólfur Snorri Kristjánsson, for-
seti nemendafélags Verslunarskól-
ans, tekur undir að fundurinn með
ráðherra hafi verið gagnlegur.
„Nemendur fjölmenntu og spurðu
ráðherra spjörunum úr,“ segir hann.
„Við höfum einkum áhyggjur af því
að sérstöðu Verslunarskólans sé teflt
„Við töldum síðastliðið sumar, að
undangengnum athugunum á mál-
inu, að nauðsynlegt væri að fara út í
skipulagsbreytingar á Leifsstöð
enda er reksturinn orðinn mjög um-
fangsmikill. Það er nauðsynlegt að
koma rekstrinum undir stjóm sem
hefur þekkingu á honum,“ sagði
Halldór í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld.
Halldór sagði að ekki myndi koma
til neinna uppsagna starfsfólks í
kjölfar breytinganna en bendir hins
vegar á að þörf íyrir starfsfólk ætti
að aukast á næstunni vegna stækk-
unar Leifsstöðvar. Fundur ráðherra
með starfsfólki verður haldinn í dag,
þriðjudag, þar sem málið verður
kynnt.
í tvísýnu. Hér hafa verið til staðar
brautir sem ekki standa til boða ann-
ars staðar, t.d. viðskipta- og hag-
fræðibraut, og við óttumst að fög
innan þeirra muni eiga undir högg að
sækja þegar tekin verða upp sam-
ræmd próf í hefðbundnum bóknáms-
greinum.“
Ingólfur bendir á að Verslunar-
skólinn hafi verið vel sóttur hin síð-
ustu ár og færri komist að en vildu.
„Nemendum úr skólanum hefur
gengið vel í háskólanámi og í sann-
leika sagt viljum við sem minnstu
breyta. Versló er góður eins og hann
er,“ sagði Ingólfur.
Sækir 30 framhaldsskóla heim
Fundurinn í Verslunarskólanum í
gær var liður í fundaherferð um
landið, en menntamálaráðherra hef-
ur á undanfömum vikum heimsótt 27
skóla á framhaldsskólastigi út um
allt land og rætt við nemendur þeirra
og kennara. Aðeins þrír skólar era
eftir; í Vestmannaeyjum, Neskaup-
SUÐURVERK hf. í Reykjavík átti
lægsta tilboð í fyrsta áfanga
Norðausturvegar á Tjörnesi. Til-
boðið hljóðaði upp á tæpar 107
milljónir kr. sem er 49 milljónum
kr. undir kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar.
Verkið sem Vegagerðin býður
nú út felst í endurlagningu á 9,7
km löngum kafla frá Hringveri að
Breiðuvík. Verkinu skal að fullu
stað og á ísafirði, en heimsóknum til
þeirra var frestað vegna veðurs. Ger-
ir ráðherra sér vonir um að geta sótt
skólana heim í næstu viku.
Svo umfangsmikil ferð hefur ekki
áður verið farin á vegum ráðuneytis-
ins og Björn neitar því ekki að um
mikið verkefni sé að ræða. „Vissu-
lega hefur þetta verið mikil vinna, en
um leið skemmtileg," segir hann.
„Það er líka gríðarlega mikilvægt að
kynnast sjónarmiðum fólks við
margskonar aðstæður og raunar
beinlínis nauðsynlegt svo unnt sé að
inna af hendi eðlilegt þróunarstarf í
skólakerfinu. Vissulega verður það
alltaf svo að menn hafi ólíkar skoðan-
ir á einstökum málum og greini á um
forgangsröðun. Það hefur orðið mikil
breyting á þjóðfélaginu undanfarin
ár og ekki gengur að mótmæla nýj-
um hugmyndum aðeins vegna þess
að um breytingar sé að ræða. Það er
til marks um ástæðulausan ótta að
vilja ekki nýta sér tækifæri breyting-
anna,“ sagði Björn ennfremur.
lokið 15. júlí á næsta ári.
Kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar hljóðaði upp á 155,9 milljónir
kr. Tólf verktakar buðu og voru til-
boðin á bilinu frá 106,8 milljónum,
sem Suðurverk bauð, og upp í tæp-
ar 232 milljónir kr. Næstlægsta
boðið átti Arnarfell ehf. á Akur-
eyri, 110,7 milljónir, og Klæðning
ehf. í Garðabæ átti þriðja lægsta
boð, 115,4 milljónir kr.
Milljón í
neyðar-
aðstoð í
Mósambík
HJÁLPARSTARF kirkjunnar
hefur ákveðið að senda eina
milljón króna til neyðaraðstoð-
ar í Mósambík. Alþjóðaneyðar-
hjálp kirkna, ACT, sem Hjálp-
arstarf kirkjunnar er aðili að,
ver fénu til aðstoðar um átta
þúsund fjölskyldum sem fá
matarpakka og neyðarpakka
með áhöldum til heimilishalds
og gerðar skýla og útsæði.
Starfið er skipulagt í nánu
samráði við yfirvöld í Mósam-
bík og aðrar hjálparstofnanir.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur
starfað um árabil í Mósambík
og einkum stutt vatnsöflun en
einnig leiðtogaverkefni meðal
kvenna, uppeldis- og félags-
starf í fátækrahverfi í höfuð-
borginni Mapútó og hefur H.k.
ákveðið að leggja 1,5 milljónir
króna í slík verkefni í ár.
„Mikið er lagt upp úr því að
hvetja íbúa til að greina þarfir
sínar og sýna frumkvæði í upp-
byggingu," segir m.a. í frétt
frá H.k. „Fólkið leggur sjálft
til alla vinnu en nýtur aðstoðar
við efniskaup, skipulagningu
og tæknivinnu. Greinilegur
munur er á því frumkvæði sem
fólk sýnir og getu til að leysa
vandamál nú eða þegar kirkj-
an hóf störf í landinu.“
Lakari afkoma
Samherja hf.
HAGNAÐUR Samherja hf. árið
1999 nam 200 milljónum króna, en
var 706 milljónir árið áður. Ástæður
lakari afkomu eru fyrst og fremst
raktar til mjög slakrar afkomu
DFFU, dótturfélags Samherja
GmbH í Þýskalandi.
Rekstrartekjur Samherjasam-
stæðunnar voru 8.887 milljónir
króna á liðnu ári, en voru 9.465 millj-
ónir króna árið áður og rekstrar-
gjöld voru 7.620 milljónir króna en
voru 7.757 milljónir ki'óna árið 1998.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrir tekju- og eignaskatt nam 77
milljónum króna en var 589 milljónir
á árinu 1998. Veltufé frá rekstri sam-
stæðunnar var 881 milljón króna en
var 1.397 milljónir króna árið áður.
■ Afkoma/21
---------------
Arekstur í
Hveragerði
HARÐUR árekstur varð á gatna-
mótum Breiðamerkur og Heiðmerk-
ur í Hveragerði í gærkvöld þegar
bifreið var ekið í veg fyrir aðra.
Ökumaður annarrar bifreiðarinnar
hlaut minni háttar meiðsl.
Þá var ein manneskja lögð inn á
sjúkrahús eftir árekstur á Selfossi í
gær en að auki bárust lögreglunni
tilkynningar um þriðja áreksturinn
og eina útafkeyrslu.
Hlutafélag stofn-
að um rekstur
Leifsstöðvar
Útboð vegarins um Tjörnes
Lægstu tilboð undir
kostnaðaráætlun
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
••
13BUB
Heimili
■HUHi■
Ct 3 H
Stúdentar og Þróttur Neskaupstað
íslandsmeistarar í biaki/Bll
Tólf ára stúlka íslands-
meistari í fimleikum /BIO