Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skrifað undir kjarasamning rafíðnaðarmanna og atvinnurekenda
13% launahækkun og 90
þús. króna lágmarkslaun
Sýknaður
af kæru um
líkamsárás
í knatt-
spyrnuleik
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá undirskrift samningsins í gær. F.v.: Ásbjörn Jóhannesson, framkvæmdastjóri SART, Ómar Hannesson, for-
maður SART, Finnur Geirsson, formaður SA, og Guðmundur Gunnarsson, formaður RSÍ.
KJARASAMNINGUR milli Sam-
taka atvinnulífsins og Samtaka at-
vinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði og
Rafíðnaðarsambandsins var undir-
ritaður í húsakynnum sáttasemjara
síðdegis í gær. Samningurirm gildir
til mars 2004, eða í tæp fjögur ár, og
er það lengsta samningstímabil sem
um getur á almenna vinnumarkaðn-
um hér á landi. Heimild er þó til að
segja honum upp að þremur árum
liðnum.
Samningurinn nær til tæplega tvö
þúsund félagsmanna í RSI. Launa-
hækkun við upphaf samningsins
nemur 3,9% og hækka öll laun svo um
3% þrisvar sinnum á samningstíma-
bilinu -1. janúar ár hvert.
Lágmarkslaun 90 þús. kr.
Samningurinn kveður á um að
lágmarkslaun í rafiðnaði, að meðtöld-
um kostnaðarliðum, skuli frá undir-
skriftardegi vera 90 þúsund kr. og er
tekið fram að hann hafi einungis að
geyma ákvæði um lágmarkslaun
starfsmanna.
I samningsforsendum er kveðið á
um hlutverk sérstakrar nefndar ASÍ
og SA sem árlega fjalli um það hvort
kjarasamningsbundin launaþróun
hafi almennt þróast á annan veg en
gert var ráð fyrir við undirritun
samningsins. Er béinlínis vísað til 17.
gr. í samningi SA og Flóabandalags-
ins i þessum efnum.
Samningnum fylgir sérstök bókun
um launakerfi rafiðnaðarmanna og
er þar vísað til sk. markaðslauna. Þar
segir: „Samtökum atvinnulífsins er
kunnugt um að frá 1987 hafi launa-
kjör rafiðnaðarmanna, sem samning-
ur þessi nær til, almennt verið miðuð
við umsamið launakerfi SART og
RSÍ, nema um annað hafi verið samið
sérstaklega. Samtök atvinnulífsins
telja að fyrirtæki, sem greitt hafa
laun skv. þessu launakerfi, hafi bakað
sér fjármunaréttarlegar skyldur til
þess að greiða áfram laun samkvæmt
því, nema um annað sé sérstaklega
samið í ráðningarsamningi."
í bókun um virkjunarframkvæmd-
ir eða aðrar sambærilegar stórfram-
kvæmdir, segir að mánaðarlaun iðn-
lærðra rafiðnaðarmanna við slíkar
framkvæmdir skuli ekki vera lægri
en 145.000 kr. fyrir fulla dagvinnu.
Bókun þessi tekur aðallega til er-
lendra rafiðnaðarmanna sem komið
hafa hingað til lands á vegum er-
lendra verktaka í tengslum við stór-
framkvæmdir. Hækkun þessara
launa er metin á 26%.
Þá er sett inn í leiðbeinandi launa-
töflu RSÍ og SART ákvæði sem eiga
að mati samninganefndar rafiðnaðar-
manna að leiða til sérstakrar hækk-
unar launa á landsbyggðinni. í grein-
argerð RSÍ segir að þetta sé nýjung
og í opnu launakerfi sé útilokað að
meta hve miklu það skilar.
Formaður RSÍ mjög sáttur
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur RSÍ, kvaðst í gær mjög sáttur við
nýja samninginn. „Við semjum við
SA um eina lágmarkstölu og svo höf-
um við leiðbeinandi markaðskerfi
sem stýrist að einhverju leyti af því
sem er að gerast á vinnumarkaðn-
um,“ sagði hann. Guðmundur bendir
á að í síðustu samningum hafi RSÍ
samið eins og aðrir um 13% hækkun
launa á samningstímanum, en því til
viðbótar hafi rafiðnaðarmenn náð
fram upp undir 40% launaskriði
vegna markaðslaunakerfisins. „Það
má segja að við höfum náð sambæri-
legum þáttum fram nú og við það er-
um við sáttir,“ sagði Guðmundur.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, sagði ánægjulegt að náðst hefði
samningur sem væri á sömu nótum
og nýlegur sámningur við Flóa-
bandalagið.
„Eg tel að þessi samningur sé í
samræmi við það sem við lögðum upp
með og kom fram í samningnum við
Flóabandalagið," sagði Ari.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur sýknað knattspyrnumann af
ákæru um líkamsárás gegn mót-
herja í innanhússknattspyrnuleik.
Dómurinn telur að um hafi verið að
ræða líkamstjón vegna tilviks sem
leikmenn hafi almennt getað átt von
á og ekki verði talið fela í sér refsi-
ábyrgð. Að mati dómsins fól hátt-
semi þess sem ákærður var ekki í sér
beina árás á þann sem slasaðist held-
ur rangt mat á hættunni sem af hátt-
seminni kynni að stafa.
Um var að ræða atvik sem gerðist
í leik ÍBV og HK í janúar á síðasta
ári. Villy Þór Ólafsson, leikmaður
HK, var með knöttinn og lék í átt að
marki ÍBV. Gunnar Berg Runólfs-
son, markvörður IBV, var einn til
vamar og fór hann út á móti Villy
Þór. Þegar 2-3 metrar voru milli
Gunnars Bergs og Villys Þórs, sem
var með knöttinn fyrir framan sig,
fór Gunnar Berg í tæklingu, en í
sömu andrá lék Villy Þór knettinum
til vinstri og stóð í hægri fót er leik-
mennimir skullu saman með þeim
aíleiðingum að fótleggur Villys Þórs
þverbrotnaði.
Brot á knattspyrnureglum
Dómurinn telur að þrátt fyrir að
háttsemi ákærða hafi falið í sér brot
á reglum í innanhússknattspymu, þá
falli háttsemin utan marka þeirra
greina almennra hegningarlaga sem
ákæmvaldið taldi brotið gegn. Með
hliðsjón af því var Gunnar Berg
sýknaður af öllum kröfum ákæru-
valdsins í málinu.
Fastagjald síma hækk-
ar um mánaðamótin
Andlát
GUÐMUNDUR
HALLDÓRSSON
FASTAGJALD síma hækkar vænt-
anlega vemlega frá og með næstu
mánaðamótum, en samkvæmt nýjum
lögum um fjarskipti, sem samþykkt
vom fyrir jól og tóku gildi í ársbyrj-
un, ber Póst- og fjarskiptastofnun að
ákveða fastagjald fyrir síma með
hliðsjón af kostnaði og skal ákvörð-
unin taka gildi eigi síðar en 1. apríl.
Sex mánuðum siðar eða 1. október
næstkomandi skal samkvæmt
ákvæðum laganna opnaður aðgangur
að heimtaugum notenda og verður
þar með opnað fyrir samkeppni í tal-
símaþjónustu á innanlandsmarkaði.
I bráðabirgðaákvæði fjarskipta-
laganna segir að rekstrarleyfishafa
með umtalsverða markaðshlutdeild
skuli heimilað að færa fastagjöld fyrir
talsima til samræmis við kostnað að
viðbættri hæfilegri álagningu. Kostn-
aðarreikningar fyrir talsímaþjónustu
skuli lagðir fyrir Póst- og fjarskipta-
stofnun eigi siðar en 1. mars 2000 og
skuli stofnunin með hliðsjón af kostn-
aði ákveða fastagjald fyrir síma sem
taki gildi eigi síðar en 1. apríl. Að-
gangur að heimtaug skuli heimilaður
sex mánuðum eftir að Póst- og fjar-
skiptastofnun hafi ákvarðað um
fastagjöld fyrir talsíma til samræmis
við kostnað og hæfilega álagningu.
Kostnaðarútreikningar
langt komnir
Gústav Amar, forstjóri Póst- og
fjarskiptastofnunar, sagði að Lands-
síminn hefði lagt fram kostnaðarút-
reikninga sína til Póst- og fjarskipta-
stofnunar eins og lögin geri ráð fyrir
og stofnunin sé langt komin með að
yfirfara þá. Niðurstaða muni liggja
fyrir á næstunni og verða kynnt í
framhaldiafþví.
Gústav sagði aðspurður að ljóst
væri að fastagjaldið myndi hækka
þar sem það hefði hvorki fylgt kostn-
aðar- né verðþróun í gegnum árin
heldur verið niðurgreitt af öðrum
þáttum símþjónustunnar. Sama stað-
an í þessum efnum væri uppi nánast í
öllum löndum Vestur-Évrópu að
langlínusímtöl og millilandasímtöl
hefðu verið dýr en fastagjaldið að
sama skapi lágt. Evrópusambandið
hefði tekið á þessu og mælt fyrir um
lagfæringar, þar sem þetta hamlaði
samkeppni á þessu sviði. Ríki innan
ESB hafi skuldbundið sig til að ljúka
þessu fyrir árið 2000. Mörg þeirra
hafi lokið því verkefni og fastagjald
fyrir síma í þeim löndum hafi hækkað
mjög verulega, en að sama skapi hafi
gjöld fyrir aðra þætti þjónustunnar
lækkað á móti. Viðmiðunin sé sú að í
hverju tilviki fyrir sig endurspegli
gjaldskráin tilkostnað við þjónust-
una.
Fastagjald fyrir síma er nú 533 kr.
á mánuði fyrir heimilissíma og 1.066
kr. fyrir atvinnusíma. I gjaldinu er
innifalin ákveðin notkun sem nú nem-
ur 232 kr., þannig að nettófastagjald
fyrir heimilissíma nemur 301 krónu á
mánuði.
EINN elsti starfsmað-
ur á ritstjórn Morgun-
blaðsins, Guðmundur
Halldórsson, lést á
líknardeild Landspítal-
ans í fyrrinótt.
Guðmundur fæddist
20. júní 1941 á Akur-
eyri. Hann hóf blaða-
mennskuferil sinn á Al-
þýðublaðinu árið 1960,
en réðst til starfa á
Morgunblaðinu 1967.
Guðmundur starfaði
alla tíð að erlendum
fréttaskrifum og var í
röð þeirra fréttamanna
hérlendra sem fróðastir eru um þau
efni.
Lengst af var Guðmundur því
starfsmaður erlendu fréttadeildar-
innar en hin síðustu ár annaðist hann
skrif á erlendum viðskiptafréttum.
Guðmundur var margfróður um er-
lend málefni, en sérstakt áhugamál
hans var sagnfræði og
sérstaklega saga
heimsstyijaldanna
sem telja mátti sérsvið
hans. Síðustu greinar
Guðmundar í Morgun-
blaðið voru enda yfir-
litsgreinar um fyrri
heimsstyi'jöldina og
hina seinni og birtust í
sérútgáfu Morgun-
blaðsins 3. janúar sl.
þar sem horft var yfir
öldina sem er að líða,
eins og atburðirnir og
umræða líðandi stund-
ar höfðu birst á síðum
Morgunblaðsins.
Starfsfólk Morgunblaðsins saknar
góðs samstarfsmanns sem var með
afbrigðum ljúfur og þægilegur í um-
gengni og sendir föður hans og
systkinum innilegar samúðarkveðj-
ur um leið og það þakkar samstarfið
á liðnum áratugum.